Fréttablaðið - 25.05.2006, Blaðsíða 40
FIMMTUDAGUR 25. maí 2006 3
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Sumarið nálgast nú óðum, þó
stundum geti maður spurt sig
þegar litið er á hitamælinn,
hvort sem er í Reykjavík eða
París, hvort svo sé í raun og
veru. Á sama tíma má sjá í
hverju einasta tímariti allt það
sem er ómissandi fyrir sumarið,
svo sem þvengskó, sólgleraugu
og fleira. Ekki má gleyma öllum
galdrapillunum og kremunum
sem eiga að bræða magann í
einni svipan og slétta appelsínu-
húðina áður en haldið er út í sól-
ina - og auðvitað svínvirkar þetta
allt saman! Hvert einasta snyrti-
vörufyrirtæki hefur fundið upp
alveg nýja lausn til að eyða
hrukkum, pokum og lyfta hrein-
lega augnalokunum án andlits-
lyftingar, (Success eye teck,
Guerlain). Elizabeth Arden
veðjar á sjávarkrem sem virkar
í heilan sólarhring (Creme
hydradante Continune 24h) en
Vichy trúir á krem sem vinnur á
nóttinni, afeitrar og nærir húð-
þræðina (liftactiv pronuit).
Ég vona að þið hafið ekki
gleymt að byrja á sólartöflunum
sem á að taka inn tveimur mán-
uðum fyrir sólarferðina til að
undirbúa húðina og minnka
brunahættu. Annars er alltaf
hægt að skella á sig brúnku-
kremi, en þau verða sífellt betri
og hrukka miklu minna en
ofnotkun á sól.
Hvert fyrirtækið keppist svo
við annað að senda á markað
sumarilm sem þetta árið á helst
að vera með rósailmi eins og La
rose angel frá Thierry Mugler.
Armani hefur gert Armani code
(sbr. Da Vinci code?). Aðrir róa á
gömul mið eins YSL sem enn og
aftur markaðssetur Paris, Eau
d´été fyrir sumarið án þess að
taka mikla áhættu með ilmi af
bleikum rósum. Issey Miyake
blandar saman rósum og liljum,
Stella McCartney veðjar á
sítrónuilm, Trendy.
Svo er það alveg ný ilmvatns-
grein sem hefur verið að þróast í
París þar sem eru í boði einir
fimmtán ilmir, hver og einn ein-
stakur. Frédéric Malle hefur á
fimm árum skapað sér nafn sem
aðal lúxusilmframleiðandi borg-
arinnar og hefur nýlega opnað
þriðju ilmvatnsbúð sína í París
21, Mont-Thabor í fyrsta hverfi
sem líkja mætti við musteri
ilmsins. Þveröfugt við flesta í
lúxusiðnaðinum sem reyna að
láta sem mest á sér bera er allt
byggt á látleysi og einfaldleika
hjá Malle enda minna búðirnar
meira á listagallerí en tískuhús.
Viður á gólfinu, bækur á veggj-
um og svo hinir ótrúlegu „mát-
unarklefar“ úr gleri til þess að
„máta“ ilminn af ilvötnunum.
Ilmvatnsglösin nútímaleg með
svörtum miða og rauðum stöf-
um. Innst í búðinni skrifstofa
með glerhurð þar sem ekkert er
falið, til að skapa trúnaðarand-
rúmsloft. Þrátt fyrir látleysið
hefur orðspor Frédéric Malle
borist víða og nú hefur stór-
verslunin Barney´s í Bandaríkj-
unum, keðjan sem kom bæði
Armani og Prada á koppinn á
sínum tíma, veðjað á hann. Yndis-
legt líf!
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Ilmur, hrukkubanar og appelsínuhúð
����������������
�������������
������������
�����������
�����
������������������
�����������������������
Hvar annars staðar en í SoHo-
hverfinu í New York finnur
maður fínustu og flottustu tísku-
vöruverslanirnar?
SoHo, sem stendur fyrir South of
Houston, hefur lengi verið svalasta
hverfi Manhattan-eyju New York
borgar. Þar má finna allar dýrustu
verslanirnar sem jafnframt eru
þær mest nýmóðins. Tískuvöru-
framleiðendur hafa margir lagt
mikla vinnu og peninga í að gera
verslanir sínar sem flottastar og
hafa margir fengið heimsfræga
arkitekta til þess að hjálpa sér að
gera híbýli sín sem glæsilegust.
Gott dæmi um magnaða verslun er
flaggskip Prada, sem hollenski
arkitektinn Rem Koolhaas hann-
aði.
Nýjasta viðbótin við þessa flóru
hönnunarverslana má finna á svo-
lítið undarlegum stað. Í húsi sem er
bæði ljótt að utan og staðsett í
nokkuð skuggalegri götu hefur
Longchamp
nýlega opnað
nýja og glæsi-
lega verslun,
La Maison
Unique. Til
verksins var
fenginn breski
arkitektinn
Thomas
Heatherwick
en það sem er
helst sérstakt
við verslunin
er að aðalhæð
hennar er ekki
sú fyrsta heldur önnur hæðin, sem
er gert til þess að fá fólk í gegnum
allt rými verslunarinnar.
Hönnun verslunarinnar var
mjög flókin en í hana var notað stál
sem var blandað við náttúrulegt
gúmmí. Á yfirmaður stálverk-
smiðjunnar að hafa sagt að hann
„hafi einungis gert þetta til þess að
geta sagt barnabörnunum sínum
frá því.“ - sha
Hönnunarverslanir í SoHo
Stigi verslunarinnar
Longchamp flæðir
einstaklega skemmti-
lega.
Nýjar snyrtivörur frá
Biotherm sem viðhalda
unglegu andliti og
líkama eru komnar í
verslanir.
Biofirm Lift er þéttandi og
styrkjandi krem fyrir and-
lit og háls. Kremið viðheldur
teygjanleika húðarinnar og
fyllir upp í hrukkur og
ójöfnur svo húðin fær fal-
legri áferð.
Cellulite Intense Peel er
gel með tvöfalda virkni. Á
sama tíma og gelið vinnur
á appelsínuhúð, slípar það
húðina og endurnýjar hana.
Útkoman er fallegri útlínur
og sléttari húð.
Fallegri og unglegri
húð með Biotherm
Fæst í heilsubúðum, apótekum,
og heilsuhornum verslana
Einnig sjampó, hárnæring o.fl.
DREIFING: JÓN KARLSSON • SÍMI: 5610570
• 100% náttúrulegir jurtalitir
• Engin skaðleg aukaefni
• Ekkert ammóníak
• Laust við festiefni (Resorcinol)
• Þægilegt og fljótlegt í notkun
• 30 litir (Hægt að blanda fleiri)
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTUSKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
ALLT FYRIR HEILSUNA
ALLT er n‡ vöru- og fljónustuskrá á visir.is. Ef flú ert a› breyta um lífsstíl
er gott a› hafa ALLT vi› höndina flví flar finnur flú ALLT sem flú flarft til
a› koma flér í form. ALLT er líka a› finna í fljónustunúmerinu 1850 og í
vor ver›ur ALLT bókinni dreift til allra landsmanna. fiú finnur ALLT á
visir.is!
... sem flig vantar til
a› hefja n‡tt líf
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI