Fréttablaðið - 04.03.2006, Page 30
4. mars 2006 LAUGARDAGUR30
Kristín Ingólfsdóttir hefur aðeins gegnt rektorsemb-ætti í átta mánuði þegar
hún stígur fram og opinberar þá
stefnu sína – og skólans alls – að
stefna beri að því að koma Háskóla
Íslands á lista yfir hundrað bestu
háskóla í heimi. Það þarf ekki að
koma á óvart að Kristín skuli
stefna hátt enda var það sérstakt
stefnumál hennar fyrir rektors-
kjörið á síðasta ári að koma
Háskóla Íslands í fremstu röð. Það
kann hins vegar að koma á óvart
að hún skuli stefna jafn hátt og
raun ber vitni.
„Ég er sannfærð um að við
Íslendingar verðum að eiga
háskóla í fremstu röð, ekki síður
en aðrar Norðurlandaþjóðir. Við
getum ekki keppt í launakostnaði í
framleiðslu við þjóðir í Asíu.
Okkar vettvangur verður í þekk-
ingargreinum. Þar þurfum við að
byggja markvisst upp.“
Í byrjun desember hófst stefnu-
mótunarvinna í öllum deildum og
stjórnsýslueiningum skólans með
þetta í huga. „Ég kynnti þetta starf
fyrir menntamálaráðherra og hún
spurði hversu hátt við stefndum
og hvað skólinn þyrfti að gera til
að komast í röð hundrað bestu
háskóla í heiminum. Mér þótti
þetta djörf spurning en mjög í
anda þess sem við vorum að hugsa.
Eftir að hafa kynnt mér þá mæli-
kvarða sem lagðir eru til grund-
vallar er niðurstaðan sú að fag-
lega höfum við alla burði til að
gera þetta.“
Kristín leggur ríka áherslu á að
takmarkinu verði ekki náð við
núverandi aðstæður. Mikið þurfi
að koma til svo Háskóli Íslands
geti skipað sér á bekk með bestu
háskólum í heimi.
Fjöldi doktorsnema fimmfaldaður
Þrjár úttektir hafa verið gerðar á
starfi Háskólans á undanförnum
árum og að sögn Kristínar hafa
þær staðfest að grunnur skólans
sé mjög góður. „Við höfum jafn-
framt fengið ábendingar um ýmis-
legt sem betur má fara og erum að
bregðast við þeim.“
Útskriftir doktorsnema vega
þungt þegar gæði háskóla eru
metin. Þrettán doktorsnemar
útskrifuðust frá HÍ á síðasta ári
og segir Kristín að fimmfalda
þurfi fjölda þeirra svo skólinn
verði samanburðarhæfur.
„Doktorsgráða er æðsta
menntagráða sem háskóli veitir.
Við höfum lagt á það áherslu að
vinna doktorsverkefnin í tengsl-
um við bestu alþjóðlegu háskóla
og höfum fengið hingað andmæl-
endur þaðan. Þetta skapar mjög
mikilvæg og verðmæt tengsl fyrir
kennara og nemendur. Íslendingar
hafa lengi sótt framhaldsnám
erlendis og það er mikilvægt að
það haldi áfram. En það er líka
gífurlega mikilvægt að byggja
jafnframt upp hér heima. Það
styrkir alla innviði í háskólakerf-
inu, fleiri fara í doktorsnám og
það tengir Háskólann beint við
strauma í alþjóðlegu vísinda- og
menntastarfi.“
Hyggja þarf að mörgu þegar
rætt er um eflingu doktorsnáms.
Fjölga þarf kennurum og nemend-
um og tryggja að doktorsnemar
geti sinnt námi sínu sem fullu
starfi. Gæta þarf að því hve lang-
an tíma námið tekur því ekki þykir
gott að fólk dvelji of lengi við það.
Þá þarf að bæta námsaðstöðuna.
„Við þurfum betri aðstöðu í mörg-
um greinum; aukna rannsóknarað-
stöðu, öflugra bókasafn, tækja-
búnað og bætta aðstöðu fyrir
nemendur,“ segir Kristín.
Þegar liggur fyrir að svonefnt
Háskólatorg verði reist en á því
verða tvær byggingar. Í nýju húsi
Landspítala - háskólasjúkrahúss
verður kennsluaðstaða heilbrigðis
vísindagreinanna, vísindagarðar
munu rísa í Vatnsmýrinni og Hús
íslenskra fræða verður reist á
háskólalóðinni. En þetta er ekki
nóg, háskóli í fremstu röð þarf
fleiri byggingar. Og vitaskuld
tækjabúnað af bestu gerð.
Ríkisframlagið lægra en hjá
öðrum skólum
Ljóst má vera að kostnaður við að
koma Háskólanum í fremstu röð
er ærinn. Kristín vill ekki segja
hve mikið það kostar en fjárhags-
áætlun liggur fyrir. „Ég vil ekkert
segja um tölur að svo stöddu.
Fyrst ætla ég að kynna þær
menntamálaráðherra,“ segir hún
og vonast til að geta upplýst ráð-
herra í næstu viku. „Í mínum huga
kristallast í þessu hið raunveru-
lega hlutverk ríkisins í mennta-
málum, það er að segja að sjá fyrir
þarfir samfélagsins á næstu ára-
tugum og leggja grunn að
framtíðarvelsæld með því að fjár-
festa í þekkingu og mannauði. Það
mun skila sér margfalt til baka til
samfélagsins.“
Háskóli Íslands fær rúmlega
sjö milljarða króna til rekstursins
á ári, 4,8 milljarða úr ríkissjóði en
sjálfur aflar skólinn 2,5 milljarða.
Fást þeir peningar ýmist með sam-
starfi við fyrirtæki eða úr sjóðum;
bæði innlendum og erlendum.
Áætlanir gera ráð fyrir enn frek-
ari sókn í sjálfsaflafé.
Í nokkur ár hefur verið rætt
um hvort Háskóli Íslands eigi að
leggja skólagjöld á nemendur sína
en slík gjöld eru innheimt af
nemum einkareknu háskólanna.
Kristín segir umræðu um skóla-
gjöldin verða tekna í haust þegar
lög um HÍ verða endurskoðuð. Það
er annars hennar skoðun að skóla-
gjöld gætu skaðað skólann.
„Athuganir sýna að rekstur háskól-
ans er hagkvæmur fyrir samfé-
lagið, ríkisframlagið til okkar er
talsvert lægra en í sambærilegum
skólum annars staðar í Evrópu. Ég
tel mjög mikilvægt að Háskóli
Íslands verði áfram í hópi best
reknu skóla, en bilið er of mikið og
við þurfum að leggja þarna meira
til. Við höfum dæmi um þróun þar
sem skólagjöld hafa verið tekin
upp að ríkisframlag hefur lækkað.
Og þróunin gæti orðið sú að skóla-
gjöld hækki þó þau verði tiltölu-
lega lág til að byrja með og á móti
lækki ríkisframlagið. Það er jafn-
framt mikilvægt að það gleymist
ekki í umræðu um skólagjöld, að
ríkisvaldið leggur talsverða fjár-
muni af mörkum í gegnum lán-
veitingu fyrir skólagjöldum og
niðurgreiðslu vaxta og afborg-
ana.“ Kristín telur jafnframt
hættu á að skólagjöld dragi úr
aðsókn í framhaldsnám.
Inntökuskilyrðin hugsanlega hert
Inntökuskilyrði í Háskóla Íslands
eru einföld: Stúdentar skulu hafa
lokið stúdentsprófi. Ekki er víst að
saman fari að stefna að því að
komast í röð bestu háskóla í heimi
og taka við öllum sem hafa stúd-
entspróf upp á vasann. Kristín
segir inntökuskilyrðin til athugun-
ar. „Þetta er eitt af því sem við
erum að skoða. Auðvitað er það
liður í að tryggja að gæði skólans
verði sem mest að við getum
tryggt að við fáum afbragðs nem-
endur. En þetta þarf að skoða
vel.“
Það gæti sumsé verið að inn-
tökuskilyrðin verði hert. Að ekki
verði sjálfgefið að fólk geti hafið
nám í HÍ þó það hafi lokið stúd-
entsprófi. En það, eins og margt
annað, mun koma í ljós.
Einnig er til athugunar hvort
breyta þurfi stjórnskipulagi skól-
ans. „Háskólinn þarf að hafa skýr-
ara skipurit og skilgreina þarf
betur völd og ábyrgð,“ segir Krist-
ín.
Ellefu deildir eru reknar innan
hans og til greina kemur, að mati
Kristínar, að fækka þeim og
stækka. Bæði kemur til álita að
sameina deildir og fræðasvið
innan deilda. Inn í þá vinnu bland-
ast svo hugsanleg sameining
Háskóla Íslands og Kennaraháskóla
Íslands. Kristín segir þá vinnu
ganga vel en hún miðar að því að
efla báða skólana.
Stefnumótun Háskólans lýkur
á vordögum og eins og gengur
verður afraksturinn kynntur í
skýrslu. Kristín tekur undir að
hún verði mikil að vöxtum en lofar
um leið að hún verði skemmtileg.
„Í henni verður bæði heildarstefna
skólans og stefna hverrar deildar
fyrir sig. Hún á að ná til fimm ára,
til afmælisársins 2011 en þá verð-
ur skólinn hundrað ára. Að vera
meðal hundrað bestu er langtíma-
markmið en ég tel að ef við fáum
þann stuðning sem við þurfum
getum við náð því á tíu árum.“
Augljóst er að ærinn starfi er
fram undan hjá Kristínu Ingólfs-
dóttur. Háleit markmið útheimta
mikla vinnu og jafnvel blóð, svita
og tár ef út í það er farið. Kristín
veit hvað hún er að ráðast í. „Ég er í
þessu hverja vakandi stund og sinni
ekki öðru á meðan en árangurinn
byggir fyrst og síðast á því feikiöfl-
uga starfsfólki sem starfar hér
innan skólans. Ég er sannfærð um
að þetta sé það sem þarf og er komin
hingað til að vinna að þessu mark-
miði. Þegar ég tók við þessu starfi
lagði ég áherslu á að Háskóli Íslands
þyrfti að komast í fremstu röð og að
ég myndi leggja sjálfa mig að veði
fyrir því að svo yrði. Og það er það
sem ég er að gera.“ ■
Stefnt á að komast í fremstu röð
KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR rektor Háskóli
Íslands Hún hefur sett sér og skólanum
háleit markmið og rær að því öllum árum
að ná því. „Þegar ég tók við þessu starfi
lagði ég áherslu á að Háskóli Íslands þyrfti
að komast í fremstu röð og að ég myndi
leggja sjálfa mig að veði fyrir að svo yrði.
Og það er það sem ég er að gera.“
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Ég er sannfærð um að við Íslendingar verðum að eiga
háskóla í fremstu röð, ekki síður en aðrar Norðurlanda-
þjóðir. Við getum ekki keppt í launakostnaði í framleiðslu
við þjóðir í Asíu. Okkar vettvangur verður í þekkingar-
greinum.“
Háskóli Íslands hefur sett sér það markmið að komast í röð hundrað bestu háskóla í heiminum.
Kristín Ingólfsdóttir rektor lýsti því markmiði í ávarpi við brautskráningu kandídata um síðustu helgi.
Í samtali við Björn Þór Sigbjörnsson segist Kristín sannfærð um að þetta háleita markmið sé raunhæft
enda hafi skólinn faglega burði til að ná því. Hún segir meðal annars nauðsynlegt að efla doktorsnám
skólans og óttast að ríkisframlög til Háskóla Íslands kunni að lækka ef skólagjöld verða tekin upp.