Fréttablaðið - 25.05.2006, Page 63

Fréttablaðið - 25.05.2006, Page 63
Þróttardagurinn er í dag kl.12-14 Allir íbúar Þróttarbæjarins sérstaklega velkomnir. Líka aðrir velunnarar félagsins, ungir sem eldri félagsmenn, fyrrverandi stjórnarmenn, rækjuskipstjórar og leiðsögumenn. Fyrrverandi handboltamenn, mæður og mæðgur, feðgar og frísklegir synir, nýlegir vinir og gamlir óvinir, sem vilja endurnýja kynnin. Það eru allir Þróttarar í aðra röndina, allir Þróttarar eru vinir, svo allir eru vinir í aðra röndina. Dúndurdagskrá Knattþrautir, ratleikur, götukarfa, hoppukastalar, leiktæki, andlitsmálun, góðgæti af grillinu auk þess sem slökkviliðið og sjúkraliðið koma í heimsókn. Kynnt verður nýjasta deildin í félaginu, sem er Krulla, en heyrst hefur að slétthærðir fái krullujárn við inngöngu í deildina. Auk þess er kynning á Íþróttaskólanum í Laugardal, en þar geta krakkar úr hverfi nu fundið sér ýmislegt skemmtilegt að gera í sumar. Fyrsti heimaleikur karlaliðsins tekur við af skipulögðum hátíðarhöldum dagsins, en Þróttarar tróna nú á toppi 1. deildar og ætla sér að vera þar. En það eru ekki bara leikmenn sem ætla að endurheimta sæti sitt meðal þeirra bestu. Köttararnir ætla sér sömuleiðis aftur á toppinn sem bestu stuðningsmenn landsins og væri gaman að ná góðum takti á þessum fyrsta heimaleik. Þróttur - Fjölnir kl. 14 Hvað fi nnurðu margt eins á þessum myndum? Ársmiðar á alla heimaleiki meistarafl okks karla seldir í miðasölunni Ársmiði á 6000 kall LIFI ÞRÓTTUR Hvert fór Steini? in g va r ví ki n g ss o n / f ít

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.