Fréttablaðið - 05.04.2006, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 05.04.2006, Qupperneq 30
MARKAÐURINN 5. APRÍL 2006 MIÐVIKUDAGUR10 F R É T T A S K Ý R I N G Allt bendir til þess að yfir 31 milljarðs króna arður streymi til hluthafa stærstu félaganna í Kauphöllinni á fyrri hluta ársins. Þrátt fyrir að nokkur stór félög hafi verið skráð af markaði er umtals- verð aukning á arðgreiðslum milli ára. Á síðasta ári námu arðgreiðslur hjá sömu félögum um fimmtán milljörðum króna. Það eru einkum hluthafar í fjármálafyrir- tækjum og fjárfestingafélögum sem njóta góðs af hækkandi arðgreiðslum en flest þessara félaga skiluðu methagnaði. VÖXTUR Í ARÐGREIÐSLUM Almennt eru sérfræðingar á markaði þeirrar skoðunar að arðgreiðslur hafi verið lágar hjá íslenskum fyrirtækjum og raunarður lítill í samanburði við erlenda hlutabréfamarkaði. Hefðin fyrir að greiða út arð hefur verið tiltölulega lítil hér á Íslandi því menn hafa litið svo á að arður væri betur geymdur inni hjá fyrirtækjum með tilliti til frekar fjárfestinga. “Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að félög eigi að borga myndarlegan arð og tel að 20-40 prósent af hagnaði ætti að vera greiddur til eigenda. Jafnvel þó að stjórnendur félaga þurfi að sækja nýtt fé á komandi ári. Það væri þá ákvörðun hluthafans hvort hann ætti að leggja inn meira fé,” segir Jafet Ólafsson, forstjóri VBS Fjárfestingarbanka. Jafet telur að raunarður sé í lægri kantinum á Íslandi. Erlendis tíðkist það að fyrirtæki greiði út aukaarð þegar mjög vel hefur árað, til dæmis við sölu á fyr- irtækjum. “Ég man bara eftir einu svona tilviki á Íslandi þegar Baugur, sem þá var á markaði, greiddi út aukaarð fyrir Arcadia.” Þórður Pálsson, forstöðumaður grein- ingardeildar KB banka, telur að eftirspurn eftir arði sé að aukast. Stór hópur, eins og langtímafjárfestar, vilji hafa einhverjar tekjur af hlutabréfum sínum. “Þá hafa menn verið að ráðast í mörg, spennandi verkefni annars staðar og vilja þar af leið- andi fá tekjur af þessum fjárfestingum, sem þeir eiga nú þegar, til að geta ráðist í frekari fjárfestingar. Svo geta þeir sem eru skuldsettir vegna hlutabréfakaupa notað arð til að létta á þeim skuldum.” Það kann að skýra lágar arðgreiðslur að stórir fjárfestar hafa ekki gert miklar kröfur í þeim efnum. Tryggvi Tryggvason, forstöðumaður eignastýringar hjá Gildi lífeyrissjóði, segir að það breyti í sjálfu sér ekki miklu fyrir greiðsluflæði Gildis hvort fyrirtæki, sem sjóðurinn fjárfesti í, greiði arð. Lífeyrissjóðirnir eru tiltölu- lega ungir og eru með töluvert innstreymi umfram útstreymi. “Við lítum á fjárfest- ingu í hlutabréfum sem langtímafjárfest- ingu sem skila mun arði til lengri tíma. Litið. Arðgreiðslurnar ber hinsvegar að hafa í huga við verðmat fyrirtækja. Varðandi greiðsluflæði þá breytir þetta ekki miklu því við höfum yfir að ráða miklum fjármunum, iðgjöldum og afborg- unum af lánum.” Ef lífeyrisgreiðslurnar væru íþyngjandi þá myndu arðgreiðslur kannski skipta máli að sögn Tryggva. BAKKAVÖR BREYTIR ÚT AF VANANUM Almennt bera auknu arðgreiðslur merki um heilbrigði og jákvæða þróun að mati Þórðar Pálssonar. “Það er ánægjulegt að sjá að fyrirtækin geta greitt út þennan arð. Ég held að það þurfi ekkert nauðsyn- lega að koma niður á vaxtarmöguleikum þessara fyrirtækja.” Bakkavör er gott dæmi um íslenskt fyrirtæki sem hefur nýtt hagnað til áframhaldandi uppbyggingar í stað þess að greiða hann út til hluthafa. Þó varð breyting á þessu ári þegar hluthafar sam- þykktu tillögu stjórnar um greiðslu 25 pró- senta arðs af nafnvirði hlutafjár. Þórður telur það afar jákvætt að fyrirtæki sem Bakkavör skuli bæði geta skapað mikinn vöxt í fyrirtækinu og greitt hluthöfum sínum arð. “Satt best að segja kom það mér á óvart að fyrirtæki, sem er nýbúið að taka jafnstór lán, skuli geta greitt út svona myndarlegan arð. Ég held að það sýni mikinn styrk þessa fyrirtækis og sé skýrt merki um að það ráði vel við að greiða af þeim lánum.” Síminn er hins vegar öfugt dæmi við Bakkavör. Á meðan félagið var að mestu leyti í eigu ríkissjóðs var hár arður greiddur út úr því og fengu hluthafar til dæmis 5,7 milljarða arð fyrir árið 2004. Á aðalfundi Símans á dögunum var hins vegar lagt til að ekki yrði greiddur arður fyrir árið 2005 sem sýnir hvernig áhersl- ur nýrra eigenda, um hvernig beri að hámarka arðsemi félagsins, hafa breyst. Hafa eigendur Símans boðað útrás og vöxt. Jafet segir að arðgreiðsla hafi ekki allt- af áhrif á verðmæti félaga eins og raunin ætti að vera. Sá sem kaupir hlutabréf eftir ákvörðun arðs á aðalfundi ætti að kaupa bréfin á lægra gengi en oft breytist það ekkert. Við 20-40 prósenta arðgreiðslu ætti gengi félaganna að lækka um 20-40 punkta. “Við þekkjum fjölmörg dæmi um það hversu markaðurinn getur verið óskil- virkur en þetta hefur þó skánað mikið á seinni árum.” Þótt Jafet nefni ekkert félag í þessum efnum var það alþekkt aðferð fjárfesta á sínum tíma að kaupa bréf í Íslandsbanka fyrir aðalfund, taka til sín arð og selja bréfin svo eftir aðalfund, án þess að gengið lækkaði. INNFLYTJANDUM SKEMMT Viðmælendur Markaðarins eru sammála að flest fyrirtæki hafi skýra arðgreiðslu- stefnu og hún liggi nokkuð ljóst fyrir. “Það hefur mátt marka það þannig að hluthafar séu sæmilega ánægðir með þá stefnu með þeim hætti að þessir hlutir eru ekki mikið ræddir á hluthafafundum,” segir Þórður. Jafet bendir á að mörg félög hafi sett sér mjög markvissa arðgreiðslustefnu um að greiða allt að 40 prósent af hagnaðinum út. “Ég held að það sé mjög gott fyrir hluthafa að ganga að því vísu hvað þeir fá mikið greitt út. Við hjá VBS Fjárfestingarbanka höfum alltaf lagt á það áherslu að greiða út arð og gerum það meira að segja sam- dægurs.” Arðgreiðslustefna KB banka hljóðar upp á að 10-30 prósent hagnaðar skuli greiddur út til hluthafa en hlutfalllið er 30-40 prósent í tilviki FL Group og Glitnis. Stefna Straums í þessum efnum hljóðar svo að tekið sé mið af hagnaði ársins sem og fjármagnsþörf bankans á hverjum tíma. Mörg fyrirtæki greiða ekki út arð í ár, annaðhvort telja þau sig þurfa á öllum sínum peningum að halda við frekari vöxt eða þá að þau skiluðu tapi og geta því ekki umbunað hluthöfum sínum. Stærstu arðgreiðslurnar til einstakra fjárfesta í ár renna til Exista, stærsta hluthafans í KB banka, annars vegar og hins vegar til Samsonar, stærsta hluthaf- ans í Landsbankanum, sem fengu hvort um sig 1,2 milljarða króna í arð. Glitnir bauð sínum hluthöfum upp á að þiggja helming arðsins í formi hlutabréfa og gengu 85 prósent þeirra bréfa, sem í boði voru, út. Straumur greiddi fimm milljarða út í formi hlutabréfa í Avion Group, 1.329 milljónir í peningum og 350 milljónir í bréfum Icelandic Group sem vakti furðu margra. “Eina klúðrið með arðgreiðslur í ár var að senda mönnum þetta lítilræði af hlutabréfum í Icelandic. Mér finnst þetta hálfgerður brandari að senda mönnum einhverja þúsundkalla. Þetta er bara gert til að skemmta pappírsinnflytjandanum,” segir Jafet Ólafsson að lokum. HLUTHAFAFUNDUR Fyrirtæki hafa fremur kosið að nýta hagnað til frekari fjárfestinga og vaxtar en að greiða hann út til hluthafa. Með auknum hagnaði stærstu fyrirtækjanna hafa arðgreiðslur farið mjög hækkandi og námu yfir 31 milljarði á síðasta ári. MARKAÐURINN/VALLI Græddur er fenginn arður Hluthafar í stærstu fyrirtækjunum í Kauphöllinni fá yfir 31 milljarð króna í arð fyrir síðasta ár. Sérfræðingar eru sammála um að arðgreiðslur hafi verið lágar á Íslandi, enda hafi hagnaður runnið til frekari fjárfestinga, en þær fari nú ört vaxandi. Auk þess hefur arðgreiðslustefna fyrirtækja orðið skýrari eins og Eggert Þór Aðalsteinsson komst að raun um. A R Ð G R E I Ð S L U R Ú R V A L S V Í S I T Ö L U F É L A G A O G S T Æ R S T U F É L A G A ( Í M I L L J Ó N U M K R Ó N A ) Félag Arður Hlutfall Arður 2005 af hagnaði 2004 Straumur 6.679 25% 1.887 KB banki 6.646 14% 3.298 FL Group 6.034 35% 1.466 Glitnir 5.371 28% 4.525 Landsbanki 3.306 13% 1.577 TM 1.809 25% 906 Atorka Group 1.012 79% 819 Bakkavör 404 11% 0 HB Grandi 204 * 37% 256 Kögun 77 12% 58 Marel 48 9% 48 Actavis 0 0% 284 Avion Group 0 0% 0 Alfesca 0 0% 0 Dagsbrún 0 0% 0% Össur 0 0% 0 Icelandic Group 0 0% 144 Össur 0 0% 0 Mosaic Fashions Liggur ekki fyrir 0 Alls 31.590 15.268 * Tillaga fyrir aðalfund
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.