Fréttablaðið - 04.03.2006, Side 39
[ ]
Á Bröttugötu 3 í Grjótaþorpinu
leynist skartgripabúðin Frida
Thomas. Verslunin er nefnd eftir
eiganda sínum sem jafnframt
hannar skartgripina þar. Fríða bjó
erlendis í þrjátíu ár, lengst af í
Danmörku en einnig í Svíþjóð og
New York. Síðustu fjögur
árin starfaði hún sem
skartgripahönnuð-
ur fyrir þekkta
verslun, Bead-
house of Copen-
hagen, en fyrir
einu og hálfu ári
síðan ákvað hún að
hanna undir eigin
nafni.
„Ég opnaði fyrst
á Óðinsgötu en
flutti síðan hingað. Ég fékk hús-
næðið þar sem endurvekja átti
gömul atvinnuhúsnæði í Grjóta-
þorpinu með því að fá í þau hand-
verk. Mér finnst borgin hins vegar
hafa unnið á móti mér því skömmu
eftir að ég flutti var farið í miklar
framkvæmdir á vegum borgarinn-
ar. Gatan var til dæmis algjörlega
lokuð allan desember. Þar var verið
að vinna með risastóra bora svo
það hristist allt og skalf og fólk
hljóp út úr búðinni aftur. Síðan er
þetta eina gatan sem ekki er í götu-
skrá símaskrárinnar og borgin
hefur nú tekið niður eina skiltið
þar sem stóð að þetta væri Bratta-
gata. Það má því segja að borgin
hafi gert þetta að algjörri leyni-
búð,“ segir Fríða.
Í búðinni má finna skartgripi
af öllum stærðum og gerðum.
Fríða kveðst aldrei gera
tvennt eins svo þeir sem
vilja vera spes og öðru-
vísi geta fundið eitthvað
við sitt hæfi þarna inni.
„Mér finnst gaman að
gera alla mögulega mis-
jafna stíla og nota allt frá
dýrum steinum yfir í
plast þess vegna,“ segir
Fríða, sem kveðst verða
fyrir áhrifum af öllu
mögulegu í umhverfi
sínu. „Ég vinn mikið með steina.
Hver steinn hefur ákveðna merk-
ingu og mér finnst fólk sækja
mikið í þá steina sem það þarf ork-
una úr,“ segir Fríða að lokum.
mariathora@frettabladid.is
Flott fyrir herra í ferminguna
Ropeyoga
í Mjódd
Ný námskeið hefjast 6. mars
„Örfá pláss laus“
Lokaðir 6 manna hópar
Upplýsingar og skráning í síma 694 2595
Tímatafla á kaerleikssetrid.is
Þórdís Sigfúsdóttir
Ropeyogakennari
Djörf mynstur og austurlensk áhrif eru áberandi í
tískunni fyrir sumarið. Best er auðvitað ef hægt er að sameina þetta
tvennt.
Verslunin er á fallegum stað í Grjótaþorp-
inu. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Kristalshálsfesti. Samkvæmt
steinaspeki skapa kristalar
meðal annars mikla orku og
virka mjög hreinsandi.
Hálsfesti úr karneol. Samkvæmt steina-
speki veitir karneol jákvæða tilfinningu,
styrkir sjálfsvitund, vinnur á móti líkam-
legum og andlegum sársauka og styrkir
hormónakerfið og maga.
Hálsfesti með kórölum. Kóralar eru
sjávarafurð úr kalki. Þeir hafa verið notaðir
sem blóðhreinsandi meðöl og vörn gegn
sjúkdómum svo sem lifrarvandamálum,
sykursýki og húðsjúkdómum.
Leynibúð á Bröttugötu
Skartgripaverslunina Fridu Thomas er að finna á Bröttugötu 3. Hönnuðurinn notar mikið af stein-
um en engir tveir skartgripir eru eins.
Fríða Thomas hannar skartgripi í samnefndri búð. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Hátíska hefur alltaf verið dýr.
Verðið er hins vegar alltaf að
hækka og virðist sú þróun eng-
an enda ætla að taka.
Verðið í tískuheiminum á nýjum
vörum stærstu hönnuðinna hefur
að jafnaði hækkað um 25-50 pró-
sent á síðustu fimm árum. Ástæð-
urnar eru ekki skýrar en margir
vilja meina að þarna sé um að kenna
græðgi bæði hönnuða og verslunar-
eigenda. Vitað er að álagning
hátískuvöruverslana er langt
umfram það sem gengur og gerist í
öðrum verslunum og að helstu
hönnuðurnir verðleggja sig dýrt.
Á móti kemur að vörur kosta
sjaldnast meira en það sem við-
skiptavinurinn er tilbúinn að
borga fyrir hana. Þegar svo marg-
ir hafa fé milli handanna, fé sem
þeir vita ekkert hvað þeir eiga að
gera við, sjá hönnuðir sér leik á
borði. Föt eru nauðsynjavara en
föt frá Yves Saint Laurent eru
lúxusvara. Lúxusvara sem sýnir
velmegun og stöðu, lúxusvara
sem fólk er tilbúið að kaupa á
2.000.000 kr.
Tískan er að verða dýrari
Kjólar frá Yves Saint Laurent geta kostað
rúmar tvær milljónir. NORDICPHOTOS/AFP
Fatalínu Stellu McCartney var vel
tekið á tískuvikunni í París nýlega.
Þar strunsuðu fyrirsætur um
fallega skreyttan danssal í prjóna-
kjólum og ofurþröngum gallabux-
um í anda áttunda áratugarins
sem svo margir hönnuðir líta hýru
auga til þessa dagana.
McCartney er sögð hanna föt á
konur sem líkjast henni sjálfri og
hefur útlit hennar þróast með lífs-
stílnum, allt frá rokkuðu gellunni
sem umbylti frönsku línunni Chloe
í lok tíunda áratugarins til móður-
innar og viðskiptakonunnar sem
hún er í dag.
Stella kom-
in á skrið
Stella McCartney hefur viðskiptavit.
Festi úr vísundahorni.
ROPE YOGA
Bæjarhrauni 22
NÝ 16 og 24 TÍMA BYRJENDANÁMSKEIÐ
HEFJAST 6. og 7. MARS.
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á www ropeyoga.net
og í símum 555-3536 og 695-0089
Kennarar: Ósk og Domí
Bjóðum uppá frjálsa
mætingu 17 tíma
í viku í ástundun
FRÁBÆRT VERÐ
FERMING
Í FLASH
Kjólar
Pils
Toppar
Jakkar
Ótrúlegt úrval