Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.05.2006, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 18.05.2006, Qupperneq 18
 18. maí 2006 FIMMTUDAGUR18 fréttir og fróðleikur Í fyrradag, um hálfri öld eftir að Wilson mælti hin fleygu orð, komu fulltrúar þessa sama fyrirtækis til Íslands með nýjan vetnisbíl, sem ásamt öðrum svipuðum til- raunabílum getur markað upphaf- ið að yfirbót allsnægtasamfélag- anna vegna skefjalausrar loftmengunar bílaflota heimsins undanfarin 100 ár. Það sem er gott fyrir General Motors gæti að þessu sinni orðið gott fyrir heims- byggðina alla. Háborin alvara Trúir yfirstjórn General Motors því að framtíðin felist í vetni sem orkugjafa samgöngutækjanna? „Já, hiklaust,“ segir Britta Gross, yfirmaður markaðsþróun- arsviðs fyrir vetnisbíla General Motors, í samtali við Fréttablaðið. „Fyrir okkur eru vetnisknúnir bílar háborin alvara. Við trúum á framtíð þeirra enda hefur General Motors varið um sjötíu milljörðum króna til þróunar vetnisbíla á und- anförnum tíu árum. Við erum harð- ákveðin í að fara fremst í flokki í þessari þróun.“ Einn helsti vandi vetnistækninnar hefur falist í geymslu þessa rokgjarna elds- neytis og dreifingu þess. Ekki er heldur vitað enn hvort eða hvenær verð á vetni verður samkeppnis- hæft við dísilolíu og bensín. „Ég er að vísu ekki sammála því að þetta sé svo mikil hindrun lengur,“ segir Britta. Enn eru ögrandi verkefni fyrir hendi við þróun ökutækisins. Við höfum þróað eldsneytistank sem nægir fyrir allt að 450 kíló- metra akstur, en það er samkeppn- ishæft við núverandi olíu- og bens- ínbíla. Vetni er auk þess notað í gríðarlegu magni í margvíslegum iðnaði og okkar verkefni er að gera það aðgengilegt almennum neyt- endum með smásöludreifingu. Þetta er ákveðið þróunarstarf sem snertir tækni áfyllingarstöðva og kostnað við dreifingu eldsneytis- ins,“ segir Britta. Tilraunastofan Ísland Vart þarf að taka fram að útblástur þeirra vetnisknúnu strætisvagna, sem nú þegar aka um götur Reykja- víkurborgar, er einungis vatnsgufa og skaðlaus með öllu. NýOrka hefur í samstarfi við aðra aðila unnið að rannsókn og kynningu á nýtingu vetnis sem eldsneytis. Félagið hefur sett sig í samband við helstu bifreiðaframleiðendur heims. Þeirra á meðal er General Motors sem sett hefur sér það markmið að framleiða vetnisbíla eftir fimm til sjö ár í samkeppni við hefðbundna bíla að því er varðar drægni, kostn- að og endingartíma. „Stefna stjórnvalda varðandi vistvæna orkugjafa með nýtingu jarðvarma og vatnsafls og síðan notkun þeirrar orku til að fram- leiða vetni vekur athygli. Þessi skilyrði er hvergi að finna nema hér á landi ennþá,“ segir Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri NýOrku. „General Motors sér fyrir sér að hér á landi og á öðrum lykilsvæðum í heiminum verði hægt að framleiða vetni fyrir þessa bíla með mjög skömmum fyrirvara. Margir halda fram að dreifing vetnis og þjónusta við vetnisbílaeigendur verði ekki til- búin þegar vetnisbíll GM fer á markað. En GM einskorðar sig ekki við vetnið heldur framleiðslu einnig á öðru eldsneyti. Þeir horfa til náttúrulegra orkulinda hér og vetnisframleiðslu með stuttum fyrirvara. Þetta eru þeir að kynna fjölmiðlum frá mörgum þjóðum og kjósa að gera það hér á landi.“ Skattaívilnun í fyrstu Jón Björn segir að til skoðunar séu áfyllingarstöðvar sem geti þjónað allt að 2.500 bílum, en það er svip- að og hefðbundnar bensínstöðvar afkasta. „Við gætum verið nálægt því að vera samkeppnishæf við bensín innan tveggja til þriggja ára miðað við núverandi forsend- ur. Ef olíuverð heldur áfram að hækka verður þetta enn fýsilegra. Þess ber að geta að við tökum ekki vegaskatt og önnur opinber gjöld inn í vetnsiverðið. Við teljum mjög mikilvægt að stjórnvöld leggi ekki slíkan skatt á vetniseldsneyti strax frá upphafi. Þess í stað leggist hann á hægt og rólega þegar efna- hagsforsendur vetnistækninnar verða betri. Svo má ekki gleyma menguninni. þar liggur sparnaður. Við spörum gjaldeyri og aukum öryggi þjóðarinnar ef okkur tekst að skipta út olíu og bensíni fyrir vetni. Í þessu liggja ómetanaleg verðmæti,“ segir Jón Björn. Íslensk söfn í mikilli sókn Þjóðminjasafn Íslands fékk á dögun- um viðurkenningu fyrir framúrskar- andi árangur frá Evrópuráði safna. Viðurkenningin skiptir miklu máli fyrir safnalíf á Íslandi og þá sem starfa við menningarlíf hér á landi. Þessi viðurkenning kemur á sama tíma og safnamál hafa verið mikið til umræðu og sitt sýnist hverjum um þróun þeirra mála og þær hugmyndir sem settar hafa verið fram. Margrét Hallgríms- dóttir er þjóðminjavörður. Hver er staða íslenskra safnamála? Íslensk söfn eru í mikilli sókn. Afar fjölbreytt og vandað safnstarf er víða, en huga þarf markvisst að því að byggt sé á faglegum grunni og raunveruleg- um gildum. Er mögulegt að gera Þjóðminja- safnið enn betra? Já, að sjálfsögðu. Þjóðminjasafnið er í stöðugri uppbyggingu og endalaust verður hægt að bæta það eins og annað. Er raunhæft að íslenskir safna- menn horfi til ykkar við uppbygg- ingu sinna safna? Já, það gera söfn á landinu, enda Þjóðminjasafnið höfuðsafn á sviði þjóðminjavörslu. Það er því faglegur leiðtogi allra minjasafna í landinu og ætti að vera uppbyggingu annarra safna fyrirmynd og viðmið. SPURT & SVARAÐ SAFNAMÁL MARGRÉT HALLGRÍMSDÓTTIR Þjóðminjavörður „Það sem er gott fyrir General Motors er gott fyrir Banda- ríkin öll.“ Þannig tók Charlie Wilson, stjórnarformaður GM, til orða þegar hann var kallaður fyrir nefnd á vegum bandaríska þingsins fyrir réttri hálfri öld þar sem fjallað var um stærð fyrirtækja og einokunarhneigðir. JÓN BJÖRN SKÚLASON FRAMKVÆMDA- STJÓRI ÍSLENSKRAR NÝORKU Mikilvægt er að álögur verði sem minnstar á vetniselds- neytið fyrstu árin að mati Jóns Björns. BRITTA GROSS HJÁ GENERAL MOTORS Þegar markaður er orðinn fyrir að minnsta kosti 500 þúsund GM vetnisbíla á ári verður hagkvæmt að framleiða þá. Hægfara bylting til bóta FRÉTTASKÝRING JÓHANN HAUKSSON jóhannh@frettabladid.is Svona erum við > Íslenskir stúdentar við nám í Danmörku: 2000 2002 2003 Fj öl di 2001 2004 10 02 55 5 59 8 70 7 90 6 Heimild: Hagstofa Íslands Hin árlega álfasala SÁÁ er hafin. Þetta árið er hlutskipti fjölskyldu og aðstandenda þeirra sem þjást af áfengis- og vímuefnafíkn í fyrirrúmi en fjölskyldu- og forvarnarhús SÁÁ verður opnað á haustdögum. Hvað er SÁÁ? SÁÁ stendur fyrir samtök áhugafólks um áfeng- is- og vímuefnavanda. Samtökin hafa starfað í tæpa þrjá áratugi en þau voru stofnuð 1977 af um fimmtíu áfengissjúklingum sem vildu búa til landssamtök til þess að vinna að hagsmunum þeirra sem eiga við áfengisvanda að stríða. Nýleg viðhorfskönnun sýnir að samtökin njóta mikils trausts hjá almenningi og flestir þátttakendur treystu SÁÁ best í meðferðarúrræðum. Markmið? Markmið samtakanna er að áfengissjúklingar sem og aðrir fíklar og aðstandendur þeirra eigi völ á sjúkrameðferð og endurhæfingu en boðið er uppá afvötnunar- og endurhæfingarstöðvar. Göngudeild er starfrækt innan samtakanna og boðið er uppá fræðslu fyrir sjúklinga og aðstand- endur. Fræðslustarf fyrir almenning um skaðsemi áfengis og vímuefna er einnig starfrækt. Kostnaður? Um tveir þriðju af framlögum samtak- anna eru frá hinu opinbera en afgangur- inn kemur frá fjármögnun samtakanna. Samtökin treysta á fjárframlög ein- staklinga og fyrirtækja og er álfasalan mikilvægur þáttur fjármögnunarinnar. Starfsemin er viðamikil og fleiri þús- undir leita til samtakanna á hverju ári. FBL GREINING: SAMTÖK ÁHUGAFÓLKS UM ÁFENGIS- OG VÍMUEFNAVANDA Aðstandendur verða í fyrirrúmi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.