Fréttablaðið - 05.04.2006, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 5. apríl 2006 15
Andri Snær Magnason, höfundur metsölubókarinnar Draumalandið -
sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð, heldur opinn fyrirlestur í
SAMKOMUHÚSINU á Akureyri, Hafnarstræti 57, í kvöld, miðvikudaginn
5. apríl kl. 20:00.
Andri Snær Magnason
Umtalaðasta bók á Íslandi!
2. prentun
komin í
verslanir
1. prentun
uppseld
1. sæti
Metsölulista
„Þetta er bók með brýnt erindi og hana verða allir að lesa sem á annað
borð vilja fylgjast með. “
Páll Baldvin Baldvinsson, DV
„Þessi bók er alveg yndislega skemmtilega skrifuð. Ég átti mjög erfitt
með að leggja hana frá mér. “
Alex á Málefnin.com
„Þessi bók endurspeglar svo margt af því sem fólk er að tala um sín á
milli ... [Andri] er sá sem lætur loksins vaða og skrifar þessa líka
bráðgóðu bók.“
Sigurborg Rögnvaldsdóttir, bokmenntir.is
„Fáið ykkur Draumalandið, takið hana að láni á bókasafninu, kaupið
hana í bókabúðinni, lesið hana við bókaborðið eða stelið henni ef þið
eigið ekki fyrir henni. Þessa bók VERÐA ALLIR ÍSLENDINGAR AÐ LESA.“
Silja Aðalsteinsdóttir, TMM.is
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
edda.is
VERÐLAG Fasteignaverð á höfuð-
borgarsvæðinu hækkaði um þriðj-
ung milli áranna 2004 og 2005.
Næstmest var hækkunin á Suður-
landi, 26 prósent, og aðeins hærri
en hækkunin á Norðurlandi vestra,
sem var 23,9 prósent. Minnst var
hækkunin á Vesturlandi og Norð-
urlandi eystra, sem voru sitt hvoru
megin við átján prósentin.
Verð íbúðarhúsnæðis á höfuð-
borgarsvæðinu hækkaði tvöfalt
meira á hvern fermetra á tímabil-
inu en það gerði á Norðurlandi
eystra. - sdg
Höfuðborgarsvæðið:
Íbúðaverð
hækkar
REYKJAVÍK Fasteignaverð hefur hækkað
mest á höfuðborgarsvæðinu.
LITHÁEN Hannes Heimisson sendi-
herra afhenti Valdas Adamkus,
forseta Litháen, trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra Íslands gagnvart
Litháen. Hannes verður með
aðsetur í Helsinki. Athöfnin fór
fram í forsetahöllinni í Vilníus,
höfuðborg landsins.
Hannes lagði áherslu á náinn
vinskap þjóðanna og vaxandi sam-
skipti á vettvangi stjórnmála og
viðskipta í viðræðum sínum við
Adamkus. Forsetinn þakkaði
Íslendingum þann stuðning sem
þjóðin hefur sýnt Litháen frá því
að þjóðin endurheimti sjálfstæði
sitt fyrir fimmtán árum. - sdg
Nýr sendiherra í Litháen:
Afhenti trún-
aðarbréf sitt
SINUELDAR Bæjarstjórn Borgar-
byggðar hefur sent frá sér til-
kynningu þar sem öllum sem unnu
að slökkvistarfi á Mýrum er þakk-
að fyrir ósérhlífni og ómetanlega
framgöngu.
Þar segir að sinueldarnir á
Mýrum í Borgarbyggð séu með
mestu hamförum sinnar tegundar
á landinu í áratugi. Með öflugri
framgöngu og góðu samstarfi
slökkviliða, lögreglu, ýmissa aðila
sem buðu fram aðstoð sína og ekki
síst íbúa í héraðinu hafi tekist að
ráða niðurlögum eldsins og mikið
lán sé að enginn hafi hlotið skaða í
átökunum við eldana. - shá
Bæjarstjórn Borgarbyggðar:
Þakkar góða
framgöngu
SINUELDAR Á MÝRUM Þökkuð er öflug
framganga þeirra sem unnu að slökkvistarfi.
FINNLAND Jorma Ollila, forstjóri
og stjórnarformaður Nokia í Finn-
landi, hélt sína síðustu ræðu á
aðalfundi Nokia í Helsinki í vik-
unni. Ollila hefur verið við stjórn-
völinn hjá Nokia síðustu fjórtán
árin og víkur til hliðar í sumar.
Við stjórnartaumunum hjá fyrir-
tækinu tekur Olli-Pekka Kalla-
svuo.
Í finnska dagblaðinu Helsingin
Sanomat kemur fram að Ollila
hafi stiklað á stóru í velmegunar-
sögu Nokia. Fjöldi farsíma hafi
aukist í milljarða í stjórnartíð Oll-
ila og þriðji hver sími sé frá Nokia.
Þá hafi virði félagsins margfald-
ast á aðeins fáeinum árum. - ghs
Forstjóri Nokia hættur:
Þriðji hver sími
er frá Nokia
HVALVEIÐAR Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra segir það
tómt mál að tala um að byggja upp
þorskstofninn nema með því að
stunda hvalveiðar. Hann sagði á
Alþingi í fyrradag að ekki hefði
verið tekin pólitísk ákvörðun um
áframhald hvalveiða en hrefnu-
veiðum í vísindaskyni yrði haldið
áfram.
Guðlaugur Þór Þórðarson,
Sjálfstæðisflokki, spurði sjávar-
útvegsráðherra um hvalveiðar og
vitnaði til nýlegra rannsókna, sem
fjallað var um á síðasta fundi
sjávarspendýraráðs Norðaustur-
Atlantshafs, NAMMCO, sem hald-
inn var á Selfossi. Guðlaugur
sagði að niðurstöður Gísla Vík-
ingssonar hvalasérfræðings
sýndu að þorskur og annar botn-
fiskur væri allt að fimmtán pró-
sent af fæðu hrefnunnar en ekki
um þrjú prósent eins og eldri
rannsóknir hefðu sýnt.
„Þetta segir okkur að til þess
að byggja upp þorskstofninn verð-
um við að stunda hvalveiðar,“
svaraði sjávarútvegsráðherra.
Fram kom í rannsóknum að lítið
er af þungmálmum og þrávirkum
efnum í holdi hrefnunnar og taldi
ráðherra að það stuðlaði enn að
aukinni eftirspurn eftir hvala-
afurðum líkt og þegar hefði gerst
í Noregi. - jh
Sjávarútvegsráðherra um áframhaldandi hvalveiðar:
Vill veiða hval til
að vernda þorsk
HREFNUVEIÐAR Allt að fimmtán prósent fæðu hrefnunnar eru þorskur og annar botnlægur fiskur.