Fréttablaðið - 05.04.2006, Síða 33

Fréttablaðið - 05.04.2006, Síða 33
MARKAÐURINN 13MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2006 Ú T T E K T Seðlabankinn boðar að tímabundið hægi á hagvexti Í Peningamálum Seðlabanka Íslands er sagt að tímabundinn samdráttur kunni að verða fylgifiskur aðgerða til að ná tökum á verðbólgu. Krónan hefur ekki styrkst líkt og búist var við eftir 75 punkta stýrivaxtahækkun bankans fyrir helgi. Óli Kristján Ármannsson kynnti sér umræðu um horfur í efnahagsmálum þjóðarinnar. HLAUPINN ÞÚSUNDKALL Fólk hefur minna á milli handanna gangi eftir spár um aukna verðbólgu um leið og vextir í landinu hækka. Markaðurinn/Teitur lífinu. „Verkefni bankans er naumast að kalla fram samdrátt í efnahagslífinu. Verkefnið er að hægja á og að helstu þættir hagstjórnar styðji heildstætt við verðbólgumarkmiðið. Bankinn hlýtur að vera að senda ríkisvaldinu skilaboð um að rifa seglin áður en stýri- vextir fara upp úr öllu valdi meira en orðið er,“ segir hann og telur þörf á að staldra við og meta hér heildstætt samhengið í hag- stjórninni. „Allt þarf þetta skoða í ljósi þess að stýrivextir hér eru komnir algjörlega úr samhengi við stýrivexti í heiminum, en þeir eru 4,5 prósent í Bandaríkjunum og 2,5 pró- sent á evrusvæðinu.“ Hann segir ýmsa hafa bent á að hér ríki misvægi í hagstjórn sem birtist í að Seðlabankinn berjist nánast einn gegn verðbólgu meðan aðrir opinberir aðilar virðist láta sér fátt um finnast. „Það hlýtur að verða að íhuga stöðu opinberra útgjalda og framkvæmda. Eins þarf að íhuga ábyrgð gagnvart því að kynda undir væntingum sem gegna mikilvægu hlutverki í efnahags- lífinu,“ segir hann. Ólafur bendir á að vegna komandi sveitarstjórnarkosninga standi nú sveitarstjórnarmenn frammi fyrir miklum freistingum og verði að gæta sín sérstaklega. „Þarflegt væri að hafa hugfast að engin þjón- usta sem sveitarfélögin veita er í eðli sínu gjaldfrjáls, heldur kallar hún á samdrátt á öðrum sviðum eða hærri skatta.“ Ólafur segir að gæta þurfi að samheng- inu í opinberum ákvörðunum. „Á sama tíma og ríkið stofnar til mikilla framkvæmda og útgjalda hafa ítrekaðar stýrivaxtahækkanir Seðlabankans leitt af sér verulegan vaxtamun gagnvart útlöndum, hækkandi gengi lengst af og þungar byrðar á útflutningsatvinnuvegi og sprotagreinar. En um leið hefur þetta háa gengi og miklar framkvæmdir leitt af sér viðskiptahalla sem víðast myndi teljast óvið- unandi og sem kann að rýra traust á íslensku efnahagslífi.“ Þessa stöðu segir hann virðast hafa verið, ásamt ríkjandi stefnuviðhorfi í ríkisfjármálum, mikilvæga ástæðu þess að matsfyrirtækið Fitch setti spurningarmerki við lánshæfismat ríkisins í febrúar síðast- liðnum. ÞJÓÐ Á NEYSLU- OG FJÁRFESTINGARFLUGI Þrátt fyrir að blikur kunni að vera á lofti taldi Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í ræðu sem hann hélt á ársfundi Seðlabankans stöðu efnahagsmála vera trausta, eins og hún blasti við um þessar mundir. „Afkoma fyrirtækja í flestum helstu atvinnugreinum er góð og fer batnandi og staða útflutnings-, samkeppnis- og hátæknigreina hefur styrkst verulega með þeirri gengisaðlögun sem orðið hefur að und- anförnu,“ segir hann og telur um leið ástæðu til að gleðjast yfir efnahagslegri velferð und- angenginna ára. Þar benti hann meðal annars á að frá árinu 1995 hafi hagvöxtur verið yfir 60 prósent sem jafngildi um 4,5 prósenta hagvexti á ári hverju allt tímabilið. „Slíkur hagvöxtur er nær einsdæmi í okkar sam- keppnislöndum,“ segir hann og bendir á að um leið hafi kaupmáttur heimilanna aukist um meira en 60 prósent, sem þekkist hvergi í nágrannaríkjum okkar. „Skuldir ríkissjóðs hafa enn fremur minnkað verulega og eru nú óvíða minni en hér á landi, eða sem nemur um 7,5 prósentum af landsframleiðslu í árslok 2005. Sambærileg tala árið 1995 var 35 pró- sent af landsframleiðslu.“ Halldór segir lengi hafa legið fyrir að aukinn hagvöxtur sem rekja megi til mikillar uppbyggingar skapaði spennu í efnahags- lífinu og kallaði á aðhaldssamar aðgerðir í peninga- og ríkisfjármálum. „Til þeirra hefur líka verið gripið með myndarlegum hætti. Engu að síður sýndu spár stjórnvalda að búast mætti við aukinni verðbólgu og miklum viðskiptahalla, sérstaklega á árunum 2005 og 2006. Það hefur þess vegna ekki komið á óvart að verðbólgan hafi aukist og viðskipta- hallinn sömuleiðis.“ Hann segir þó hafa komið á óvart hversu mikið viðskipta- halli hafi aukist en rekur þá hækkun til aukinnar einkaneyslu heimilanna. Hana rekur hann til breyt- inga á lánamarkaði og end- urfjármögnunar húsnæðis- lána heimilanna sem leitt hafi til þess að þjóðin hafi farið á mikið neyslu- og fjárfestingarflug. „Þetta á reyndar ekki bara við um heimilin í landinu því að bæði fyrirtæki og sveit- arfélög hafa ráðist í mikl- ar framkvæmdir og fjár- festingar á undanförnum tveimur árum. Mér finnst mikilvægt að halda því til haga að á sama tíma og þessi þróun átti sér stað hefur ríkið haldið að sér höndum og fjárfesting- ar ríkisins dregist mikið saman. Þetta var meðvit- uð ákvörðun ríkisstjórnar- innar til að halda aftur af innlendri eftirspurn eftir fremsta megni án þess að þurfa að snerta við mik- ilvæga þætti velferðar- þjónustunnar,“ segir hann en kveður vissulega hafa reynt á þolrif íslenskrar hagstjórnar. „Um það er ekki deilt. Það sem mestu skiptir er að allar spár, ekki einungis frá íslensk- um stjórnvöldum heldur ekki síður frá OECD og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum auk matsfyrir- tækjanna, eru samhljóða um að viðskiptahall- inn minnki verulega þegar stórframkvæmd- unum lýkur.“ Greiningardeild Kaupþings banka hefur endurskoðað og hækkað verðbólguspá sína fyrir aprílmán- uð. Spáin hljóðar nú upp á 0,85 prósenta hækkun vísitölu neyslu- verðs sem er um 0,1 prósentustigs hækkun frá fyrri spá. „Ef spáin gengur eftir fer 12 mánaða verð- bólga úr 4,5 prósentum upp í 5,1 prósent í næsta mánuði,“ segir bankinn og kveður ástæðu hækk- unarinnar fyrst og fremst liggja í meiri hækkun eldsneytisverðs, en það hefur hækkað um 9 krón- ur eða 8 prósent frá því í byrjun mars. Í fyrri spá var gert ráð fyrir 5 prósenta hækkun. Þá gerir greiningardeildin ráð fyrir heldur meiri hækkun á matvöru en áður. „En gengi krónunnar hefur veikst um 5 prósent síðan fyrri spá var gefin út sem hefur ýtt upp elds- neytis- og matvælaverði.“ Verðbólga upp fyrir fimm prósent DAVÍÐ ODDSSON Davíð, sem er formaður bankastjórnar Seðlabankans, fór yfir horfur í efnahagsmálum í ræðu á ársfundi bankans fyrir helgi. MARKAÐURINN/STEFÁN „Afkoma fyrir- tækja í flestum helstu atvinnu- greinum er góð og fer batnandi og staða útflutnings-, samkeppnis- og hátæknigreina hefur styrkst veru- lega með þeirri gengisaðlögun sem orðið hefur að undanförnu,“ segir forsætisráð- herra ... „Skuldir ríkissjóðs hafa enn fremur minnkað verulega og eru nú óvíða minni en hér á landi, eða sem nemur um 7,5 prósentum af landsframleiðslu í árslok 2005. Sambærileg tala árið 1995 var 35 prósent af lands- framleiðslu.“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.