Fréttablaðið - 05.04.2006, Side 55
FRÉTTIR AF FÓLKI
Tom Jones hefur verið varaður við að fara í fleiri lýtaaðgerðir en þetta
kemur fram í viðtali við kappann í The
Daily Mirror. Söngvarinn hitti lækni í
Beverly Hills sem ráðlagði honum að
reyna að leyfa náttúrunni að
vinna sitt verk. „Hann lagði
hart að mér að fara ekki í
fleiri aðgerðir,“ sagði söngv-
arinn en augu hans eru
í mikilli hættu vegna
tíðra ferða undir hníf-
inn.
Þá
viðurkenndi nærbuxnaþjóf-
urinn að hár hans og skegg
væri allt litað. „Auðvitað,
annars væri ég gráhærðari en
jólasveinninn.“
Jessica Simpson mun leika í kvikmynd
sem byggð verður á
Baywatch-þáttunum
en þokkagyðjan
fær að sjálfsögðu
að spranga um í
rauðum sundbol á
ströndinni.
Sam-
kvæmt
götublað-
inu The Sun féllu framleiðendurnir fyrir
„leikhæfileikum“ Simpson í Dukes of
Hazzard en söngkonan komst með
frammistöðu sinni efst á óskalist-
ann hjá þeim. Sjónvarpsþáttaröðin
sló í gegn á tíunda áratug síðustu
aldar og áttu sílíkonbomburnar
Pamela Anderson og Carmen
Electra stóran þátt í vinsæld-
um þeirra. „Jessica hefur allt til
brunns að bera,“ sagði heimild-
armaður The Sun.
Michael Douglas er ekki par
hrifinn af svoköll-
uðum metrósexual
mönnum, sem hann
segir að líti út fyrir að vera konur.
Douglas hvetur karlmenn til að
enduruppgötva karlmennsku sína og
hrýs hugur við snyrtivörum handa
körlum. Mörgum hefur
þótt þessar yfirlýsingar
bera vott um öfund í
garð yngri manna enda
leikarinn kominn vel yfir
sitt besta en Douglas
segir það alls ekki vera,
karlmennskan sé
því miður bara
á undanhaldi.
„Ungir menn
horfa upp til
mín og vilja ná
frama eins og
ég sem er allt gott og blessað. Um
leið og þeir hins vegar kalla mig
herra Douglas segi ég þeim að loka
þverrifunni,“ sagði leikarinn.
Leikkonan íðilfagra Jessica Biel hefur samþykkt að
koma fram í síðasta þætti 7th
Heaven sem sýndur verður í maí.
Biel, sem hefur verið önnum
kafin við kvikmyndaferil sinn
og lék meðal annars í hasar-
myndinni Stealth, leikur elstu
dótturina, Mary Camden. Þátt-
urinn fjallar um brúðkaup eins
fjölskyldumeðlimsins en þættirnir
ljúka þar með göngu sinni eftir
tíu vel heppnuð ár.