Fréttablaðið - 18.05.2006, Síða 38

Fréttablaðið - 18.05.2006, Síða 38
[ ] Þegar grilltíminn er hafinn er nauðsynlegt að eiga réttu græjurnar. Grilláhöld eru eitt af því sem nauðsynlegt er að eiga á þessum árstíma þegar góða veðrið dreg- ur okkur út í garð með elda- mennskuna, eða jafnvel enn lengra. Góðar tangir og spaðar með löngu skafti eru þarfaþing þegar kemur að matargerð við opinn eld þar sem hitinn er mikill. Grillhansk- ar koma líka í góðar þarfir og svunta er auðvitað bæði einkenn- isbúningur og hlíf. Við litum inn í tvær búðir í Kringlunni og skoð- uðum grilláhöldin þar en bensín- stöðvar og stórmarkaðir eru líka staðir þar sem slíkir hlutir fást. Það er alltaf dálítill stíll yfir því að grilla á tein- um. Þessir fást í Byggt og búið í Kringlunni og kosta 1.250 kr. Rétt áhöld við útigrillið Grillhanski er bráðnauðsynlegur til að verjast hitanum. Þessi er frá Búsáhöldum í Kringlunni og kostar 795 kr. Falleg klukka er góður gripur. Ef þú ert hættur að vakna við pípið í símanum á morgnana er ráð að fá sér eina svona. Svunta er bæði ein- kennisbúningur og hlíf. Þessi Orskov-svunta fæst í Búsáhöldum Kringlunni og kostar 1.595 kr. Grillspaði sem er 46 cm að lengd. Fæst í Byggt og búið og kostar 1.375 kr. Fiskgrind fer vel með hráefnið. Reyndar má nota hana fyrir kjötsneiðar líka eða hvað sem er. Þessi fæst í Byggt og búið og kostar1.499 kr. Hreinsun á grillinu er nauðsynleg. Hér eru eiginlega þrjú mismunandi áhöld í einu. Kostar 399 krónur í Byggt og búið. Grilltangir eru algerlega ómissandi. Þessar fást í Búsáhöldum í Kringlunni og kosta 1.450 kr. Pensill til að rjóða sósu á réttina. Þessi Steel Function-silíkongrill pensill í Búsáhöldum er á 1.980 krónur. Pensill með tréskafti á 499 krónur í Byggt og búið. ÞAÐ ER ÓÞARFI AÐ HENDA GÖMLU KERTASTUBBUNUM. PRÓFAÐU AÐ BRÆÐA ÞÁ OG BÚA TIL NÝTT KERTI. Bræddu gömlu kertin eins og þú myndir bræða súkkulaði. Láttu kertin í lítinn pott og láttu þann pott í vatnsbað í öðrum stærri potti. Hitaðu vatnið þannig að kertin bráðni. Losaðu þig við gömlu kveikjuþræðina úr vaxinu með töng eða prjóni. Til að búa til kertið þarftu ílát. Þetta ílát getur verið hvað sem er en það þarf að get þolað hitann. Tebollar, kaffikrús- ir, skeljar og litlir blómapottar geta nýst í þetta verk. Þú þarft líka kveikjuþráð sem þú festir við eitthvað akkeri sem heldur sig á botninum. Þetta getur verið tala eða einhver málmhlutur. Þú skalt binda hinn enda þráðarins við prjón sem heldur öðrum endanum fyrir ofan yfirborð vaxins. Þá er ekkert eftir nema að hella vaxinu í í ílátið, láta standa í klukkutíma og klippa óþarfa endann á kveikju- þræðinum af. Búðu til eigið kerti Hægt er leika sér með heimatilbúin kerti og hafa þau marglit. GJAFADAGAR 20% afsláttur frá fimmtudegi til sunnudags N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU- SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT ... sem flig vantar til a› hefja n‡tt líf F í t o n / S Í A
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.