Fréttablaðið - 18.05.2006, Qupperneq 36
18. maí 2006 FIMMTUDAGUR
Bjarni Þór Pálsson mælir með
því að menn klæðist jakka-
fötum og séu með bindi við
útskriftina.
Fataverslunin Next í Kringlunni
hefur starfað á Íslandi í þrjú ár, en
hún er hluti af samnefndri breskri
verslanakeðju, sem teygir anga
sína víða um heim. Í búðinni er
boðið upp fatnað á alla fjölskyld-
una, auk þess sem nýlega hefur
verið bætt við hana skemmtilegri
heimilisvörudeild þar sem kennir
ýmissa grasa. Bjarni Þór Pálsson,
deildarstjóri herradeildar Next,
segir að í búðinni séu seld góð föt
sem henta við alls kyns tækifæri,
ekki síst fyrir herra
sem eru að útskrif-
ast.
Fyrir herrana
mælir Bjarni helst
með jakkafötum og
bindi. „Ég mæli þó
ekkert sérstaklega
með svörtum jakka-
fötum,“ segir hann.
„Mér finnst að menn hafi
í gegnum tíðina verið allt-
of fastir í því að kaupa sér
svört jakkaföt, til að geta
notað þau við sem flest
tækifæri,“ útskýrir hann.
„Að mínu mati er betra
að eiga svört jakkaföt
þegar þess er krafist, en
eiga síðan jakkaföt í
skemmtilegum litum til til-
breytingar,“
segir Bjarni.
„Menn
mega vera
ófeimnari
við að velja
sér jakkaföt í litum en þeir hafa
verið hingað til og blanda ólíkum
litum saman. Við eigum gott úrval
fallegra jakkafata, til dæmis í brúnu
og bláu, bæði með og án köflna eða
teina, sem eru að koma sterkt inn.
Hér eru falleg jakkaföt annaðhvort
með brúnum eða gylltum teinum,“
bætir hann við.
„Nú er líka tíminn til að kaupa
sér skyrtuna sem mann hefur allt-
af langað í en ekki þorað að klæð-
ast, þar sem töluvert frelsi ríkir í
þeim efnum,“ segir Bjarni. „Auð-
vitað eiga menn þó ekki að kaupa
sér skyrtu nema þeim líði sjálfum
vel í henni. Svo er alltaf flott að sjá
menn með falleg bindi við jakka-
fötin, en þau eigum við í miklu
úrvali ásamt öðrum fylgihlutum,
svo sem skóm, beltum, úrum og
ermahnöppum. Aðalreglan er að
velja sér eitthvað fyrir útskriftina
sem maður er sjálfur ánægður
með, því þá eru meiri líkur á því
að maður beri sig vel,“ segir hann
loks.
Maðurinn skapar fötin
Bjarni Þór Pálsson, deildarstjóri hjá Next, vill að menn hugsi út fyrir ramm-
ann þegar útskriftarfötin eru valin.
Brún jakkaföt frá Next
á 29.280 kr. Skyrtan
kostar 3.490 kr., bind-
ið 2.690 kr. og skórnir
10.790 kr.
Blá, teinótt jakkaföt
á 33.170 kr., skyrta
á 3.390 kr., bindi á
2.690 kr. og skórnir
kosta 9.990 kr.
Svört, teinótt jakka-
föt á 17.380 kr.,
skyrta á 4.290 kr.,
bindi 3.390 kr. og
skór 10.190 kr.
Hágæða húð- og hárvörur fyrir börn
Stelpur við gefum boltann til ykkar!
Stelpudeildin á SKJÁEINUM hefst 5. júní
Nú nærðu SKJÁEINUM í gegnum Digital Ísland