Fréttablaðið - 05.04.2006, Blaðsíða 8
8 5. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR
Vinsælir ferðamannastaðir á þessum
slóðum eru blómaeyjan Mainau sem er
skammt frá borginni Konstanz og
kastalinn sögufrægi í Meersburg.
Í 30–60 mínútna ökufjarlægð eru
Austurríki og Sviss hinu megin við
vatnið og Ítalía ekki langt undan.
*A›ra lei› me› sköttum. Gildir fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd me› fullor›num
Verð frá:
Barnaverð:
www.icelandexpress.is, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600
www.icelandexpress.is/friedrichshafen
Vinaleg borg í fallegu umhverfi
Nokkuð óþjált nafn fyrir jafn fallega og vinalega borg. Friedrichshafen er í
Suður-Þýskalandi og stendur við Konstanz-vatnið sem er þriðja stærsta stöðuvatn
meginlands Evrópu þar sem Þýskaland, Sviss og Austurríki mætast. Það er alltaf nóg
um að vera við vatnið.
FRIEDRICHSHAFEN
Fljúgðu á einn stað og heim frá
öðrum - og bíll frá Budget kemur
þér á milli staða.
Bókaðu bílaleigubíl frá Budget á
www.icelandexpress.is og tryggðu
þér bestu verð Budget. Þú getur
flogið á einn áfangastað Iceland
Express, ferðast um á bíl frá Budget
og flogið svo heim frá öðrum
áfangastað, allt eftir þinni hentisemi.
VERTU ÞINN
EIGIN HERRA
STJÓRNMÁL Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra athugar ásamt
fulltrúum bændasamtakanna
hvort ástæða sé til þess að bregð-
ast við stórfelldum kaupum auð-
manna á bújörðum með breyting-
um á jarðalögum. Hann vísar
meðal annars til ákvæða í dönsk-
um og norskum lögum um ábúð-
arskyldu.
Björgvin G. Sigurðsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, spurði
landbúnaðarráðherra á Alþingi
hvort hann hygðist koma í veg
fyrir raðuppkaup auðmanna. Verð
á jörðum hefði hækkað um 100
prósent á fimm árum og sala
þeirra hefði aukist um 50 af
hundraði á sama tíma. Björgvin
vísaði til þess að Guðni hefði ekki
útilokað í viðtali við Bændablaðið
að sú staða kynni að koma upp að
gera yrði breytingar á jarðalög-
um ef viðskiptafrelsi færi að
bitna á mikilvægum gildum. Þar
hlyti hann að hafa átt við skilyrði
í lögum um ábúðarskyldu.
Landbúnaðarráðherra sagði
verðþróunina jákvæða en sam-
fara henni steðjaði viss ógn að
stöðu landbúnaðarins. Þetta hefði
valdið áhyggjum bænda í ýmsum
byggðarlögum.
Björgvin sagði ekki ótítt að
auðmenn hefðu keypt fimm til
fimmtán jarðir, en dæmi eru um
að hópur fjárfesta hafi keypt mun
fleiri jarðir. - jh
Landbúnaðarráðherra hefur áhyggjur af stórfelldum jarðakaupum auðmanna:
Auðmenn þrengja að búskap
GUÐNI ÁGÚSTSSON LANDBÚNAÐARRÁÐ-
HERRA Stóruppkaup auðmanna á jarðnæði
geta bitnað á mikilvægum gildum segir
landbúnaðarráðhera.
VEISTU SVARIÐ
1 Hvað heitir nýskipaður forstjóri 365 Media Scandinavia A/S?
2 Hvaða sjúkdómi segist David Beckham þjást af?
3 Hver er Íslandsmeistari kaffibarþjóna?
SVÖR Á BLS. 38
FJÁRHÆTTUSPIL Lögreglan hefur
haft samband við stjórnendur
allra helstu fjölmiðla landsins og
óskað eftir því að þeir hætti að
birta auglýsingar frá veðmála-
fyrirtækinu Betsson.com en aug-
lýsingar fyrirtækisins birtust
fyrir og um síðustu helgi í ýmsum
fjölmiðlum.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni í
Reykjavík, segir að ábending-
unni hafi yfirleitt verið vel tekið
enda séu auglýsingarnar ólögleg-
ar og bannaðar. Hann segir að
þeir sem ekki taki ábendingu lög-
reglu geti átt von á kæru.
- ghs
Veðmálafyrirtækið Betsson:
Kært ef auglýs-
ingar birtast
KJARAMÁL Setuverkföll starfsfólks
á dvalarheimilum eru yfirvofandi
á morgun og föstudag. Þau ná til
um 900 starfsmanna á átta stofn-
unum sem vilja sömu laun fyrir
sömu vinnu og starfsmenn sveit-
arfélagana.
Daggjöld ríkisins til þessara
stofnana ákvarða að stærstum
hluta laun starfsfólks að sögn
stjórnenda heimilanna, sem vilja
þjónustusamninga eins og dvalar-
heimilið Sóltún hefur sem til-
greina nákvæmlega hvaða þjón-
ustu ber að veita fyrir daggjöldin.
Samningur Sóltúns tryggir dval-
arheimilinu hærri daggjöld en
aðrar stofnanir fá. Þessu hafa
stjórnvöld hafnað ítrekað segir
Sveinn H. Skúlason, forstjóri
Hrafnistuheimilanna.
Guðmundur Hallvarðsson,
stjórnarformaður Hrafnistu-
heimilanna, hefur miklar áhyggj-
ur af þróun mála og segir að
Hrafnistuheimilin verði að sætta
sig við að ríkið taki einhliða
ákvörðun um daggjöldin.
„Flóttinn er hafinn og við eigum
engin svör. Daggjaldið á Hrafn-
istu er 13.000 krónur en á Sóltúni
rúmlega 20.000 krónur. Miðað er
við að Sóltún taki við fólki af spít-
ölunum en það höfum við líka allt-
af gert og gerum enn. Við sjáum
enga kröfu frá heilbrigðisráðu-
neytinu um hvað er lágmark og
hvað er hámark þjónustu. Ef þetta
þróast áfram eins og það gerir
núna er sjálfhætt.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-
ráðherra segir að það sé nákvæm-
lega tilgreint hvað ríkið sé að
kaupa annars staðar en á Sóltúni.
Í daggjaldinu séu skýr laga- og
reglugerðarákvæði sem gilda um
þá þjónustu sem veitt sé á hjúkr-
unarheimilum og skýrt hvaða
kröfur eru gerðar. Aðspurð hvort
það komi til greina að aðrar sjálfs-
eignarstofnanir fái svipaða samn-
inga og Sóltún svaraði ráðherra:
„Við erum að skoða umönnunar-
þáttinn, hvernig hann eigi að vera
samansettur. Við borgum dag-
gjöldin áfram eins og við höfum
gert. Það er hugsanlegt að þau
geti tekið einhverjum breytingum
í framtíðinni en það hefur ekkert
með kjarasamningana að gera.“
Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga hefur bent á að gera þurfi
þjónustusamninga, sem hljóti að
teljast lágmarkskrafa við kaup á
samfélagslegri þjónustu. Formað-
ur félagsins, Elsa B. Friðfinnsdótt-
ir, segir ríkið setja frá sér millj-
arða án þess að skilgreint sé í hvað
féð eigi að renna.
svavar@frettabladid.is
Daggjöldin
gætu breyst
Stjórnendur dvalarheimila segja það ekki skilgreint
í hvað daggjöld eigi að renna og biðja um þjónustu-
samninga. Heilbrigðisráðherra er ósammála.
FRÁ HRAFNISTU Í REYKJAVÍK Daggjöldin á Hrafnistu eru þrettán þúsund krónur en til sam-
anburðar eru daggjöldin á Sóltúni tuttugu þúsund krónur.
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR GUÐMUNDUR
HALLVARÐSSON
DANMÖRK Danir sjá fram á lengri
starfsaldur því í gær voru áform
ríkisstjórnarinnar um að hækka
eftirlaunaaldurinn kynnt. Er
breytingin hluti af áætlunum ríkis-
stjórnarinnar í endurbótum á vel-
ferðarkerfi landsins.
Töluverð umræða hefur verið
um málið í Danmörku undanfarin
misseri og hafa skoðanakannanir
sýnt að meirihluti landsmanna er
á móti hærri eftirlaunaaldri. Sam-
kvæmt áætlunum ríkisstjórnar-
innar hækkar eftirlaunaaldurinn
úr sextíu árum í 63 ár á næstu
fimmtán árum. - ks
Danska stjórnin kynnir breytingar á velferðakerfinu:
Eftirlaunaaldur hækkaður
TAÍLAND, AP Thaksin Shinawatra,
forsætisráðherra Taílands, sagði
af sér í gær, en stjórnarandstæð-
ingar hafa sakað hann um spill-
ingu og misbeitingu á valdi sínu.
Forsætisráðherrann efndi til
kosninga á sunnudag þó þrjú ár
væru enn eftir af kjörtímabili
hans, í þeim yfirlýsta tilgangi að
sanna fylgi flokks síns. Bráða-
birgðatölur sögðu flokk Thaksins
hafa hlotið 57 prósent atkvæða, en
óvíst er hversu marktækar kosn-
ingarnar voru því fjöldi Taílend-
inga neitaði að kjósa í mótmæla-
skyni við forsætisráðherrann.
Thaksin tilkynnti því um afsögn
sína í gær eftir fund með konungi
landsins, Bhumibol Adulyadej.
Thaksin er auðkýfingur sem
græddi fé sitt í símafyrirtækjum.
Þó hann hafi upphaflega notið
mikils fylgis hafa mótmæli gegn
honum farið stigvaxandi undan-
farið, sérstaklega eftir að fjöl-
skylda hans seldi hlut sinn í stóru
símafyrirtæki, skattfrjálst.
Á meðan stjórnarandstæðingar
fögnuðu við stjórnarráðið í Bang-
kok í gær kvörtuðu margir fátæk-
ari íbúar landsins undan afsögn
Thaksins og sögðu hann hafa sinnt
fátæklingum vel. Thaksin mun
sinna forsætisráðherrastöðunni
þar til annar tekur við, sem verður
væntanlega innan mánaðar. - smk
Sviptingar í stjórnmálunum í Taílandi:
Ráðherra segir af sér
ÁSAKANIR UM SPILLINGU Stjórnarandstæð-
ingar mótmæltu í Taílandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP Bandaríski þing-
maðurinn Tom DeLay hefur sagt
af sér þingmennsku og ætlar ekki
að bjóða sig fram í þingkosningun-
um í nóvember.
„Kjósendurn-
ir í 22. kjördæmi
í Texas eiga skil-
ið að kosninga-
baráttan snúist
um þau mikil-
vægu þjóðmál
sem þeir láta sig
mest varða, en
snúist ekki bara
um mig,“ sagði hann í yfirlýsingu
sem hann sendi frá sér í gær.
DeLay var leiðtogi repúblikana
á Bandaríkjaþingi þangað til á síð-
asta ári, þegar hann var sakaður
um að hafa átt hlut að ólöglegri
fjármögnun kosningabaráttu
flokksins. - gb
Repúblikaninn Tom DeLay:
Segir af sér
þingmennsku
TOM DELAY