Tíminn - 24.07.1977, Síða 36

Tíminn - 24.07.1977, Síða 36
36 Sunnudagur 24. júll 1977. Þegar Alice Markley sagði manni sínum, að hana langaði út að ganga í óveðri og nístingskulda, vildi hann helzt vera heima. En hann gat ekki látið hana fara eina, svo hann fór líka. Hvorugt þeirra óraði fyrir því sem beið þeirra úti í vetrarkuldanum..... Þaö sem Arthur Markley haföi minnsta löngun til þetta nistandi kalda janúarkvöld nú i vetur, var aö fara út. Skafrenn- ingur var á götunum i North Bay i Ontario og útlit var fyrir snjókomu. Arthur Markley, sem er 37 ára gamall, átti langan vinnu- dag aö baki. Hann haföi þrælaö frá klukkan 7 um morguninn til 6 um kvöldiö á snjóplógi til aö halda þjóöveginum aö noröan gegnum Ottawa og Ontario fær- um, og eina ósk hans var aö boröa kvöldveröinn og láta síö- an fara vel um sig i hægindastól viö arininn og sjónvarpiö. En þegar hann kom heim i litla húsiö sitt, sá hann aö Alice kona hans, 33 ára, var niöur- dregin.En hann minntist ekki á þaö einu oröi. Hann iagöi aöeins handlegginn utan um hana og þrýsti henniaö sér. Hann skildi hana betur en nokkur annar. Allt þar til fimm mánuöum áöur haföihún veriö glaölynd og lifsglöö kona, ánægö meö heim- ili sitt og ávallt reiöubúin aö hjálpa nágrannanum, ef eitt- hvaö var aö. En svo geröist harmleikurinn. Atta mánaöa gömul dóttir þeirra, Barbara, fékk háan hita og var f flýti send á sjúkrahúsiö, þar sem hún lézt sömu nóttina. Læknarnir sögöu aö um heilahimnubólgu heföi veriö aö ræða, en þeir gátu ekki sagt foreldrunum hvernig barn- iö heföi fengiö þennan banvæna sjúkdóm. Ungur læknir sagöi, ef til vill i hugsunarleysi: — Þetta er ekki endirinn á öllu. Þiö getiö átt annaö barn. Undir venjulegum kringum- stæöumheföihann liklega haftá réttu að standa, en hann vissi ekki aö frú Markley mundi aldrei geta eignazt fleiri börn. Næstu vikur og mánuöi þjáö- isthúnaf þunglyndisköstum, en maöur hennar brynjaði sig þolinmæði og reyndi að hjálpa henni aö ná sér á strik með þvi aö sýna henni alla þá ást og um- hyggju sem hann megnaöi. Oft vildi hún fara í langar göngu- ferðir og hann fór alltaf með henni. Hann sagöi seinna, aö hann heföi ekki veriö hræddur um aö hún gripi til örþrifaráða, eins og til dæmis aö fyrirfara sér. Hann vissi aö þar sem hún var rómverskkaþólsk, kæmi henni sllkt ekki til hugar. En honum fannst nærvera sin hafa góö áhrif á hana og veita henni styrk, þótt barnsmissirinn væri honum jafn þungbær. En hann reyndi aö láta þær tilfinningar sinar ekki i ljós. Förum þessa leið, Art- hur Þetta janúarkvöld I vetur var Arthur Markley sem sagt gjör- samlega uppgefinn, þegar kona hans sagöi, aö hana langaöi út aö ganga. Nokkurra stiga frost var úti og nistandi noröanvind- urinn feykti snjónum i skafia og auövitaö var ekki nokkur mann- vera á ferli úti viö. Ekki var nokkur maður sjáanlegur þegar hjónin, vel dúöuö i úlpur og trefla, fóru út. Markley langaöi mest til aö telja konu sina af aö fara út einmitt þetta kvöld. Hann segir: —■ Ég vissi aö hún fann ein- hverja huggun i aö fara út aö ganga. Þaö geröi henni gott, leiddi hugsanirhennar burtu frá þvi, sem hvildi svo þungt á henni. Þau gengu fimm húsalengjur og komu aö litilli kaffistofu, þar sem Markley stakk upp á aö þau fengju sér kaffibolla, áöur en þau færu heim. Fariö var aö hvessa meira og snjóa talsvert, svo þaö mátti búast viö stórhriö. Þau drukku kaffiö og yfirgáfu staðinn tilaö fara heim, en brátt nam frú Markley staöar og sagöi: — Viö skulum fara þessa leið, og kinkaöi kolli i aöra átt. Akafi Alice Markley eftir aö fara út aö ganga I frostiog hriöá dimmu kvöldi, bjargaöi lffi Susan litlu og færöi Alice hamingjuna á ný. Þaö hefði stóran krók i för meö sér. Tregur samþykkti Arthur. Honum var kalt og hann langaði mest tilaö fara aöhátta og sofa. Klukkan var að veröa níu og hann þurfti aö vera kominn aft- ur á snjóplóginn klukkan sjö, þvi þá yröi þjóövegurinn aftur oröinn ófær. Þegar þau höföu gengið eina húsalengju, skall óveöriö á. Veörið var beint i fangiö og Markley sagöi: — Alice, viö skulum hringja á leigubil og koma okkur heim. Þaö er langt aö fara og ég er óskaplega þreyttur. Hefuröu nokkuö á mdti þvi? — Nei, sagöi frú Markley. — Þaö er simaklefi þarna Hún benti yfir götuna. — Viö getum beðiö iklefanum, þangaö til bill- inn kemur. Óvæntur fundur Þegar Markley opnaöi hurö- ina aö simklefanum, sá hann eitthvert hrúgald, sem liktist fatapinkli, sem einhver hefði kastaö inn i klefann. Svo heyröi hann svolitiö kvein. Honum datt fyrst i hug að ein- hver heföi lokaö flækingshund þarna inni, en þegar hann laut niöur, sá hann aö þarna var nokkurra vikna gamalt barn vafiö inn i óhreint, slitiö teppi. Markley hringdi á leigubila- stööina og meöan þau biöu, sagöi kona hans: — Hvaö eigum viö aö gera, Arthur? Fara til lögreglunnar meö barniö? Þaö hefur greinilega einhver lagt þaö þarna. — Við gætum tekiö þaö meö okkur heim, gefiö þvi aö boröa og baöaö þaö, svaraði hann. — Það má teljast kraftaverk, aö barniö skuli vera lifandi. Leigubillinn kom von bráöar og ók hjónunum heim. Þar baö aöi frú Markley litla angann, klæddi hann I föt og gaf að boröa. Siöan lagöi hún barniö i vögguna.sem hennar eigin dótt- ir haföi átt. Þetta var litil stúlka, mjög vannærö, og þau furðuðu sig á þvi aö hún skyldi hafa verið lifandi i simaklefan- um. Ef þau heföu ekki fundiö hana, heföi hún varla lifaö margar klukkustundir til viö bótar. Um morguninn var hún komin með háan hita og frú Markley hringdi til heimiiislæknisins. Hann sagði, aö barnið heföi lungnabólgu. t flýti var barnið sent á sjúkrahúsiö. Þar sagöi frú Markley: — Hún heitir Susan Markley. Seinna sagöi hún, að þetta nafn heföi bara komið af sjálfu sér, því hún þekkti enga manneskju meö þvi nafni. Þetta var einfaldlega þaö fyrsta sem henni datt I hug. Barnið var strax lagt á gjör- gæzludeild og frú Markley fdr til lögreglunnar og skýröi frá þvi, hvernig hún hefði fundiö það. Viö lögreglustjórann sagöi hún: — Viö hjónin viljum gjarnan taka barniö aö okkur, ef þaö er hægt. Viö getum ekki skiliö hvernig nokkur manneskja og þá slzt móöir, getur veriö svona grimm gagnvart barni sinu. Þaö sem hún gerði, er ekkert betra en morö. Þaö var hrein tilviljun aö viö fundum hana. Lögreglan hafði ekkert viö þaö aö athuga aö Markley-hjón- in tækju barniö aö sér þegar þaö kæmi af sjúkrahúsinu. En jafn- framt var hafizt handa við að leita aö þeim, sem sett haföi barniö I slmaklefann. Telpan lá á sjúkrahúsinu I tólf daga, en þá sótti frú Markley hana. Barna- verndarnefndin, sem fengiö haföi tilkynningu um atburöinn, kom á heimilið og allir glöddust

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.