Fréttablaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 66
 18. maí 2006 FIMMTUDAGUR34 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. AFMÆLI Þórunn Guðmunds- dóttir sópransöng- kona er 46 ára. Ingibjörg Hjartar- dóttir rithöfundur er 54 ára. Ólafur R. Dýrmunds- son ráðunautur er 62 ára. MERKISATBURÐIR 1860 Abraham Lincoln var á þessum degi útnefndur forsetaefni repúblikana á fundi flokksins í Chicago. 1926 Aimee Sample McPher- son, þekktur bandarískur predikari, hverfur sporlaust í Kaliforníu. 1974 Indverjar koma sér upp sínu fyrsta kjarnorkuvopni. 1980 Eldfjallið St. Helena í Washington-ríki byrjar að gjósa snemma morguns og veldur gríðarlegu tjóni. 1985 Dagur ljóðsins er haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn, að frumkvæði Rithöfundasam- bands Íslands. 1989 Rúmlega sex vikna verkfalli Bandalags háskólamanna á Íslandi lýkur. Verkfallið olli mikilli röskun á skólastarfi í landinu. GUSTAV MAHLER (1860-1911) LÉST ÞENNAN DAG. „Allt sem er ekki fullkomið niður í minnsta smáatriði er dæmt til að deyja.“ Sögur herma að austurríska tónskáldið Gustav Mahler hafi verið mikill nákvæmnismaður. ANDLÁT Björnfríður Ólafía Magnúsdóttir, fyrrum bóndi og húsfreyja, Ketils- eyri, Dýrafirði, lést fimmtudaginn 11. maí. Hrefna Margrét Guðmundsdótt- ir, Sléttahrauni 28, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 14. maí. Jóhanna Kristjánsdóttir, áður Stigahlíð 32, Reykjavík, lést á líknardeild Landakotsspítala mánudaginn 15. maí. Jón Hermann Pálsson, frá Hjallanesi, Landsveit, lést á hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu laugardaginn 13. maí. María Ólafsdóttir, frá Vindhæli, Hléskógum 5, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 13. maí. Ólína Sigríður Júlíusdóttir, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, lést mánudaginn 15. maí. Vigfús Guðbrandsson, Dimmu- hvarfi 7, Kópavogi, lést á Landspít- ala háskólasjúkrahúsi í Fossvogi þriðjudaginn 16. maí. JARÐARFARIR 13.00 Guðmundur Ágúst Kristj- ánsson bifreiðasmiður, Blásölum 5, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju. 15.00 Erla Cortes, Æsufelli 6, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. 15.00 Gunnar Sigurðsson, Kleppsvegi 94, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju. Þennan dag árið 1989 fóru af stað mikil mótmæli hátt í milljón manna í Peking, höfuð- borg Kína. Mótmælend- urnir kröfðust lýðræðis og bættra mannréttinda og fór spennan í kínversku þjóðfélagi vaxandi dag frá degi. Stúdentar fjölmenntu sérstaklega í þessi mótmæli og reyndu að koma skilaboðum sínum til yfirvalda áleiðis með friðsamlegum hætti. Mótmæli höfðu verið að ágerast í Kína frá því um 1980 og virtist sem stjórnvöld væru endanlega búin að glata sambandinu við almenning í landinu. Nokkrum vikum seinna létu stjórnvöld til skarar skríða gegn gríðarlegum fjölda fólks sem safnast hafði saman á ýmsum opnum svæðum, sérstaklega í Peking. Þann 3. júní sama ár réðust síðan hermenn gegn fjölda fólks á Torgi hins himneska friðar. Fjöldi fólks lét lífið í árásinni og enn fleiri voru hnepptir í varðhald fyrir andbyltingarlegan áróður. Þessi viðbrögð stjórnvalda vöktu gríðarlega reiði um heim allan og létu þjóðar- leiðtogar í ljós vanþóknun sína og fordæmingu á voðaverkunum. Nú, sautján árum síðar, er enn víða pottur brot- inn í mannréttindamálum í Kína og óska margir eftir lýðræðislegri vinnubrögðum stjórnvalda. ÞETTA GERÐIST: 18. MAÍ 1989 Mótmælendur í Kína krefjast lýðræðis KÍNVERJAR MÓTMÆLA Í PEKING Blátindur VE 21 er nú kominn á flot við Naust- hamarsbryggju í Vestmannaeyjum en nú stendur til að gera hann siglingafæran í sumar. Báturinn, sem er 47 tonna, var smíðaður í Vestmannaeyjum árið 1947 og er eini báturinn sem varðveist hefur af þeim 76 þilfarsvélbát- um sem þar voru smíðaðir. Það eru fjórmenningar úr áhugamannafé- lagi um endurbyggingu bátsins sem vinna að því hörðum höndum en verkin eru ærin. „Það þarf að taka upp vélina og endurbæta hana, öxuldraga hann, koma fyrir ljósavél og raf- lögnum, siglingaljósum, svo að mála hann og öllu þessu á að ljúka í júlí,“ segir Sigtryggur Helgason, einn úr svokallaðri fjórmenninga- klíku félagsins en hinir eru Páll bróðir hans, Árni Johnsen fyrrverandi þingmaður og Tryggvi Sigurðsson vélstjóri. „Hann fer vel í sjó og lak nánast ekki neitt þegar hann var settur á flot enda miklir snill- ingar búnir að dytta að honum áður,“ segir Árni. „Við leyfum honum nú að þétta sig en svo tökum við hann upp og sköfum og málum.“ Blátindur kom aftur til Vestmannaeyja árið 1992 frá Ólafsfirði þaðan sem hann var gerður út síðast en lengst af var hann gerður út frá Eyjum. Eftir komuna þangað stóð hann í slipp og var hann því farinn að grotna niður. Þá var timburverkið endurnýjað í honum árið 2001 en það var farið að sjá á honum aftur svo hann hefur nú verið settur á flot til þess að þétta hann. Tryggvi Sigurðsson er afar ósáttur við að þessi merki bátur skyldi ekki hafa fengið betri meðferð eftir komuna til Eyja. „Það er algjör skömm að þessu hvernig bærinn tók bátinn í sína vörslu en gerði svo ekki neitt,“ segir hann. Báturinn var lengst af gerður út til fisk- veiða en þó bar svo við um 1950 að hann var notaður sem varðskip á Faxaflóa. Þá var fall- byssa um borð en ekki er vitað hvað af henni varð. „Það hefur ýmislegt verið rætt um það hvaða hlutverki hann eigi að gegna eftir að hægt verður að koma honum á stímið,“ segir Sigtryggur. „Þó er líklegast að Sigmundur Ein- arsson fari með fólk í skoðunarferðir á honum en það á eftir að koma betur í ljós.“ Félaginu hefur borist aðstoð víða að, bæði frá hinu opinbera og fyrirtækjum, en ekki er ljóst hvað það kostar að koma gamla fleyinu á stímið aftur. ■ BLÁTINDUR: KEMST AFTUR Á STÍMIÐ Síðasta Eyjafleyið á flot BLÁTINDUR Í SLIPPNUM Í VESTMANNAEYJUM Hann hefur munað sinn fífil fegri en nú á að vinna bót þar á og í júlí verður hann líkt og á sínu besta skeiði ef áætlun félagsmanna um varðveislu Blátinds gengur eftir.FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ásta G. Pjetursdóttir Háaleitisbraut 43, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 19. maí kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda Gunnþórunn Jónasdóttir Einar S. Ingólfsson Pétur J. Jónasson Örn Jónasson Gunnar Jónasson Guðbjörg Eggertsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, Bjarnþór Karlsson Einimel 19, Reykjavík, sem varð bráðkvaddur laugardaginn 13. maí 2006, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 19. maí kl. 15.00. Að ósk hins látna eru blóm og kransar afþakkaðar, en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Guðrún Á. Bjarnþórsdóttir Guðmundur Hermannsson Karl Þórir Bjarnþórsson Harald P. Hermanns Þórunn Símonardóttir Þóroddur F. Þóroddsson barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulega föður, tengdaföður, afa og langafa, Hannesar Helgasonar Asparfelli 8. Guðlaug Maggý Hannesdóttir Jón Pétur Jónsson Hafdís Hannesdóttir Stefán Gunnar Stefánsson Helgi Hannesson Guðmunda Eyjólfsdóttir Lára Hannesdóttir Schram Sigmundur Hannesson Sigrún Arnardóttir barnabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, dóttir og systir, Hrefna Margrét Guðmundsdóttir Sléttahraun 28, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 14. maí. Útförin fer fram frá Víðistaða- kirkju, Hafnarfirði, mánudaginn 22. maí kl. 11.00. Hrefna Freyja Friðgeirsdóttir Ásthildur Friðgeirsdóttir Oddrún Lára Friðgeirsdóttir Hrefna Árnadóttir Ásdís Elín Guðmundsdóttir Claus H. Magnússon Anna Guðmundsdóttir Árni S. Unnsteinsson aðrir aðstandendur og vinir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hrefna Bergmann Einarsdóttir Bústaðavegi 83, lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 12. maí 2006. Jarðarförin fer fram frá Grensáskirkju föstudag- inn 19. maí kl. 13.00. Magnús Ásmundsson Ásmundur Magnússon Auður Magnúsdóttir Halldór Kristiansen Stefanía Júlíusdóttir Sigurður Jónsson Magnús Ásmundsson Einar Halldórsson Davíð Einarsson Gabríel Aron og Mikael Máni Sigurðarsynir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi, Vigfús Guðbrandsson Dimmuhvarfi 7, Kópavogi, lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi í Fossvogi þriðjudaginn 16. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Jóhanna Eydís Vigfúsdóttir Þorbjörn Bjartmar Björnsson Ásgerður Fríða Vigfúsdóttir Fjölnir Ernis Sigvaldason Aðalbjörg Sigurrós Vigfúsdóttir Guðmundur Magnús Elíasson Jófríður Guðbrandsdóttir Andri Már Halldórsson Hulda María Þorbjörnsdóttir Róbert Högni Þorbjörnsson Úlfur Benedikt Fjölnisson Anton Vigfús Guðmundsson Ísól Hanna Guðmundsdóttir Jónatan Magnús Guðmundsson LEGSTEINAR OG FYLGIHLUTIR Í MIKLU ÚRVALI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.