Fréttablaðið - 05.04.2006, Síða 24

Fréttablaðið - 05.04.2006, Síða 24
MARKAÐURINN Óli Kristján Ármannsson skrifar Eftir samráð ríkisstjórnar og Seðlabanka hefur verið ákveðið að auka gjaldeyrisforða bank- ans á næstu misserum og bæta eiginfjárstöðu hans, væntanlega með erlendu lánsfé en ekki með gjaldeyriskaupum á markaði. Þeta kom fram í máli Davíðs Oddssonar, formanns banka- stjórnar Seðlabankans, á árs- fundi bankans. Davíð segir að með þessu sé horft til lengri framtíðar og breytinga sem séu að verða í alþjóðlegu efnahagslegu umhverfi, frek- ar en til tímabundins óróa nú. „Jafnframt hefur Seðlabankinn komið þeim tilmælum til fjár- málaráðuneytis og ríkisstjórnar að gert verði átak til að efla grunn íslenska skuldabréfamark- aðarins. Ríkissjóður er óvenju vel aflögufær um þessar mundir og skuldir hans lækka ár frá ári. Þótt hann þurfi ekki að sækja fé á markað er vel þekkt annars staðar frá að það kemur ekki í veg fyrir að ríkisskuldabréf séu hryggstykkið í virkum markaði. Ráðuneytið og ríkisstjórnin hafa tekið umleitunum bankans vel og eru þær nú í athugun,“ segir Davíð. Greiningardeild Glitnis banka segir ljóst að erlendir aðilar hafi margir hverjir horft til gjaldeyrisforðans að undan- förnu, til dæmis í hlutfalli við innflutningsverðmæti eða veltu á gjaldeyrismark- aði og þótt hlutfallið vera heldur lágt. „Gjaldeyrisforði Seðlabanka er nú nálægt 80 milljörðum króna, sem gróflega samsvarar þriggja mánaða verð- mæti vöruinnflutn- ings eða veltu tveggja stórra viðskiptadaga á gjaldeyrismarkaði,“ segir greiningar- deildin, en að auki hefur Seðlabankinn lánalínur hjá erlendum fjár- málastofnun- um sem grípa má til þegar gjaldeyrisforðanum sleppir. „Væntanleg aukning forðans er þó óháð þessum lánalínum og því styrkir hún bankann í því hlutverki að vera lánveitandi til þrautavara og/eða bregðast við miklum sviptingum í gengi krónu.“ Bankinn telur þó ólík- legt að gjaldeyrisforðinn verði aukinn á allra næstu dögum, „enda skilyrði Íslendinga á erlendum fjár- m a g n s m ö r k - uðum erfið, jafnvel þótt um ríkissjóð sé að ræða.“ Sumarafleysingar verða með minna móti hjá Útgerðarfélagi Akureyrar í sumar vegna fjög- urra vikna hlés á vinnslu í júlí- lok. Í frétt á vef Brims hf. er haft eftir Gunnari Vigfússyni, verk- stjóra hjá ÚA á Akureyri, að sem fyrr hafi verið töluverð ásókn í sumarafleysingavinnu hjá fyr- irtækinu. „Hins vegar er ljóst að sumarafleysingar verða með minna móti vegna þess að við gerum hlé á vinnslunni hjá okkur í fjórar vikur, frá 28. júlí,“ segir hann. Gunnar segir að þrátt fyrir að útgerðinni hafi að undan- förnu borist eilítið minna hrá- efni en venja hafi tekist að halda uppi fullri vinnslu, en skortur á aðföngum hefur helgast af slæmu veðri og brælu á miðun- um. Töluverð ýsuveiði hefur þó verið undanfarnar vikur, en sú veiði mun þó hafa dottið niður í brælum fyrir helgi. - óká 5. APRÍL 2006 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T I R Spænska tískuverslunarkeðjan Inditex, sem hefur meðal ann- ars verslunina Zöru innan sinna vébanda, hefur tekið fram úr Hennes & Mauritz sem stærsta fataverslunarkeðja Evrópu. Inditex seldi fyrir rúma 1.000 milljarða króna króna á síðasta reikningsári, sem lauk í janúar, samanborið við 975 milljarða veltu hinnar sænsku H&M. Vöxtur Ind itex var mikill á síðasta ári og opnaði félagið 448 nýjar verslanir. Inditex stefnir að því að opna 1.300 verslanir fyrir 2010 til viðbótar við þær 2.700 sem fyrir eru. Þrátt fyrir þetta skilaði H&M meiri hagnaði, um 85 milljörðum króna samanborið við 69 millj- arða hagnað spænska félagsins. Liggur munurinn í því að H&M er rótgrónara fyrirtæki, vex hægar og fjárfestir þar af leið- andi minna. - eþa H&M NÆSTSTÆRST Í EVRÓPU Inditex, sem rekur meðal annars Zara, velti meiri fjármunum en H&M á síðasta starfsári í fyrsta sinn. Zara slær H&M við Auka á gjaldeyris- forða Seðlabankans Bæta á eiginfjárstöðu Seðlabankans. Gjaldeyrisforði nemur nú um 80 milljörðum króna. Varla verður hann aukinn alveg á næstunni, enda skilyrði erfið á erlendum mörkuðum. Úrvalsvísitalan hækkaði um 6,5 prósent á fyrsta fjórðungi þrátt fyrir nokkrar lækkanir síðustu vikur. Í samhengi við lengra tímabil sést að hækkunin er nokkuð yfir meðaltalsársfjórð- ungshækkun. Í hálf fimm fréttum KB banka segir að samanborið við níu af síðustu 11 ársfjórðungum sé ávöxtun á fyrsta ársfjórðungi góð. Gengi margra félaga hafi hækkaði verulega frá áramótum en sjö félög í Úrvalsvísitölunni hækkuðu um meira en 10 prósent. Kögun hækkaði mest allra félaga á fjórðungnum en hækkunin nemur 22,7 prósentum, leiðrétt fyrir arðgreiðslum. Þar á eftir kemur Actavis, en gengi bréfa þeirra hækkaði um 19,7 prósent. Þá hækkuðu bréf FL Group um 18 prósent. Gengi bréfa í Flögu lækkaði mest á sama tímabili eða um 33,2 prósent. - jab Hækkun yfir meðaltali ÚR KAUPHÖLLINNI Gengi bréfa í Kögun hækkaði mest á fyrsta ársfjórðungi en gengi bréfa í Flögu lækkuðu mest. Greiningardeild KB banka telur í endurskoðaðri verðbólguspá sinni fyrir apríl að vísitala neysluverðs hækki um 0,85 prósent, sem er 0,1 prósentustigi hærra en fyrri spá. Gangi spá greiningardeild- arinnar eftir hækkar 12 mánaða verðbólga úr 4,5 prósentum í 5,1 prósent í næsta mánuði. Helsta ástæða hækkunarinnar er verðhækkun á eldsneyti, sem hefur hækkað um 9 krónur eða 8 prósent frá því í byrjun síðasta mánaðar. Í fyrri spá bankans var gert ráð fyrir 5 prósenta hækk- un. - jab Hærri verðbólguspá KRÓNA Hækkun eldsneytisverðs hafði töluverð áhrif á neysluvísitöluna. UPPSKIPUN Á AKUREYRI Brim hf. varð til árið 2004 með sameiningu Útgerðarfélags Akureyringa og Útgerðarfélagsins Tjalds. MARKAÐURINN/GVA Sumarafleysingar með minna móti ÚA gerir hlé á vinnslu í fjórar vikur í sumar. Síminn braut ekki samkeppnis- lög í kynningu á farsímaþjónustu á Akranesi, samkvæmt nýrri ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Í ákvörðuninni kemur fram að samkeppnisyfirvöldum hafi borist erindi frá Og Vodafone, þar sem því var haldið fram að Síminn hefði misnotað markaðs- ráðandi stöðu sína í tengslum við farsímaþjónustu. „Í málinu lá fyrir að Og Vodafone hafði boðið íbúum Akraness sérstakt kynningartilboð á farsímaþjón- ustu. Skömmu síðar kynnti Landssíminn íbúum Akraness til- boð á farsímaþjónustu.“ Samkeppniseftirlitið segir meðal annars að tilboð fyrirtækj- anna hafi verið að ýmsu leyti ólík og að ekki sé unnt að líta svo á að Síminn hafi með tilboði sínu undirboðið Og Vodafone. Samkeppniseftirlitið telur í ákvörðun sinni ekkert benda til þess að tilgangur tilboðs Símans hefði verið að þröngva Og Vodafone út af markaði fyrir farsímaþjónustu við einstaklinga heldur hefði umrætt tilboð verið þáttur í viðbrögðum fyrirtækis- ins við tilboði Og Vodafone. - óká HÖFUÐSTÖÐVAR SÍMANS Í ÁRMÚLA Í REYKJAVÍK Síminn braut ekki á Og Vodafone Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.