Fréttablaðið - 01.05.2006, Síða 66

Fréttablaðið - 01.05.2006, Síða 66
 1. maí 2006 MÁNUDAGUR Listasafn Íslands fyrirhugar sýningu á næsta ári á verkum listmálarans Ásgríms Jónssonar (1876-1958). Vegna undirbúnings sýningarinnar óskar safnið eftir upplýsingum um listaverk eftir listamanninn, sem til eru í einkaeigu. Eigendur listaverka eru beðnir um að hafa samband við Þóru Sigurbjörnsdóttur, í síma 515-9606 eða með tölvupósti til bokasafn@listasafn.is LISTAVERK Í EINKAEIGU VIÐTALIÐ eftir Lailu Margréti Arnþórsdóttur og Margréti Pétursdóttur laugardagur 6. maí allra síðasta sýning Kl. 13.30 Kröfuganga ASÍ fer frá Hlemmi en Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðra- sveitin Svanur leika fyrir göngu. Gengið verður niður Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og inn á Ingólfstorg. Útifundur hefst á Ingólfstorgi kl. 14.10. > Ekki missa af... Myndlistarsýningu Snorra Ásmundssonar, Orkuflámar, á Næsta bar í Ingólfsstræti. Leikritinu Fullkomið brúðkaup sem flakkar tímabundið frá Leikfélagi Akureyrar á svið Borg- arleikhússins í tilefni af Hláturtíð Leikfélags Reykjavíkur. Aukasýningum á einleiknum Ég er mín eigin kona í Iðnó. Örfáar aukasýningar verða í maímán- uði. Óperukór Hafnarfjarðar mun fagna söngafmæli kórstjóra síns, Elínar Óskar Óskarsdóttur, með tilþrifum um næstu helgi. Elín Ósk stofnaði kórinn árið 2000 en hann telur nú um sjötíu kórfélaga sem munu hylla stýru sína á tut- tugu ára söngafmæli hennar með fjölbreyttum tónleikum. Elín Ósk er ein ástsælasta söngkona landsins og á tónleikun- um á laugardaginn kemur hún fram ásamt fleiri góðum gestum en félagar úr Karlakórnum Stefni, og einsöngvararnir Berg- þór Pálsson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Kjartan Ólafsson og Þorgeir J. Andrésson munu syngja ásamt henni og kórnum. Kynnir verður Jóhann Sigurðar- son leikari en stjórnandi Kurt Kopecky. Eins og nafnið gefur til kynna hefur kórinn nær eingöngu flutt óperu- og óperettutónlist eftir hin ýmsu tónskáld og á dagskrá tón- leikanna verða til að mynda fluttir valdir hlutar út óperum Verdis, Tosca og Il Trovatore, Þrymskviðu og Galdra-Lofti eftir Jón Ásgeirs- son og Perluköfurunum eftir Bizet. Tónleikarnir fara fram í Lang- holtskirkju kl. 16 laugardaginn 6. maí og verða miðar seldir við inn- ganginn. - khh Óskatónar og afmæliskveðjur ÓPERUKÓR HAFNARFJARÐAR Á TÓNLEIKUM Í BÚLGARÍU Fjölbreytt efnisskrá verður á afmælistónleikum Elínar Óskar Óskarsdóttur um helgina. ! menning@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.