Tíminn - 24.07.1977, Blaðsíða 15
Sunnudagur 24. júll 1977.
llliiill'lí
— Aö blöa svona, er eins og aö deyja daglega, segir Alberta Osborne, dæmd til lífláts I
rafmagnsstólnum. Mál hennar er nú fyrir hæstarétti.
N NÆR
A
A röngum stað á röng-
um tima
Aö frátöldum 75 mfnútum er
Sonia Jacobs alla vikuna lokuð
inni i litla klefanum sínum I
„Betrunarheimili fyrir konur” 1
Flórida. Hún fær matinn gegn-
um litla lúgu á hurðinni og þá
stuttu stund, sem hún fær að
fara út úr klefanum, fær enginn
hinna fanganna aö tala við
hana. Hún drepur timann með
þvi að lesa, teikna og skrifa bréf
til vinar sins, Jesse Tafero, föð-
ur þriggja ára gamallar dóttur
hennar. Tafero er llka í dauða-
deild.
— Þegar ég er mjög niöur-
dregin, skrifa ég sjálfri mér,
segir Sonia. — Ég get ekki sagt
móður minni frá vandamálum
minum. Henni finnst ég hafa
valdið nægum vandræðum.
Sonia lýsir sig saklausa og
segir aö eina sök sin sé að hafa
verið á röngum stað á röngum
tima. Febrúarmorgun einn i
fyrra fannst hún sofandi f kyrr-
stæðum bil, sem var fullur af
vopnum og kókaini. Ásamt
henni var Tafero, dóttirin
Christina og niu ára gamall son-
ur, Erik frá hjónabandi hennar
á æskuárum.
Samkvæmt ákærunni á Sonia
að hafa skotiö á tvo lögreglu-
menn á tjaldstæði við hrað-
brautina til Flórida, þegar þeir
voru að leita að Tafero og vini
hans. Siðan á Tafero að hafa
gripið af henni byssuna og skot-
ið báða lögreglumennina til
bana. Vinurinn var eftirlýstur
og það var hann sem lýsti á þau
sökinnimeð þviað segja, að þau
hefðu verið brjáluö, bláttáfram
uppdópuð!
Sonia er dóttir vefnaðarvöru-
verksmiðjueiganda og ólst upp i
þvi sém hún kallar „millistétt-
arumhverfi”.Hún gekk þrjú ár i
gagnfræðaskóla. Eftir skilnað
við „skólaunnusta” fluttist hún
með foreldrum sinum til Miami
og seinna til Charlotte i Norður-
Karolinu. Nú er hún 29 ára og
sakavottorð hennar er langt og
dapurlegt. Ótal sinnum hefur
hún verið handtekin fyrir vændi,
fiknilyfjaneyzlu, skjalafals og
vanrækslu á börnunum. Meðal
annars hefur komið fram, að
Erik hefur aldrei notiö neinnar
kennslu.
Sonia er orðinn ákafur fang-
elsislögfræðingur og lifir enn I
voninnium aðbænir hennar um
náðun veröi heyrðar. Börnin eru
I umsjá foreldra hennar. Hún
hefurm.a. safnaðákæruefnium
mismunun kynjanna I fangels-
um.
Fangelsið er niður-
drepandi
Rebecca Machetti, 38 ára,
hefur verið rúmlega tvö ár i
klefa sinum i Bibb-fangelsinu i
Georgiu. Allan timann hefur
hún þjáðst af migrenuköstum og
útbrotum og sjónin er oröin döp-
ur eftir aðkenningu að slagi.
— Þetta er allt mjög einkenni-
legt, segir móðir hennar. — Re-
becca er reyndar sjúkraliði og
sýndi ævinlega öðrum ást og
umhyggju. Ég er viss um að hún
mundi aldrei gera neinum illt.
En kviðdómurinn i Macon var
á annarri skoðun. Hann dæmdi
frú Machetti til dauða fyrir að-
ild að morðunum á fyrrverandi
eiginmanni sinum og konu hans
árið 1974. Núverandi eiginmað-
ur hennar var einnig dæmdur til
dauða og annar meðsekur fékk
ævilangt fangelsi. Astæðan er
sögð hafa verið tryggingarféð
og aðrir sjóðir, sem koma áttu i
hlut dætranna þriggja. Þau hjón
voru gift i 17 ár og skildu áriö
1973.
Fáir heimsækja Rebeccu
Machetti, en þeir sem hitta
hana segja að hún beri merki
atburðanna og að hún sé þung-
lynd.
— Hún þarf á sálfræðiaðstoð
aö halda, ef hún sleppur út, seg-
ir vinur hennar. — En hún er
mjög skynsöm og ég er viss um
að hún bjargar sér.
Frú Machetti hefur snúizt til
kaþólskrar trúar. Hún starfar
að rannsóknum fyrir ýmsa
hópa, sem berjast gegn dauða-
refsingu og heldur uppi miklum
bréfaskiptum viö aðra fanga.
— Rebecca nær sambandi við
alla, segir móðir hennar. — Hún
skrifast á viö um það bil 100
aðra fanga um allt landið og fær
oft bréf frá þeim, þar sem þeir
lofa hana á allan hátt.
að nýju í
na gleymist oft að þar
Fimm konur eru
ekki verið tekin af lífi
u hér er fjallað um,
næsta......
Óskum eftir að ráða
starfskraft
í bókhald
(heils dags starf) sem fyrst.
Upplýsingar á skrifstofunni
mánudag og þriðjudag kl. 10-12.
Samvinnuferðir
Austurstræti 12 Rvk. simi 27077
Alternatorar og
startarar
í Chevrolet, Ford, Dodge,
Wagoneer, Fiat o.fl. í stærð-
um 35-63 amp. 12 & 24 volt.
Verö á alternator frá
kr. 10.800.
Verö á startara frá
kr. 13.850.
Amerisk úrvalsvara.
Viðgerðir á alternatoruiyi
og störturum. -
Póstsendum.
Bifvélavirkjar
Óskum að ráða bifvélavirkja og vélvirkja
til starfa á verkstæði okkar á Þórshöfn.
Upplýsingar gefur Þórður Ólafsson i sim-
um (96) 8-12-00 og (96) 8-11-18.
Kaupfélag Langnesinga
Þórshöfn.
Hótel Valaskjólf
Matreiðslumenn
Viljum ráða nú þegar, eða eftir samkomu-
lagi matreiðslumann.
Nánari upplýsingar hjá Þórhalli Eyjólfs-
syni, simi (97)12-37.
Enn sem fyrr er Bústólpi í fararbroddi,
nú í móttöku og dreifingu á lausu fóðri.
Verðið hvergi hagstæðara.
Komið, sjáið og sannfærist.
Útvegum síló fyrir laust fóður í öllum
stærðum, verðið mjög hagkvæmt.
Væntanleg maurasýra, verð kr. 4.152,00
pr. 25 lítrar.
Verzlið þar sem saman fer lágt verð,
fyrsta flokks vara og góð þjónusta.
BÚSTÓLPI FYRIR BÆNDUR.
BÚSTÓLPI HF.
Sími (96) 22320, Strandgötu 63, Akureyri.