Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.02.2006, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 24.02.2006, Qupperneq 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 150 þúsund króna aukahlutapakki fylgir öllum Corolla bifreiðum: álfelgur, vindskeið og skyggðar rúður. Verð frá 1.685.000 kr. Einstaklega veglegur Meiri Corolla – sama verð Nú færðu í takmarkaðan tíma meiri Corolla fyrir sama verð. Veglegur aukahlutapakki gerir aksturinn enn ánægjulegri: álfelgur, vindskeið og skyggðar rúður fylgja öllum Corolla bifreiðum. Corolla er einn vinsælasti bíll síðustu tveggja áratuga. Aksturseiginleikar, öryggi, sparneytni og lág bilanatíðni hafa skipað honum sérstakan sess í hugum Íslendinga. Á endanum velur þú Corolla. www.toyota.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 31 49 8 02 /2 00 6 Toyota Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460-4300 Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 421-4888 Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480-8000 ���������� ��������������������� Alveg geta þau drepið mann rökin sem færð eru fyrir frek- ara álvændi hér á landi. Þjóðin á móti slíkum subbuskap og er þá bara spurð hvort hún vilji taka afleiðingum þess að ráðist var í álversframkvæmdir í Reyðar- firði. Eða, er það ekki meðal ann- ars þess vegna sem krónan hefur verið afbrigðilega há og velmeg- unin slík að lausaskuldir heimil- anna hafa margfaldast á seinustu árum? Ekki var annað að skilja á svörum ráðherra orkumála þegar afstaða þjóðarinnar til frekari stóriðju var borin undir hana á dögunum. EKKI var það þjóðin sem tók ákvörðun um það álver. Reyndi meira að segja að mótmæla hástöf- um. Var ekki svarað með öðru en klígjusvip. Og núna þegar sér fyrir endann á álpartíinu fyrir austan og byrjað að örla á timbur- mönnunum, er ekki um annað að ræða en að halda áfram að reisa álver - í Þingeyjarsýslu, Eyjafirði, Skagafirði, Árborg. Hvað sem er til að halda þjóðinni á eyðslufyll- eríi í skjóli skammtímauppbygg- ingar og langtímaeyðileggingar. Er ekki skömminni skárra að taka efnahagslegum afleiðingum núna af einu fjárans álveri í stað þess að fresta skellinum í tíu til fimmt- án ár og taka þá afleiðingum af fimm álverum? HVAÐ er þetta með Framsóknar- flokkinn og álver? Ég hef alltaf haldið að þetta væri bændaflokk- ur sem væri hlynntur grasi og blómum og rollum og kusum og pútum. Hvar ætlar þessi ágæti flokkur að rækta upp og beita þegar búið er að eyða fallegustu og blómlegustu sveitum landsins í ösku? Er ekki hægt að senda for- mann stóriðjunefndar á þessa fylkingu sem er farin að gaspra undir öfugum formerkjum til að nefna hugmyndir um græna stór- iðju - eða bara skipta um kynslóð í flokknum. Það er sagt að ein kyn- slóð méli allt niður sem sú næsta á undan byggði upp. Kannski er núverandi forysta Framsóknar- floksins einmitt þessi niðurrifs- kynslóð. ÞJÓÐIN sem vildi aldrei álver búin að fá gula spjaldið í efna- hagsmálum, svona eins konar til- kynningu um síðasta sjúss fyrir lokun, frá Fitch í útlöndum - og hvað gerist? Fitch, sem var ofviti þegar hann bar okkur góðar frétt- ir, verður marklaus hálfviti þegar hann flytur okkur slæmar fréttir. Allt að hætti hússins. Ef þessu fer ekki að linna, endar með því að við verðum öll geðklofar af margra ára ítroðslu af misvísandi skilaboðum og blekkingarleikj- um. Það getur ekki dugað heimil- um landsins endalaust að vera talin trú um að sanngjarnt sé að ríkiskassinn bólgni á meðan skuld- ir þeirra aukast. Eitthvað hlýtur undan að láta. Velmegun hvað? 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.