Fréttablaðið - 04.03.2006, Page 6

Fréttablaðið - 04.03.2006, Page 6
6 4. mars 2006 LAUGARDAGUR VÍETNAM, AP Fyrrverandi bresk poppstjarna, Gary Glitter, var í gær dæmd í þriggja ára fangelsi í Víetnam fyrir að misnota tvær telpur þar í landi. Telpurnar eru tíu og ellefu ára gamlar, en Glitter er 61 árs. Jafnframt var honum gert að greiða fjölskyldum telpnanna samtals sem svarar um 40.000 krónum, sem og allan málskostn- að. Glitter neitaði sök en í desem- ber „gaf“ hann fjölskyldum telp- nanna samtals rúmar 260.000 krónur, sem varð til þess að hann hlaut mildari dóm en hann hefði ella hlotið, að sögn dómarans. Glitter verður gerður brott- rækur úr Víetnam þegar hann hefur afplánað dóminn. - smk Breskur barnaníðingur: Fangelsaður í Víetnam DÆMDUR Poppstjarnan Gary Glitter var í gær dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir mis- notkun á tveimur víetnömskum telpum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Stöðvuðu ölvaðan ökumann Lög- reglan í Reykjavík stöðvaði ölvaðan öku- mann eftir stuttan eltingarleik í fyrrinótt. Sinnti maðurinn ekki stöðvunarboðum og var brugðið á það ráð að aka í veg fyrir hann. Engin slys urðu og skemmdir litlar á bílunum. LÖGREGLUFRÉTT KJÖRKASSINN Ertu fylgjandi byggingu álvers við Húsavík? Já 49% Nei 51% SPURNING DAGSINS Í DAG Á lögreglan að leggja tálbeitur fyrir barnaníðinga? Segðu skoðun þína á visir.is SJÁVARÚTVEGUR „Þetta er síðasti dagurinn sem fer í hrognatöku,“ segir Ásgeir Þorvarðarson verk- stjóri í Saltveri í Reykjanesbæ í gær. Hann segir þessa loðnuvertíð vera afar frábrugðna þeim sem hann þekki. „Það hefði verið eðli- legt að byrja hrognatöku núna en nú er þetta að vera búið. Þetta sögðu líka japönsku eftirlitsmenn- irnir sem komu hingað samkvæmt venju í fyrradag.“ „Við erum að taka síðustu tonnin núna af þessum takmarkaða kvóta sem við fengum,“ segir Aðalsteinn Helgason, framkvæmdastjóri Síld- arvinnslunar. „Þetta hefur verið afar stutt vertíð en ég held að öllum hafi tekist að hámarka verðmætin eins og hægt var af þessum tak- mörkuðu heimildum sem menn höfðu. Það fór nær ekkert í bræðslu og ég held að það sé algjört eins- dæmi að bræðslan á Seyðisfirði hafi staðið auð yfir loðnuvertíð eins og nú varð raunin,“ bætir hann við. Sigurgeir Brynjar Kristgeirs- son, framkvæmdastjóri Vinnslu- stöðvarinnar, segir að þar séu menn nær alveg búnir með kvótann. - jse Loðnuveiðar og vinnsla víða um land: Loðnuvertíð er nærri lokið Hamas gefur sig ekki Leiðtogar Hamas-hreyfingarinnar neituðu því að milda afstöðu sína gagnvart Ísrael í viðræðum við Rússa í Rússlandi í gær. Rússar höfðu farið fram á að hreyfingin, sem Evrópusambandið skilgreinir sem hryðjuverkasamtök, viðurkenndi tilveru- rétt Ísraels og segði skilið við ofbeldi. PALESTÍNA ÁSGEIR ÞORVARÐARSON VERKSTJÓRI Hrognatöku er nú nær lokið og menn undirbúa sig í Saltveri að snúa sér aftur að saltfiskverkun eftir stutta loðnuvertíð. VÍKURFRÉTTIR/ELG ÍRAK, AP Börn léku sér í fótbolta á helstu umferðargötum Íraks í gær og fjölskyldur spásseruðu í moskur til föstudagsbæna. Mörg- um virtist létt við róna sem færð- ist yfir borgina eftir að bílaum- ferð var bönnuð frá klukkan 6 í gærmorgun til klukkan 16, en ofbeldisalda hefur riðið yfir Írak síðan tvær sprengjur stór- skemmdu helgidóm sjía-múslima í Samarra fyrir tíu dögum. Stjórn- armyndunarviðræður hafa fallið niður í kjölfar þess að súnní- arabar sögðu sig úr þeim í mót- mælaskyni við árásir á moskur þeirra eftir árásina á Gullnu moskuna, og óttast margir að land- ið sé á barmi borgarastyrjaldar. Bílaumferðin var bönnuð eftir að 58 manns fórust í sprengjutil- ræðum víðs vegar um Bagdad og Írak á fimmtudag, en alls hafa yfir 500 manns farist síðan sprengjurn- ar tvær skemmdu Gullnu mosk- una í Samarra. Bæði sjía- og súnní-klerkar notuðu föstudagsbænir til að predika um nauðsyn þess að Írak- ar standi saman og kenndu marg- ir erlendum öflum um óöldina. „Írakar bjuggu samstíga saman áður en innrásarliðið og þeir sem fylgdu því komu hingað til lands. Þeir hafa kynt undir sundrungu milli trúarhópa,“ sagði súnni- arabaklerkurinn Ahmed Hassan al-Taha í ræðu sinni í Samarra. Einn helsti hershöfðingi Banda- ríkjahers í Írak, George Casey, sagðist í samtali við fréttamenn í gær telja að mestu óeirðirnar væru yfirstaðnar. Á miðvikudag sameinuðust leiðtogar þriggja stjórnmálafylk- inga, Kúrda, súnní-araba og flokks fyrrverandi forsætisráð- herra, um að fara fram á að sjíinn Ibrahim al-Jaafari, sem helsti flokkur sjía hefur tilnefnt til að taka við forsætisráðherraemb- ættinu, taki ekki við embætti og að sjíar tilnefni einhvern annan til starfans. En aðstoðarmaður al- Jaafari lýsti því yfir á fimmtudag að hann yrði ekki felldur og að sjíar myndu ekki kjósa sér annan forsætisráðherra. Viðræður um myndun þjóðstjórnar eru því í uppnámi. Al-Jaafari var kosinn í emb- ætti sitt með eingöngu eins atkvæðis meirihluta hinn 12. febrúar, en í kosningum sem haldnar voru í landinu í desember hlaut stærsta stjórnmálafylking sjía 130 þingsæti af 275. Mun fleiri sjía-múslimar byggja Írak en súnní-arabar. smk@frettabladid.is Nýtt akstursbann slær á spennu í Írak Óttast var að Írak væri á barmi borgarastríðs, en róin sem færðist yfir Bagdad í gær vakti vonir í brjóstum fólks að óöldinni færi að linna. Viðræður um myndun þjóðstjórnar eru í uppnámi. SORG Mikið öngþveiti ríkir í Írak þessa dagana vegna óeirðaöldu sem riðið hefur yfir landið. Óttast er að hún marki upphaf borgarastyrjaldar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP INDLAND, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði Indverj- um í gær að landsmenn hans ættu að fagna indverskri samkeppni og skipta við Indverja frekar en að loka dyrum sínum á alþjóðavið- skipti. Jafnframt ættu þeir að sjá Indland sem land tækifæranna en ekki sem ógnun. Bush hélt ræðuna í lok þriggja daga ferðar sinnar til Indlands. Fjölmenn mótmæli voru haldin í Indlandi í gær vegna heimsóknar Bush. Bandaríkjaforseti flaug svo til Pakistans síðdegis í gær ásamt gríðarlegu öryggisliði og mun halda heim á leið í dag. - smk Vaxandi gengi Indlands: Bush fagnar samkeppninni INDLANDSFERÐ George W. Bush Banda- ríkjaforseti ræðir við Indverja eftir ræðu sem hann hélt í Nýju-Delhí í Indlandi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Einn bíll útaf Mikil hálka olli því að bíll lenti útaf þjóðveginum til móts við Akureyri seinni partinn í gær. Tvennt var í bílnum en engin slys urðu á fólki. Bíllinn skemmdist lítillega. LÖGREGLUFRÉTTIR KJARAMÁL Samninganefnd slökkvi- liðs- og sjúkraflutningamanna fund- aði enn með Launanefnd sveitarfé- laganna í gærkvöld þegar Fréttablaðið fór í prentun. Vernharður Guðnason fram- kvæmdastjóri, sem á sæti í samn- inganefndinni, vildi ekki tjá sig um gang viðræðna þegar eftir því var leitað. Sagði hann einungis að ómögulegt væri á þeim tímapunkti að meta hvort sættir næðust enda viðræður á viðkvæmu stigi. Taldi hann nokkuð ljóst að fundað yrði fram eftir kvöldi og jafnvel lengur. Sjúkra- og slökkviliðsmenn hafa boðað verkfall ef ekki semst þann 20. mars. - aöe Sjúkra- og slökkviliðssmenn: Viðræðurnar á viðkvæmu stigi Bandaríkjaher borgar Bandaríkja- her mun halda áfram að greiða íröskum fjölmiðlum fyrir að birta fréttir, að sögn helsta herforingja Bandaríkjahers í Írak, Goerge Casey. Herinn hefur rannsakað þessa hefð, og segir herforinginn hana vera innan laga og verkahrings hersins. ÍRAK KJARAMÁL „Þeir vilja einhliða taka af okkur sextán yfirvinnustundir á mánuði og það er tekjumissir upp á 300 þúsund krónur á ári,“ segir Stefán Þór Helgason, trúnaðarmað- ur starfsmanna Sorphirðu Reykja- víkur. Borgaryfirvöld vilja rifta núver- andi samningi við starfsmenn deildarinnar með það að markmiði að leiðrétta það sem kallað er óunn- in yfirvinna en við það missa starfs- mennirnir drjúgan hluta tekna sinna. Er mikil óánægja vegna þessa en fundum vegna málsins hefur tvívegis verið slegið á frest og enginn er boðaður. Að sögn Stef- áns snýst deilan um að samningur- inn sem er í gildi og hefur verið um árabil gefur starfsmönnum sorp- hirðu leyfi til að vinna af sér hluta hvers föstudags og hætta fyrr á daginn gegn því að taka aðeins einn klukkutíma á dag í mat eða kaffi. „Við fáum einn og hálfan yfir- vinnutíma daglega en borgin vill nú aðeins greiða okkur fyrir hálfa klukkustund á dag sem þýðir mikið tekjutap og þessu skella þeir fram- an í okkur án nokkurs fyrirvara. Þetta er alvarleg kjaraskerðing og ljóst að kjör okkar versna til muna.“ Stefán segir hugmyndirnar und- arlegar í ljósi þess að almenn ánægja sé með störf sorphirðu- manna eins og nýleg könnun borg- arinnar sýndi. Voru niðurstöður hennar að tæplega 90 prósent borg- arbúa voru ánægðir með þjónustu og viðmót starfsmanna sorp- hirðunnar. - aöe Reykjavíkurborg vill rifta samningi við starfsmenn sorphirðu borgarinnar: Launin lækka um 300 þúsund KJARASKERÐING Reykjavíkurborg vill rifta samningi við starfsfólk sorphirðu í borginni sem hefur í för með sér allverulega kjaraskerðingu fyrir það. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.