Fréttablaðið - 01.05.2006, Page 65

Fréttablaðið - 01.05.2006, Page 65
– Vel lesið! Dagblaðasafnið hefur að geyma öll tölublöð af Vísi, Dagblaðinu, DV, Þjóðviljanum, Tímanum og Morgunblaðinu frá síðustu öld; vandlega innbundin í alls 2000 bækur. Safnið var áður í eigu og vörslu Sveins R. Eyjólfssonar útgefanda og var óum- deilanlega stærsta og verðmætasta dagblaðasafn í einkaeign. Um áratugaskeið vann Sveinn ötult og ómetanlegt starf við uppbyggingu safnsins. Blöðunum safnaði hann frá 1960 og er uppistaðan í safninu sögufrægt dagblaðasafn Böðvars Kvarans. Ólafur Ottósson sá um að binda safnið í vandað band en hann starfaði lengi sem bókbindari á Landsbókasafninu. Í tilefni af fimm ára afmælinu færa 365, útgefendur Fréttablaðsins, Landsbókasafni Íslands og þjóðinni allri stærsta dagblaðasafn á Íslandi sem hefur að geyma öll eintök af Dagblaðinu, Vísi, DV, Þjóðviljanum, Tímanum og Morgunblaðinu frá síðustu öld. Safnið verður öllum að- gengilegt án endurgjalds, jafnt á Landsbókasafninu sem á vefnum. Gjöfinni fylgir einnig fé til reksturs og úrvinnslu safnsins næstu fjögur ár. Þríburarnir Kári, Logi og Máni eru nýorðnir fimm ára og við erum stolt af því að eiga sama afmælisdag og þeir! F í t o n / S Í A Starfsfólk Fréttablaðsins þakkar þjóðinni fyrir einstakar móttökur og samfylgd síðustu fimm ár.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.