Fréttablaðið - 05.04.2006, Side 53

Fréttablaðið - 05.04.2006, Side 53
Paris Hilton tjáir sig á mjög opin- skáan hátt um samband sitt við Nicole Richie í nýjasta hefti Elle. Slúðurblöð beggja vegna Atlants- hafsins voru fyrir nokkru uppfull af fréttum um ósætti þeirra á milli en þær stöllur höfðu slegið í gegn með þættinum Simple Life. Sam- kvæmt viðtalinu ætlar Paris aldrei að tala við fyrrum vinkonu sína aftur. „Nicole þolir ekki að vera í kringum mig vegna þess að ég fæ alla athyglina,“ útskýrir Hilton. „Þetta er vissulega sárt því Richie var mér sem systir,“ bætti Hilton við og sagði hana vera yndislega manneskju. „Frægðin hefur hins vegar stigið henni til höfuðs.“ Hilton segir að hún vonist til þess að framleiðendur þáttanna um hið einfalda líf láti af því að ráða Nicole enda telur hún sig hafa öruggar heimildir fyrir því að þeir vilji gera þáttinn eingöngu með sér. „Þættirnir eru það eina sem hún á að þannig að það nánast ógjörningur,“ bætti Hilton við. Fyrir þá sem vilja kynna sér enn frekar hvað Hilton hafði að segja um þessa æskuvinkonu sína ættu að geta séð það á morgun en þá kemur Elle-blaðið út. Hilton ósátt við Richie PARIS HILTON Segist aldrei ætla að tala við vinkonu sína Nicole Richie aftur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Köntrísveit Baggalúts heldur til Rússlands nú í apríl og verður athyglisvert að sjá hvernig íslenskt köntrí leggst í Rússana. „Við í Hjálmum fórum til Rússlands í fyrra og þetta er skemmtilegur staður að heimsækja. Við héldum sambandi við kontaktaðila og höfum verið að senda þeim íslenska tónlist. Ákváðum að lokum að fara með Köntrísveit Baggalúts þangað út og halda tvenna tónleika. Við ætlum svo að gera heimildarmynd um ferðalagið.“ - bg Baggalútur til Rússlands KÖNTRÍSVEIT BAGGALÚTS Hljómsveitin heldur til Rússlands á næstunni og spilar þar af sinni alkunnu snilld. MIÐVIKUDAGUR 5. apríl 2006 53 Söngkonan unga Katie Melua tróð upp fyrir fullri Laugardalshöll á föstudaginn og er óhætt að segja að hún hafi heillað mannskapinn upp úr skónum. Stúlkan nýtur mikilla vinsælda á Íslandi og selur tónlist sína eins og heitar lummur. Þeir Höskuldur Höskuldsson, útgáfustjóri Katie Melua á Íslandi, og Björn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Senu, notuði því tækifærið í Höllinni og afhentu henni gullplötu fyrir árangurinn. Katie lék á als oddi þegar Björn og Höskuldur færðu henni gull- plötuna enda hafði hún ekki ástæðu til annars en kætast þar sem húsfyllirinn og sölutölurnar tóku af öll tvímæli um að hún hefur með söng sínum lagt fjöl- marga Íslendinga að fótum sér. ■ Gull fyrir Katie Melua KATIE MELUA Var í sjöunda himni þegar hún tók við gullplötunni sinni á föstudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA 1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.