Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.05.2006, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 18.05.2006, Qupperneq 22
 18. maí 2006 FIMMTUDAGUR22 hagur heimilanna Afborganir íbúðalána hafa hækkað í takt við verð- bólguna síðustu mánuði. Hæstu bankalánin hafa hækkað um allt að 5.000 krónur á hálfu ári. Afborgun af 15 milljóna króna láni hjá Íbúðalánasjóði hefur hækkað um 2.700 krónur. Afborganir lána hjá Íbúðalánasjóði og bönkunum hafa hækkað í takt við verðbólguna síðustu mánuði. Afborgun af 15 milljóna króna láni, sem tekið var til 40 ára hjá Íbúða- lánasjóði í júní í fyrra, hefur hækkað um tæpar 2.700 krónur á þessu ári. Afborgun af 20 milljóna króna fast- eignaláni til 25 ára hjá Kaupþingi banka hækkaði um rúmar 4.400 krónur. Hjá sama banka hefur afborgunin af 20 millj- óna króna láni til 40 ára hækkað um rúmar 3.500 krónur. Sigurður Geirsson, sviðsstjóri Innra eftirlits hjá Íbúðalánasjóði, hefur tekið saman nokkur dæmi um þróun greiðslubyrði fyrir Fréttablaðið. Samkvæmt útreikningum hans hefur greiðslubyrðin hækkað mest á hámarkslánunum. Greiðslubyrði af íbúðaláni að fjárhæð 15 milljónir þegar það var tekið í júní í fyrra hefur hækkað um tæpar 2.700 krónur frá því í janúar. Í janúarbyrjun var greiðslubyrðin 66.281 króna á mánuði. Í júní verður hún 68.944 krónur. Greiðslu- byrðin af 10 millj- óna króna láni hefur hækkað um tæpar 1.800 krón- ur á hálfu ári og greiðslubyrðin af fimm milljóna króna láni hefur hækkað um tæpar 900 krónur. Á þessu ári hefur greiðslubyrði íbúða- lánanna aðeins lækkað einu sinni og þá aðeins um nokkra tugi króna þegar vísitala neysluverðs lækk- aði. Þetta var milli mánaða í febrú- ar og mars og hækkaði vísitalan svo strax aftur. Sigurður segir að greiðslubyrðin hreyfist með vísi- tölunni. „Vísitalan hefur bara áhrif á þann hluta greiðslunnar sem til greiðslu kemur hverju sinni. Af þessu 15 milljóna króna láni er greiðslubyrðin sjálf án vísitölunn- ar 64.098 krónur. Það er afborgunin og vextir. Það sem er umfram þetta er það sem viðkomandi er að greiða vegna breytingar á vísitölunni.“ Hjá Kaupþingi banka sýna útreikningarnir að afborgun af 20 milljóna króna láni til 25 ára hefur hækkað langmest, farið úr 110.300 krónum á mánuði 1. janúar 2006 í tæpar 115 þúsund krónur nú í júní. Afborgunin af 20 milljóna króna láni til 40 ára hefur hækkað aðeins- minna, eða um 3.500 krónur. Afborgunin af lægstu lánunum, til dæmis 5 milljóna króna láni, hefur hækkað mun minna eða um rúmar 800 til 1.100 krónur á þess- um sex mánuðum eftir því hvort lánið er til 25 eða 40 ára. ghs@frettabladid.is Annual General Meeting of Mosaic Fashions hf. The Annual General Meeting of Mosaic Fashions hf. for the financial year ending January 28 2006 will be held at Nordica Hotel, Sudurlandsbraut 2 at 9.00am on Friday 26th May 2006. Agenda: 1. The report of the Board of Directors on the activities of the Company in the preceding operating year 2. Submission of the Annual Accounts for 2005 and the auditor’s report 3. Elections to the Board of Directors 4. Election of an Auditor 5. Determination of the remuneration of the Board of Directors 6. Proposal on payment of dividends and the disposal of the Company’s profit during the preceding accounting year 7. Any other business The Annual Report will be available for inspection for shareholders on the Mosaic website from Monday 22nd May and in hard copy from Kaupthing Bank’s offices, Borgartun 19 from Tuesday 23rd May. For further information please contact the company’s Investor Relations Manager, Jessica Wilks on +44 207 452 1122 Information on Mosaic Fashions hf. Is available on: www.mosaic-fashions.is or www.mosaic-fashons.co.uk Afborganir hækka um mörg þúsund ■ Hreinsað bensín er til margra hluta nýtilegt, einkum þegar þarf að ná blettum. „Ég veit um gott ráð til að ná límfari af, til dæmis fari eftir límmiða á krukku eða á vegg,“ segir Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi. „Það er langbest að nota hreinsað bensín. Þá er maður enga stund að ná þessu af. Reyndar er hreint bensín gott við svona aðstæður. Til dæmis þegar þarf að ná tússi af veggjum. Svo hef ég líka notað þetta til þess að ná burtu fari eftir plástur. Reyndar er það svo að margar vinkonur mínar gantast með það að ég skuli sífellt nota hreinsað bensín við hinar ýmsu aðstæður sem koma upp.“ GÓÐ HÚSRÁÐ LÍMIÐ HREINSAÐ > Vodkaneysla Íslendinga í lítrum talin Lýsisnotkun Íslendinga hefur verið þekkt frá örófi alda. Lýsi var notað sem ljósmeti (þaðan er nafnið komið), til að súta skinn, og sjómenn notuðu það til að gera skinnklæði sín vatnsheld. Menn hefur lengi grunað að lýsi væri gott fyrir heilsuna. Læknar á Englandi ráðlögðu fólki seint á átjándu öld að fá sér þorskalýsi til þess að draga úr liðverkjum, og einnig ef það var dapurt eða þungt í sinni. Á nítjándu öld komu fram sannanir fyrir því að þorskalýsi gæti komið í veg fyrir beinkröm. Á fyrri hluta tuttugustu aldar voru fituleysanlegu vítamínin uppgötvuð, og þá kom í ljós að þorskalýsi var einhver albesta uppspretta af D-vítamíni sem menn þekktu. Fjölómettaðar fitusýrur fundust á sjötta áratug síðustu aldar og stórmerkilegar rannsóknir danskra vísindamanna, á sam- hengi milli fituneyslu og heilsufars Græn- lendinga, urðu síðan til þess að rannsóknir á lýsi breiddust út um allan vísindaheiminn. Dönsku vísinda- mennirnir sýndu fram á að svonefndar omega-3 fitusýrur, draga úr líkum á hjartasjúkdómum. Fjölómettaðar omega-3 fitusýrur finnast í nánast öllum fiskiolíum en í mjög mismunandi mæli. Langþýðingarmestu fitusýrurnar, svokallaðar DHA og EPA eru um 12% og 10% af fitusýrum í þorska- lýsi og um 12% og 18% í sardínulýsi. Þessar fitusýrur eru okkur lífsnauðsyn- legar því líkaminn getur ekki myndað þær í nægilegu magni. Við verðum því að fá þær úr matnum eða fæðubótar- efnum á sama hátt og vítamín. Margar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum DHA og EPA á mannslíkamann. Rannsóknir á hjarta- og æðasjúkdómum eru ítarlegastar, en einnig er verið að rannsaka áhrif DHA og EPA á bólgur og liðverki, á fósturþroska og fæðingarþyngd, þroska heila og miðtaugakerfis, á framgang geðsjúkdóma, á athyglisbrest og ofvirkni barna og ýmislegt annað. DHA og EPA fáum við bara úr sjávar- fangi. Æskilegt er að fiskneysla sjái fyrir þörfum manna á þessum efnum, en því er varla að heilsa lengur hér á landi. Fiskneysla hefur dregist saman að und- anförnu, sérstaklega meðal ungs fólks. Það er afar brýnt að hvetja til aukinnar notkunar á lýsi, til að mæta þörfum líkamans fyrir fitusýrurnar og D-vít- amín. Þótt líkaminn myndi D-vítamín í sólskini, þá er sólarfar á Íslandi og hitastig ekki þess eðlis að almenningur stundi sólböð af kappi. Þess vegna er nauðsynlegt að taka lýsi jafnt að sumri sem vetri. www.mni.is MATUR & NÆRING ANNA BIRNA BJÖRNSDÓTTIR MATVÆLAFRÆÐINGUR Lýsi árið um kring Harðfiskunnendur á höfuðborgarsvæðinu gera ágæt kaup í harðfiski í Kolaportinu um helgar en algengt kílóverð á harðfiski þar er hvergi hærra en fjögur þúsund krónur meðan almenn kílóverð í verslunum og söluturnum er oft á tíðum allt að 4800 krónum. Milli fimm og sex seljend- ur bjóða vöru sínar í Kolaportinu og eru þar tegundir sem finna má í venjulegum verslunum. Nú þegar sumarið fer í hönd og harðfiskurinn ómissandi í útileguna eða ferða- lagið er hægt að spara sér allnokkra upphæð með því að kaupa fiskinn hjá sölumönnum í Kolaportinu. ■ Verslun og þjónusta Mikill verðmunur á harðfiski „Mín verstu kaup eru örugglega án efa þegar ég fór þrettán ára gamall í verslun- ina 17 og þar var einhver góður drengur sem aðstoðaði mig og taldi mér trú um það að jakkafötin sem ég var að máta pössuðu svona líka svaðalega vel. Svo fór ég heim og þá sagði nú mamma að við skyldum nú kannski fara bara aftur þangað og reyna að skila þessu og mér tókst það reyndar eða mömmu tókst að skila þessu. Það eru örugglega ein verstu kaup mín, en það fór allt vel að lokum,“ segir Guðjón Davíð, leikari hjá Leikfélagi Akureyrar, sem er staddur í Reykjavík núna að leika í Fullkomnu brúðkaupi sem sýnt er í Borgarleikhúsinu og Litlu hryllingsbúðinni sem sýnd er í Íslensku óperunni. Guðjón telur að mistökin hafi fyrst og fremst falist í því að taka mömmu ekki með í fataleiðangurinn enda var hún vön að koma með. Bestu kaup Guðjóns tengjast fötum hins vegar ekki neitt heldur eldamennsku. „Mín bestu kaup eru án efa steikarpanna sem ég keypti í Kokku. Hún hefur aldrei klikkað og ég held að það sé meira pannan en ég.“ Guðjón segir að hann steiki allt á pönnunni, „alls kyns kjöt og skemmtilegheit og allt sem kemst í snertingu við þetta hágæðastál verður gott. Það skemmtilegasta við þessa pönnu er að hún hefur glatt svo marga og sérstaklega mig og mína nánustu,“ segir Guðjón að lokum en hann hefur í nógu að snúast í leikhúsinu þessa dagana. NEYTANDINN: GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON LEIKARI Fermingarfötin án efa verstu kaupin ■ 5 millj. 25 ár ➦1. janúar 27.572 ➦2. febrúar 27.661 ➦1. mars 27.639 ➦1. apríl 27.949 ➦1. maí 28.270 ➦1. júní 28.680 Hækkun samtals: 1.108,- ■ 5 millj. 40 ár ➦1. janúar 21.975 ➦1. febrúar 22.046 ➦1. mars 22.028 ➦1. apríl 22.275 ➦1. maí 22.531 ➦1. júní 22.858 Hækkun samtals: 883,- ■ 10 millj. 25 ár ➦1. janúar 55.144 ➦1. febrúar 55.321 ➦1. mars 55.277 ➦1. apríl 55.897 ➦1. maí 56.539 ➦1. júní 57.359 Hækkun samtals: 2.215,- ■ 10 millj. 40 ár ➦1. janúar 43.950 ➦1. febrúar 44.092 ➦1. mars 44.056 ➦1. apríl 44.551 ➦1. maí 45.063 ➦1. júní 45.716 Hækkun samtals: 1.766,- ■ 20 millj. 25 ár ➦1. janúar 110.288 ➦1. febrúar 110.643 ➦1. mars 110.554 ➦1. apríl 111.795 ➦1. maí 113.080 ➦1. júní 114.719 Hækkun samtals: 4.431,- ■ 20 millj. 40 ár ➦1. janúar 87.900 ➦1. febrúar 88.182 ➦1. mars 88.112 ➦1. apríl 89.100 ➦1. maí 90.125 ➦1. júní 91.431 Hækkun samtals: 3.531,- GREIÐSLUBYRÐI HJÁ KAUPÞINGI BANKA 2006 Lán tekið í júní 2005 til kaupa á 30 milljóna króna eign. Fastir vextir 4,15% 5 milljónir 10 milljónir 15 milljónir ■ Janúar 22.094 44.187 66.281 ■ Febrúar 22.165 44.329 66.494 ■ Mars 22.146 44.294 66.441 ■ Apríl 22.395 44.791 67.186 ■ Maí 22.653 43.306 67.959 ■ Júní (væntanlegt) 22.981 5.963 68.944 ■ Hækkun samtals Jan-Júní 887 1,776 2.663 GREIÐSLUBYRÐI HJÁ ÍBÚÐALÁNASJÓÐI 2006 39 8. 31 1 33 1. 32 3 31 3. 85 1 1999 Lí tr ar 39 9. 64 7 2001 2003 2005 Framundan er forkeppni og aðalkeppni stærstu söngva- keppni álfunnar, Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, og hugsa margir sér gott til glóðarinnar. Sem fyrr gefst áhorfendum í öllum löndum færi á að kjósa símleiðis og ætti fáum að koma á óvart að það er dýrara fyrir Íslendinga en flesta aðra. Hafa Neytendasamtökin tekið saman kostnaðinn við slíkt hvort sem greitt er atkvæði símleiðis eða með SMS-skeyti og er kostnaður á hvort hundrað krónur. Er það til að mynda 97 krónum dýr- ara að hringja inn atkvæði hér en í Danmörku þar sem það kostar minnst. Sé sent skeyti er það ódýrast fyrir íbúa Andorra en þar kostar hver sending aðeins tíu krónur. Dýrast er þó fyrir íbúa Grikklands, Rúmeníu og Spánar að kjósa. ■ Hvað kostar... að kjósa í Eurovision? Hundrað krónur fyrir atkvæðið Ferðalangar á vegum Icelandair munu hér eftir geta stytt sér bið við innritun í Leifsstöð en fyrirtækið hefur látið setja upp sex sjálfsafgreiðsluvélar í Leifsstöð. Margir kannast eflaust við slíkar vélar sem þekktar eru á flugvöllum erlendis og er þarna kjörin leið til að sneiða hjá löngum röðum við innritun. Víðast hvar gildir slík sjálfsafgreiðsla aðeins fyrir þá sem bera handfarangur en á stöku stað er boðið upp á slíka þjónustu einnig fyrir þá sem bera meiri farangur. Svo er einnig hér og setja ferðalangar farangur sinn á færiband við viðkomandi vélar. Víst er að raðir við innritunarborðin í Leifsstöð minnka í kjölfar þessa og ekki seinna vænna enda myndast þar á stundum raðir sem ná vel út að anddyri. ■ Verslun og þjónusta Sjálfsafgreiðsla Icelandair
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.