Fréttablaðið - 04.03.2006, Page 49
njóta sín hvergi betur en í stuttbuxum. Þær eru í tísku í
ár rétt eins og í fyrra. Vissulega eru þau skipti teljandi
á fingrum annarrar handar sem hægt er að bregða
sér í bæjarferð berleggjaður í stuttbuxum á Íslandi.
Hér blæs kaldur norðanvindur sem gefur sjaldan svo
mikil grið að stuttbuxur séu ákjósanlegur klæðnað-
ur. Því mælum við með litríkum sokkabuxum við
stuttbuxurnar. Þær eru líka ágætis tilbreyting frá
stuttum pilsum, sem hafa verið vinsæl undanfarin
ár en eru nú á undanhaldi.
fylltir hælar ...
fagrir fótleggir ...
6
Vaxtalaus greiðslukjör í allt að 24 mánuði
(visa/euro) Engin útborgun
Í bláu húsunum við Faxafen Sími: 568 1800
Sjóntækjafræðingur með réttindi til
sjónmælinga og linsumælinga
Vatnsstíg 11 – 101 Reykjavík
Sími: 552 5540
Fatabreytingar
50 ára reynsla
Allar fatabreytingar.
Buxur styttar meðan beðið er.
Keyrt upp frá Skúlagötu
Leggðu sléttujárninu og taktu
fram krullujárnið, því nú eiga
krullurnar að fá að njóta sín. Ekki
þýðir þó að láta þær flæða óhefl-
aðar, heldur skiptir máli að vera
vel greiddur. Málið snýst um að
hafa hárið kvenlegt og klassískt.
Fyrirmyndirnar eru gamlar kvik-
myndastjörnur með nútímalegu
ívafi. Helst ber þó að varast að
láta hárið verða of mikið og svo
maður líti ekki út fyrir að vera ein
af stjörnunum í sjónvarpsþáttun-
um Dallas. Mestu skiptir að hárið
sé glansandi og fallegt en ekki
úfið og mikið. Ekki fara yfir strik-
ið þegar sett er krullukrem í hárið,
og nuddaðu því í rakt hárið. Not-
aðu rúllur í hárið, en ekki láta þær
vera lengur en tuttugu mínútur,
og greiddu þær lauslega í sundur
með fingrunum.
krullur ...
Elle Macpherson með fallegar krullur.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
voru smart í fyrra og eru það aftur í ár. Ef þú
varst svo framsýn í fyrra að festa kaup á
skóm með fylltum hæl geturðu andað
léttar, fylltir hælar voru ekki eins
sumars tískubóla, þeir ráða ríkjum í
sumar líka. Hversdagslegir skór sem
og spariskór eru fallegir með fyllt-
um hæl. Það góða við þessa skótísku
er að skór með fylltum hæl eru stöðugir
og lítið mál fyrir óvanar tískudrósir að
skella sér á mjög háa hæla.
Almennt eru tískusérfræðing-
ar á því að aldrei fyrr hafi verið
eins mikið líf í herratískunni. Sú
staðreynd sést best á því að mun
fleiri tískuhönnuðir hafa verið að
hanna vor- og sumarföt fyrir karl-
menn. Herratískan hefur nefnilega
í gegnum tíðina verið mun hægari
og líflausari en tískan fyrir konur.
Með fleiri línum og mismunandi
áherslum ætti herratískan því að
geta orðið örlítið líflegri og fjöl-
breyttari.
Vegna aukinnar fjölbreytni er
mun erfiðara en áður að telja upp
örfá atriði sem eiga eftir að vera
meira ríkjandi í tísku sumarsins en
áður. Sérstaklega er erfitt að spá
fyrir um tískuna hér á landi þar
sem veðrið er síbreytilegt.
Strákar ættu samt ekki að
vera hræddir við liti og skrautleg
mynstur. Þó mega litirnir ekki vera
mjög æpandi skærir heldur frekar
sterkir og ákveðnir. Buxur halda
áfram að vera frekar niðurþröng-
ar eða með beinu sniði. Þó má
alveg prófa eitthvað annað í
staðinn fyrir hefðbundnar
gallabuxur. Kvartbuxur
eiga alltaf vel við á sumrin
og einnig líflegar hnésíðar
stutbuxur. Léttar skyrtur
eiga einnig vafalaust eftir að
verða nokkuð vinsælar. Flott-
ast er að hafa þær vel sniðnar
og með flottum kraga. Kraginn
er einnig alltaf að verða meira
og meira áberandi á jökkum og
meira lagt upp úr þeim. Blaz-
er-jakkar úr sléttu flaueli halda
áfram að vera klassískir.
Annars er um að gera að vera
nógu uppátækjasamur. Umfram
allt gildir þó að vera samkvæmur
sjálfum sér.
Lifandi og léttleikandi
Fyrir næsta sumar er margt að gerast í herratískunni. Umfram allt eiga strákar að
finna sér það sem hentar hverjum og einum best.
Köflótt, grá, græn og svört jakka-
föt með stuttbuxum í Kronkron.
Kurt Cobain-
stuttermabolur,
belti með stjörnu-
sylgju og skór
með hauskúpu úr
versluninni Elvis.
Rauðköflótt skyrta úr Kúltúr. Ljós röndóttur pólópolur í Kúltúr.
Köflótt skyrta og stuttermabolur með mynd af Rodney Dangerfield úr versluninni Elvis.
Jakkapeysa með hvítum renndum rúllu-
kraga. Fæst í Kronkron.
■■■■ { vor & sumar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■