Fréttablaðið - 04.03.2006, Page 75
Fullyrða má að Litlu kaffistof-una þekki allir landsmenn. Þessi gamla timburbygging
sem stendur við þjóðveginn eins og
skrattinn úr sauðarleggnum í eyði-
legu og hrjóstrugu umhverfi sand-
hóla og hraundranga og er elsti
starfandi áningastaðurinn við þjóð-
veginn.
Viðskiptin aukast dag frá degi
Það er nóg að gera alla daga hjá
Stefáni og þann dag er blaðamaður
tók hús á honum var engin undan-
tekning. Tólf flutningabílar stóðu á
planinu fyrir utan, bílstjórar þeirra
inni í hádegismat og gerðu allir
sem einn góðan róm að þeim rétt-
um sem í boði voru. Rjómalagaðar
súpur Stefáns eru hnossgæti svo
ekki sé minnst á heimalagað brauð-
ið sem allnokkrir gera sér sérstaka
ferð út af segir Stefán með stolti.
Mikið er um að fólk á leið í
bústaði sína fyrir helgar komi við
og taki með sér nokkrar sneiðar í
nesti. Hægt er að ganga að slíku
góðgæti vísu alla daga ársins
meðan opið er en standi vilji ferða-
langa til að fá sér hamborgara eða
slíkan skyndibita koma menn að
tómum kofa á Litlu kaffistofunni.
„Ég vil fremur bjóða upp á þjóð-
lega rétti en slíkan mat og það
hefur sýnt sig að flestir þeir sem
hingað koma eru ánægðir með það.
Ég kvarta ekki undan viðskiptun-
um. Það koma hérna dagar og vikur
yfir allt sumarið sem ég gæti alveg
haft opið allan sólarhringinn og
haft nóg að gera en ég verð að
hugsa um fjölskylduna.“
Umferðin þung en vegir batnað
„Það koma álagstímar hér á sumr-
in þegar umferð hér um er marg-
föld á við Reykjanesbrautina sem
gjarnan er miðað við í fréttum.
Mig minnir að það mesta sem
mældist á sunnudegi hér síðasta
sumar voru tæplega 17 þúsund
bílar á sólarhring. Þá myndaðist
líka flöskuháls hér fyrir neðan. Nú
eru komin tvö ný hringtorg hér á
leiðinni frá Reykjavík að kaffistof-
unni og ég veit að margir eru for-
vitnir um hvort það sama verður
uppi á teningnum í sumar. Einnig
veit ég um marga sem furða sig á
að vegurinn sé ekki tvær akreinar
í báðar áttir í stað þess að hafa
tvær aðeins öðru megin. En vegur-
inn er öruggari en áður að mínu
viti.“
Áður fyrr birtust vart fréttir af
ófærð eða óhöppum á Suðurlands-
vegi án þess að Litla kaffistofan
væri nefnd. Þar áttu allmargir
athvarf þegar veður voru sem
verst en Stefán segir þetta liðna
tíð. „Fyrir utan stöku skot hefur
ekkert verið að veðri hér um slóðir
í mörg ár og af sem áður var þegar
vegurinn varð ófær hvað eftir
annað alla vetur. En við stöndum
enn vaktina í hvert sinn sem veður-
spáin er slæm og þá er hér opið
fyrir alla sem á þurfa að halda.“
Sögulegar myndir á veggjum
Hvarvetna sem litið er í matsal
kaffistofunnar má líta ljósmyndir
frá hinum og þessum atvikum í
íslenskri knattspyrnu gegnum tíð-
ina.
Upphaflega segir Stefán, sem
sjálfur er Skagamaður í húð og hár,
að til hafi staðið að leyfa myndun-
um að hanga í eitt ár eða svo en
áhuginn hafi verið slíkur að þær
hanga enn uppi og alltaf bætist í
safnið. „Ég hef fengið hingað til
mín hópa ferðamanna eingöngu til
að skoða myndirnar og þetta vekur
athygli hjá útlendingum líka. Þar
sem ég sjálfur er forfallinn bolta-
aðdáandi þá finnst mér til sóma að
þær hangi hér enda er safnið orðið
ansi gott þótt ég segi sjálfur frá.
Hér er mynd af fyrsta leiknum
sem spilaður var á Íslandsmótinu
árið 1912 og fleiri myndir eru hér
sem þykja merkilegar fyrir margra
hluta sakir. Það er mér ánægja að
safna þeim og sýna enda engin
íþrótt sem kemst nálægt knatt-
spyrnunni hvað skemmtun varðar
að mínu viti.“
Stendur vaktina áfram
Stefán hefur ekkert í hyggju að
hætta eða setjast í helgan stein á
næstunni.
„Við höfum gaman af þessu og
höfum kynnst svo mörgu fólki sem
hingað kemur að það verður ekki á
næstunni. Með meiri umferð auk-
ast viðskiptin vonandi enn frekar
og það er von mín að allir sem hing-
að koma finnist þeir velkomnir
enda er ár og dagur síðan ég gerði
mér grein fyrir að þú færð alltaf til
baka það sem þú gefur. Fái við-
skiptavinur góða heimilislega þjón-
ustu og góðan mat aukast líkurnar
til muna að hann komi aftur. Það er
allur galdurinn.“
4. mars 2006 LAUGARDAGUR38
LJÓS Í MYRKRINU Fátt er kærara þeim er
leið eiga um Svínahraunið í vondum veðr-
um en að sjá Litlu kaffistofuna álengdar.
Þar standa dyrnar opnar alla daga og nætur
líka ef veðurspár gera ráð fyrir óveðri.
MYND/INGÓ.J
MAÐUR ER MANNS GAMAN Einkunnarorð Stefáns eru fengin úr Hávamálum: „Ungur var
ég forðum, fór ég einn saman: þá varð ég villur vega. Auðigur þóttumst, er ég annan fann.
Maður er manns gaman.“FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
SÚPA EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR Það er ekkert sjoppulegt við rjómalagaðar súpurnar
sem boðið er upp á í Litlu kaffistofunni en Stefán kýs fremur að bjóða slíkt en hamborgara
og slíka skyndibita. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
Gætum haft opið
24 tíma á sólarhring
Stefán Þormar Guðmundsson söðlaði um fyrir fjórtán árum síðan og
hætti í vel launuðu starfi innkaupastjóra til að taka við rekstri Litlu kaffi-
stofunnar í Svínahrauni. Þar hefur hann hvern dag síðan staðið vaktina
ásamt fjölskyldu sinni frá klukkan sex á morgnana. Albert Örn Eyþórsson
gerði sér ferð og stoppaði við í kaffi hjá honum á leið austur fyrir fjall.
Opið laugardaga: 11:00 - 16:00