Fréttablaðið - 04.03.2006, Side 4
4 4. mars 2006 LAUGARDAGUR
Ranglega var sagt í Fréttablaðinu í gær
að Gunnar Freyr Þormóðsson hefði
fengið átján mánaða fangelsisdóm fyrir
þátt sinn í líkamsárás sem átti sér stað á
Akureyri í mars í fyrra. Rétt er að Gunnar
Freyr fékk tveggja mánaða fangelsi en
Steindór Hreinn Veigarsson, sem mest-
an þátt átti í árásinni, fékk hins vegar
átján mánaða fangelsisdóm. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTTING
LUNDÚNIR, AP Tessa Jowell, menn-
ingarmálaráðherra Bretlands,
braut ekki gegn siðareglum bresku
ríkisstjórnarinnar með aðkomu
sinni að fjármálaviðskiptum eig-
inmanns hennar. Þessu lýsti breski
forsætisráðherran Tony Blair yfir
á fimmtudag eftir að Sir Gus
O‘Donnell, æðsti embættismaður
breska stjórnkerfisins, komst að
þeirri niðurstöðu að Jowell hefði
ekki gerst sek um slíkt brot. Blair
sagðist bera fullt traust til Jowell.
Mál Jowell hefur verið fyrir-
ferðamikið í bresku pressunni í
vikunni. David Cameron, leiðtogi
Íhaldsflokksins, kallaði eftir því að
rannsókn á viðskiptum eiginmanns
Jowell, lögmannsins David Mills,
við ítalska forsætisráðherrann og
auðkýfinginn Silvio Berlusconi
verði víkkuð út. Mills sætir rann-
sókn af hálfu saksóknara í Mílanó í
tengslum við hugsanlega málsókn
vegna spillingar á hendur Berlus-
coni. Blair sagði að í opinberri rann-
sókn málsins verði „allar ásakanir
sem fram koma“ kannaðar.
Berlusconi er sakaður um að
hafa fyrirskipað greiðslu upp á
minnst 600.000 bandaríkjadali, and-
virði um 39 milljóna króna, til Mills
á árinu 1997. Greiðslan hafi verið
mútur fyrir að bera ljúgvitni í rétt-
arhöldum á árunum 1997 og 1998.
Berlusconi og Mills segja ásakan-
irnar pólitískan róg.
Í Sunday Times var greint frá
því að veðlán sem Mills og Jowell
tóku hafi verið liður í því að breiða
yfir hina meintu mútugreiðslu. ■
TESSA JOWELL Menningarmálaráðherrann
breski situr hér á milli þeirra Gordons
Brown og Tonys Blair á fundi í Lundúnum.
Eiginmaður ráðherra í bresku stjórninni í ítalskri spillingarrannsókn:
Ásakanir um mútuþægni
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 3.3.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 65,73 66,05
Sterlingspund 115,27 115,83
Evra 78,96 79,4
Dönsk króna 10,58 10,642
Norsk króna 9,849 9,907
Sænsk króna 8,348 8,396
Japanskt jen 0,5643 0,5677
SDR 94,87 95,43
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
110,75
UMFERÐARÖRYGGI Fjölmörg kerti
loga innan um blómvendi í fjölda
lita á gangbraut við Bæjarbraut í
Garðabæ. Á sama stað er skrifað
„hvíldu í friði“ á lítið umferðar-
skilti. Ástæðan er sú að á þessum
stað á Bæjarbraut var ekið á 15
ára gamla stúlku, Höllu Margréti
Ásgeirsdóttur, með þeim afleið-
ingum að hún lést á sjúkrahúsi
nokkrum dögum eftir slysið.
Á hverju kvöldi síðan 22. febrú-
ar, eða dagsins sem Halla Margrét
lést, hafa þær komið þarna við í
litlum hópum, og ein og ein. Með
þessu vilja þær minnast vinkonu
sinnar og tryggja að vegfarendur í
Garðabæ viti hvar slysið átti sér
stað og fari varlega.
En heimsóknir að slysstaðnum
er ekki það eina sem þessar kraft-
miklu ungu konur gera í minn-
ingu vinkonu sinnar. Fyrir
nokkrum dögum gengu þær á
fund Gunnars Einarssonar, bæj-
arstjóra í Garðabæ, til að tala um
umferðaröryggi í bænum.
Umrædd gangbraut var þar efst á
baugi því stúlkurnar telja að hún
sé sérstaklega hættuleg. Áður
hefur orðið þarna dauðaslys og
tvær þeirra tala af reynslu, því
keyrt var á þær á þessum stað
fyrir nokkrum árum.
Gunnar segir að fundurinn hafi
verið sérstaklega ánægjulegur þó
að tilefnið hafi verið sorglegt. Að
honum loknum fól hann verk-
fræðistofu að gera úttekt á öllum
helstu göngubrautum í Garðabæ
til að auka öryggi þar sérstaklega.
Einnig hafa verið fest kaup á
hraðamælingatækjum. Gunnar
segir að hann vilji ekkert frekar
en að fundur hans með stúlkunum
megi verða til þess að allir bæjar-
búar snúi bökum saman í því að
auka öryggi þeirra sem í umferð-
inni eru.
Stúlkurnar eru líka ánægðar
með bæjarstjórann sinn. „Hann
var alveg rosalega vel undirbúinn
og talaði við okkur í klukkutíma,“
segir ein stúlknanna og önnur
bætir við: „Það er ekki nóg að bíða
bara og vona. Það verður að tala
um þetta og gera eitthvað.“ Fram-
tak stúlknanna hefur vakið mikla
athygli í Garðabæ. Á meðan
Fréttablaðið ræddi við þær á slys-
staðnum stöðvuðu vegfarendur
bíla sína til að koma skilaboðum til
þeirra. Þau voru öll á sama veg:
hvatningarorð og hrós.
Útför Höllu Margrétar Ásgeirs-
dóttur var gerð frá Vídalínskirkju
í Garðabæ í gær. svavar@frettabladid.is
Berjast í minningu
skólasystur sinnar
Þann 22. febrúar síðastliðinn lést Halla Margrét Ásgeirsdóttir eftir að ekið var
á hana á gangbraut í Garðabæ nokkru áður. Vinkonur hennar hafa hrundið af
stað umferðarátaki í minningu hennar með aðstoð bæjaryfirvalda.
VIÐ SLYSSTAÐINN Þessar ungu stúlkur hafa vakið athygli og aðdáun Garðbæinga fyrir fram-
tak sitt. Þær vilja minnast vinkonu sinnar með því að auka umferðaröryggi í bænum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
LONDON, AP Breska lögreglan til-
kynnti í gær um fund á milljónum
punda í vörugeymslu í suðaustur-
hluta London. Seðlarnir, sem
geymdir voru í pokum, eru taldir
vera hluti af feng ræningjanna
sem réðust inn í birgðageymslur
Securitas í Kent í febrúar, í því
sem talið er vera stærsta rán Bret-
landssögunnar. Óvíst er hversu
mikið fé fannst en ljóst er að um
margar milljónir punda er að
ræða, að sögn lögreglu.
Fjórir hafa verið ákærðir í mál-
inu, þar með talinn breski auðkýf-
ingurinn og bílasalinn John
Fowles. Ræningjarnir höfðu á
brott með sér um sex milljarða
króna í seðlum. - smk
Stóra ránið í Kent:
Milljónir finn-
ast í London
BÆKISTÖÐ Búgarður John Fowles, eins
hinna ákærðu í stærsta ráni í sögu
Bretlands. Talið er að þjófarnir hafi notað
búgarðinn sem bækistöð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STÓRIÐJA Atvinnu-
þróunarfélag
Eyjafjarðar
(AFE) fagnar
ákvörðun Alcoa
þess efnis að
könnuð verði
hagkvæmni
álvers á Bakka
við Húsavík.
„Vissulega
vonuðum við að
Alcoa myndi kjósa Dysnes í Eyja-
firði,“ segir Magnús Þór Ásgeirs-
son, framkvæmdastjóri AFE.
Hann segir að úr því að Bakki varð
fyrir valinu þá vænti menn þess
að stjórnvöld komi nú þegar að
eflingu atvinnulífs og þjónustu á
Eyjafjarðarsvæðinu.
„Þar sjáum við meðal annars
fyrir okkur gerð Vaðlaheiðar-
ganga, lengingu flugbrautarinnar
á Akureyri og uppbyggingu
Háskólans á Akureyri,“ segir
Magnús Þór. - kk
Atvinnulíf mun eflast:
Eyfirðingar
fagna álveri
KÍNA, AP Ný lög hafa verið sett í
suður-kínversku héraði sem heim-
ila yfirvöldum að lífláta þjófa sem
stela handtöskum. Lögin þykja
afar hörð, en þau taka við af öðrum
sem heimiluðu mest þriggja ára
fangelsi fyrir þjófnað. Nú er
þriggja ára fangelsisdómur hið
minnsta sem slíkir minni háttar
glæpamenn geta átt von á.
Mannréttindasamtökin Amn-
esty International hafa mótmælt
lagabreytingunni.
Talið er að um 8.000 fangar séu
teknir af lífi á ári hverju í Kína,
fleiri en í nokkru öðru landi. Kín-
versk yfirvöld hafa sagt svo hörð
lög nauðsynleg til að hafa hemil á
þjóðinni, sem telur 1,3 milljarða
manna. - smk
Hert lög í Kína:
Lífláta má
töskuþjófa
VÍSINDI Vísindasiðanefnd kemur
saman á þriðjudag til þess að fara
yfir bóluefnarannsóknir Lyfjaþró-
unar hf., auk annarra mála sem
liggja fyrir hjá nefndinni.
Undanfarnar vikur hefur
nefndin verið að afla gagna um
rannsóknir sem gerðar voru á
vegum Lyfjaþróunar hf. á árunum
1999 til 2004, en í þeim fólst að
kannað var hvort hægt væri að
nota nefúða við bólusetningu.
Rannsóknunum var hætt þar sem
þær stóðu ekki undir væntingum.
Snemma á þessu ári bárust
nefndinni ábendingar um að hugs-
anlega hefði verið átt við niður-
stöður rannsóknanna. - mh
Vísindasiðanefnd fundar:
Nefndin enn
að afla gagna
MAGNÚS ÞÓR
ÁSGEIRSSON