Fréttablaðið - 04.03.2006, Page 81
4. mars 2006 LAUGARDAGUR
Vaðandi fjör upp um alla veggi.
Sjálfur rokkkóngurinn Rúni Júll, Balli, Júlli,
Óttar Felix og Tryggvi Hübner.
Leikhúsgestir! Munið
glæsilega matseðilinn
www.kringlukrain.is
sími 568 0878
Skák og mát!
Rokkað á Kringlukránni
laugardagskvöld
Björn Hlynur Haraldsson
fer með hlutverk Péturs
Gauts í leikstjórn Baltasar
Kormáks. Með frumsýning-
unni í kvöld er jafnframt
vígt nýtt leiksvið Þjóðleik-
hússins, Kassinn, þar sem
möguleikarnir eru óþrjót-
andi.
„Ég er fyrst og fremst að setja
Pétur Gaut fram á aðgengilegan
hátt og finna einhverja samsvörun
í honum fyrir áhorfendur,“ segir
Baltasar Kormákur, sem leikstýr-
ir hinum sígilda ljóðleik Henriks
Ibsen um Pétur Gaut, ístöðulausan
mann sem þvælist víða um heim
og upplifir á flækingi sínum fleira
en flestir kærðu sig um.
Uppfærsla Þjóðleikhússins er
gerð í tilefni af hundrað ára ártíð
Ibsens. Baltasar Kormákur segist
reyndar lengi hafa haft hug á því
að leikstýra þessu meistarastykki
norska skáldjöfursins.
„Í raun og veru hefur mig lang-
að til að takast á við þetta verk
síðan ég lék í honum sjálfur,“ segir
Baltasar, sem lék Pétur Gaut í sýn-
ingu Þjóðleikhússins árið 1991,
sem Þórhildur Þorleifsdóttir leik-
stýrði.
Þetta er í fimmta sinn sem
Pétur Gautur eftir Ibsen er settur
upp í íslensku atvinnuleikhúsi.
Oftast hefur verið notast við þýð-
ingu Einars Benediktssonar, en að
þessu sinni hefur Karl Ágúst Úlfs-
son gert nýja þýðingu fyrir sýn-
ingu Baltasars, enda er sú leið
farin í þessari sýningu að stilla
Pétri Gaut upp í nútímanum.
„Ég held textanum nokkurn
veginn, nema það þarf að stytta
hann talsvert því annars væru
þetta fimm tímar í leik,“ segir
Baltasar. „En textanum er öðru-
vísi raðað upp. Það er búið að setja
Pétur Gaut upp á þúsund vegu frá
því hann var skrifaður.“
Leikarar, auk Björns Hlyns,
eru Brynhildur Guðjónsdóttir,
Edda Arnljótsdóttir, Guðrún S.
Gísladóttir, Ingvar E. Sigurðsson,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Ólafur
Egill Egilsson og Ólafur Darri
Ólafsson.
Leikmyndina gerir Grétar
Reynisson, en hann hlaut Grímuna
fyrir sýninguna Þetta er allt að
koma, sem einnig var leikstýrð af
Baltasar Kormáki.
Þessi sýning á Pétri Gaut er
jafnframt opnunarsýning á nýju
leikrými Þjóðleikhússins, Kassan-
um, sem Baltasar segir vera góða
viðbót við þau leiksvið sem Þjóð-
leikhúsið hefur upp á að bjóða.
„Þetta er mjög skemmtilegt
rými og þarna á eftir að setja upp
fullt af skemmtilegum sýningum.
Þetta er bæði stærra og heppi-
legra en hin litlu sviðin,“ segir
Baltasar.
Kassinn er eins og nafnið bend-
ir til „svartur kassi“, eins og það
er nefnt í leikhúsheiminum – ein-
faldlega autt rými sem hægt er að
útbúa nánast hvernig sem er eftir
því sem hentar hverri leiksýn-
ingu. Til dæmis má raða áhorfend-
um í kringum leiksviðið eða gera
nánast hvað sem leikstjóra dettur
í hug, þótt Baltasar kjósi reyndar
að nota þetta nýja rými á nokkuð
hefðbundinn hátt á vígslusýning-
unni.
„Ég hef bara áhorfendur í
einum hlutanum og svo er leikið í
hinum hlutanum.“
Pétur Gautur í Kassanum
SJÁLFSKRUFNING Baltasar Kormákur fer þá leið að stilla Pétri Gaut upp í nútímanum.
SAMRÆÐUR VIÐ SJÚKRABEÐ Björn Hlynur Haraldsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir í hlut-
verkum sínum.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI