Fréttablaðið - 24.02.2006, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
150 þúsund króna aukahlutapakki
fylgir öllum Corolla bifreiðum: álfelgur, vindskeið
og skyggðar rúður.
Verð frá 1.685.000 kr.
Einstaklega veglegur
Meiri Corolla – sama verð
Nú færðu í takmarkaðan tíma meiri Corolla fyrir sama verð.
Veglegur aukahlutapakki gerir aksturinn enn ánægjulegri:
álfelgur, vindskeið og skyggðar rúður fylgja öllum Corolla
bifreiðum.
Corolla er einn vinsælasti bíll síðustu tveggja áratuga.
Aksturseiginleikar, öryggi, sparneytni og lág bilanatíðni hafa
skipað honum sérstakan sess í hugum Íslendinga.
Á endanum velur þú Corolla.
www.toyota.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
31
49
8
02
/2
00
6
Toyota
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 421-4888
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
����������
���������������������
Alveg geta þau drepið mann rökin sem færð eru fyrir frek-
ara álvændi hér á landi. Þjóðin á
móti slíkum subbuskap og er þá
bara spurð hvort hún vilji taka
afleiðingum þess að ráðist var í
álversframkvæmdir í Reyðar-
firði. Eða, er það ekki meðal ann-
ars þess vegna sem krónan hefur
verið afbrigðilega há og velmeg-
unin slík að lausaskuldir heimil-
anna hafa margfaldast á seinustu
árum? Ekki var annað að skilja á
svörum ráðherra orkumála þegar
afstaða þjóðarinnar til frekari
stóriðju var borin undir hana á
dögunum.
EKKI var það þjóðin sem tók
ákvörðun um það álver. Reyndi
meira að segja að mótmæla hástöf-
um. Var ekki svarað með öðru en
klígjusvip. Og núna þegar sér
fyrir endann á álpartíinu fyrir
austan og byrjað að örla á timbur-
mönnunum, er ekki um annað að
ræða en að halda áfram að reisa
álver - í Þingeyjarsýslu, Eyjafirði,
Skagafirði, Árborg. Hvað sem er
til að halda þjóðinni á eyðslufyll-
eríi í skjóli skammtímauppbygg-
ingar og langtímaeyðileggingar.
Er ekki skömminni skárra að taka
efnahagslegum afleiðingum núna
af einu fjárans álveri í stað þess
að fresta skellinum í tíu til fimmt-
án ár og taka þá afleiðingum af
fimm álverum?
HVAÐ er þetta með Framsóknar-
flokkinn og álver? Ég hef alltaf
haldið að þetta væri bændaflokk-
ur sem væri hlynntur grasi og
blómum og rollum og kusum og
pútum. Hvar ætlar þessi ágæti
flokkur að rækta upp og beita
þegar búið er að eyða fallegustu
og blómlegustu sveitum landsins í
ösku? Er ekki hægt að senda for-
mann stóriðjunefndar á þessa
fylkingu sem er farin að gaspra
undir öfugum formerkjum til að
nefna hugmyndir um græna stór-
iðju - eða bara skipta um kynslóð í
flokknum. Það er sagt að ein kyn-
slóð méli allt niður sem sú næsta á
undan byggði upp. Kannski er
núverandi forysta Framsóknar-
floksins einmitt þessi niðurrifs-
kynslóð.
ÞJÓÐIN sem vildi aldrei álver
búin að fá gula spjaldið í efna-
hagsmálum, svona eins konar til-
kynningu um síðasta sjúss fyrir
lokun, frá Fitch í útlöndum - og
hvað gerist? Fitch, sem var ofviti
þegar hann bar okkur góðar frétt-
ir, verður marklaus hálfviti þegar
hann flytur okkur slæmar fréttir.
Allt að hætti hússins. Ef þessu fer
ekki að linna, endar með því að
við verðum öll geðklofar af
margra ára ítroðslu af misvísandi
skilaboðum og blekkingarleikj-
um. Það getur ekki dugað heimil-
um landsins endalaust að vera
talin trú um að sanngjarnt sé að
ríkiskassinn bólgni á meðan skuld-
ir þeirra aukast. Eitthvað hlýtur
undan að láta.
Velmegun
hvað?
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI