Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 45
2
Ekki er hægt að kvarta undan því
að rómantík vanti í tískuna í vor og
sumar, þar sem léttir kjólar, blúnd-
ur, silki og dúllulegir fylgihlutir eru
allsráðandi. Stuttermablússur úr
léttu efni, skreyttar hekluðum
blúndum, slaufum, doppum og
glitsteinum sem passa vel við
gallabuxur, pils og hnébuxur fást
nú í tonnatali. Gott er að nota þær
undir jakkapeysur eða léttar peysur
með vaffhálsmáli ef ekki viðrar til
að hafa handleggina bera. Margar
þeirra eru gegnsæjar og því nauð-
synlegt að vera í fallegum hlýra-
bol innanundir og vanda val á
brjóstahaldara. Auk þess er hægt
að vera í þröngum og síðum
stuttermabol undir þeim, jafn-
vel í sterkum lit. Fylgihlutirnir
eru líka nauðsynlegir, sérstak-
lega síðar og grófar hálsfestar í
litatónum sem passa vel við litinn
á blússunni og hárbönd og spangir.
Á bera handleggina er líka flott að
setja armbönd.
Rómantískar og þunnar
Doppur, steinar, slaufur og borðar á þunnum sumarskyrtum.
Ljósbleik gegnsæ
skyrta með ísaum-
uðum glitsteinum
frá Warehouse.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Bleik með
doppum í
Warehouse.
Hvít með
heklaðri blúndu
að framan og á
bakinu. Fæst í
Warehouse.
Armband úr
Whistles.
Perlufesti úr
Oasis.
Vortískan er undir áhrifum frá sjóliðum þetta
árið. Þar má helst nefna þverrendurnar sem
finna má í bláu og hvítu, svörtu og hvítu eða
rauðu og hvítu. Hvert sem farið er rekst maður á rönd-
óttar flíkur en það eru ekki bara Reykvíkingar sem hrífast af þessari
tísku. D&G sýndi herralínu sína á dögunum en þar mátti sjá karlmenn
íklædda sjóliðaflíkum frá toppi til táar.
Peysa úr Evu.
Peysa úr Oasis.
Blússa úr Sautján.
Sjóliðarendur
Þverrendur eru í tísku og finnast í hvítum, svört-
um, bláum og rauðum lit.
Stuttermabolur sem fæst í Sautján.
Vesti úr Oasis.
Stuttur bolur með hlýra-
bol innanundir. Fæst í
Warehouse.
Bossanova.
Kron.
38 Þrep.
Fátt er sumarlegra þegar hlýna tekur í veðri en að fjár-
festa í fallegum sumarskóm. Nú er þessi létti og þægilegi
skófatnaður farinn að tínast inn í helstu skóverslanir
borgarinnar. Þótt háhæla skór séu áfram vinsælir
halda flatbotna skórnir velli og eru í fleiri útgáf-
um en í fyrra. Sumarskór eru sætir við pils
og kvartbuxur og eru upplagðir á
hlýjum síðkvöldum.
Léttir og liprir
Sumarlegir skór fara nú að tínast inn í verslanir borgarinnar.
GS Skór.
Kron.
Ozio.
■■■■ { vor & sumar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■