Fréttablaðið - 25.05.2006, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 25.05.2006, Blaðsíða 22
 25. maí 2006 FIMMTUDAGUR22 hagur heimilanna VELFERÐ UMHVERFI NÝSKÖPUN Anna Sigríður Ólafsdóttir, doktor í næringarfræði 5 sæti „ Heilnæmt og öruggt umhverfi.“ ■ Friðrik Valur Karlsson, matreiðslu- meistari á Friðriki V á Akureyri, er með góð ráð undir hverju grilluðu rifi. Friðrik Valur segir að áður en grillið er hitað sé hentugt að strjúka grindina með olíu til að koma í veg fyrir að hráefnið festist á grindinni. Hann segir best að snúa fiski aðeins einu sinni þegar hann er grillaður því ella sé hætta á að hann losni í sundur. Þegar grillpinnar úr tré eru notaðir er gott að láta þá liggja í bleyti í vatni í tvo tíma áður en hráefnið er þrætt upp á þá. Þetta kemur í veg fyrir að pinnarnir brenni. GÓÐ HÚSRÁÐ GOTT AÐ BLEYTA GRILLPINNA ÚR TRÉ „Ein bestu kaup sem ég hef gert voru þegar ég keypti tvær vandaðar fluguveiðistangir í Sjóbúðinni á Akur- eyri fyrir tæpum áratug,“ segir Bjarni Hafþór Helgason, framkvæmdastjóri Hildings á Akureyri. Önnur stöngin var tvíhenda en hin einhenda, báðar af gerðinni Sage, og hafa þær reynst Bjarna Hafþóri afskaplega vel. „Ég man ekki hvað stangirnar kostuðu en man þó að þessum kaupum fylgdu töluverð fjárútlát. Það sem stendur upp úr í minningunni, og ástæða þess að ég tel þetta á meðal minna bestu kaupa, var sú yndislega vellíðan eftir að ég ákvað að kaupa þessar tilteknu stangir. Ég hafði nefnilega velt því lengi fyrir mér hvernig stangir væri best að kaupa enda fer ég ekki nema vel vopnaður í veiði,“ Talandi um vopn og veiðar þá rifjast upp fyrir Bjarna Hafþóri önnur góð kaup. „Í fyrra keypti ég hálfsjálfvirka haglabyssu af gerðinni BREDA í Hlaði á Húsavík. Byssuna notaði ég til rjúpnaveiða síðastliðið haust og gerði svo góðan túr að af tilliti við veiði- málastjóra þá ræði ég það ekki frekar.“ Bjarni Hafþór hefur ekki fláð feitan gölt í öllum sínum viðskiptum og bílarekstur hans hefur oftar en ekki verið kostn- aðarsamur. „Ómeðvitað felur maður verstu kaupin yfirleitt einhversstaðar í horni hugans og þar fá þau að vera óáreitt. Sumir kalla þetta gleymsku en ég bráðnauðsynlegan sáluhjálparhæfi- leika. Ég hef átt marga gamla og misgóða bílana um dagana og þar sem ég er ekki bíladellukall geri ég ekki aðrar kröfur til bíla en ég komist á þeim í veiðiferðir og um hálendið. Miðað við viðgerðar- og rekstrarkostnað myndu eflaust margir álykta sem svo að oft hafi ég gert slæm kaup í bílaviðskiptum,“ segir Bjarni. NEYTANDINN: BJARNI HAFÞÓR HELGASON, AKUREYRI Tillitssamur í garð veiðimálastjóra Þegar sumarið kemur fara margir að huga að sólar- landaferðum. Að mörgu er að hyggja og eitt af því sem þarf að taka með í reikninginn er kostnaður við símanotkun. Flestir Íslendingar taka símann með í fríið en það eru ekki allir sem átta sig á þeim kostnaði sem því fylgir. Upplýsingar frá símafyrirtækjun- um sýna að það er að öllu jöfnu ódýrara að láta hringja í sig heldur en að hringja sjálfur heim. Þegar hringt er í íslenskan farsíma í útlöndum borgar sá sem hringir sama taxta og innanlandssímtal en viðtakandinn borgar þann kostnað- inn sem fylgir því að hringja á milli landa. Bæði hjá OgVodafone og Símanum er gjaldskrá í útlöndum skipt upp í svæði og fer kostnaður- inn eftir því hvar maður er. Hjá Símanum er Spánn á svæði 2 og sam- kvæmt gjaldskránni kostar 99 krónur mínút- an að hringja til Íslands en 109 krónur ef við- skiptavinurinn er með frelsi. Móttekið símtal þegar maður er á Spáni kostar hins vegar 39,90 krónur á mínútu. Hjá OgVodafone kost- ar 81 krónu á mínútu að hringja til Íslands frá Spáni og móttekið símtal kostar 37 krónur að því gefnu að viðskiptavinurinn sé skráður í Vodafone World en annars eru samsvarandi verð 89 og 39 krónur. Ef ferða- frelsi er notað hækkar reikningurinn umtals- vert en þá kostar 109 krónur ef hringt er en 41 krónur fyrir að taka við símtali. Ef hringt er í talhólf frá útlöndum er það jafn dýrt og að hringja heim. Það er hægt að loka fyrir talhólfið áður en farið er út þar sem það er greitt fyrir þau símtöl sem fara í tal- hólfið og það getur reynst dýrt þegar maður er í útlöndum. Á heimasíðum Símans og OgVodafone fást nánari upplýsingar um milli- landasímtöl og vert er að kynna sér málin vel áður en af stað er farið. gudrun@frettabladid.is Dýrt að hafa talhólf tengt í útlöndum Kostnaður við að tjalda er mjög misjafn á milli tjaldsvæða. Fréttablaðið gerði lauslega könnun á 7 tjaldstæðum um landið og reyndist ódýrast að tjalda á Ísafirði þar sem borgað er fyrir hvert tjald. Á flestum tjald- stæðunum var þó borgað fyrir manninn og ókeypis fyrir börnin. Í verðkönnun blaðsins var miðað við fjögurra manna fjölskyldu. Á þeim tjaldstæðum sem haft var samband við var hvergi verðmunur á því hvort fjölskyldan tjaldaði hefðbundnu tjaldi eða tjaldvagni og fellihýsi. Í Ásbyrgi og í Skaftafelli þarf að borga sérstaklega fyrir að fara í sturtu og í Ásbyrgi og á Ísafirði er boðið upp á afnot af þvottavél og þurrkara. Að sögn Ragnars F. Kristjánssonar þjóðgarðsvarðar í stærsta þjóðgarði heims, í Skaftafelli, er opið þar allt árið og dæmi um það að fólk komi jafnvel í janúar til að tjalda. Flestir gestirnir eru ferðafólk en aðeins 30 prósent gesta eru Íslendingar og 17 prósent þeirra eru Þjóðverjar. - gþg Ódýrast að tjalda á Ísafirði: Fólk tjaldar í Skaftafelli allt árið um kring ■ Skaftafell: Heildarkostnaður: 1.800 krónur. 600 krónur á mann fyrir nóttina. Ókeypis fyrir börn yngri en 16 ára. Salernisaðstaða, heitt vatn og rafmagn. ■ Skógar: Heildarkostnaður: 1.500 krónur. 500 krónur á mann fyrir nóttina. Ókeypis fyrir börn yngri en 14 ára. Salernisaðstaða, heitt vatn, ekki rafmagn. ■ Hallormsstaðir (Þurshöfðavík): Heildarkostnaður: 1.950 krónur. 650 krónur á mann fyrir nóttina. Ókeypis fyrir börn 12 ára og yngri. Salernisaðstaða, heitt vatn, rafmagn. ■ Ísafjörður: Heildarkostnaður: 800 krónur. 800 krónur fyrir tjald. Salernisaðstaða, heitt vatn, rafmagn, sturta. ■ Ásbyrgi: Heildarkostnaður: 1.200 krónur. 600 krónur á mann fyrir nóttina. Ókeypis fyrir börn yngri en 16 ára. Salernisaðstaða, heitt vatn, rafmagn. ■ Ólafsvík: Heildarkostnaður: 1.200 krónur. 300 krónur fyrir tjaldið og 300 krónur fyrir manninn. Ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára. Salernisaðstaða, heitt vatn, sturta, ekki rafmagn. ■ Skútustaðir við Mývatn: Heildarkostnaður: 1.950 krónur. 650 krónur á mann fyrir nóttina. Ókeypis fyrir 12 ára og yngri. Salernisaðstaða, heitt vatn, ekki rafmagn. VERÐ Á TJALDSTÆÐUM Sé gert ráð fyrir að yfirstandandi kuldakafli verði ekki landlægur hér á fróni í sumar má slá því föstu að fleiri og fleiri hugsa sér til hreyfings í sumar. Sem undanfarin ár eru línuskautar sívinsælir, ekki síst þar sem smátt og smátt fer fjölgandi stígum og vegum þar sem hægt er að stunda slíkar íþróttir án þess að hafa áhyggjur af umferðinni. Ýmsar verslanir selja línuskauta hvers konar en lausleg könnun leiddi í ljós að verðin eru æði misjöfn. Slá má því föstu að hægt er að kaupa sæmilega línuskauta frá fimm þúsund krónum og allt upp í 30 þúsund krónur eftir merki og gæðum. Barnastærðir má finna ódýrar á stöku stað en gera má ráð fyrir að fjögurra manna fjölskylda þurfi að eyða allt að 40 til 50 þúsundum ef öll fjölskyldan hefur hugsað sér að renna sér saman þetta sumarið. ■ Hvað kosta... línuskautar Ýmsir verðflokkar Miklar endurbætur hafa staðið yfir um hríð í Sundlaug Seltjarnarness en nú er þeim að mestu lokið og hefur verið ákveðið af því tilefni að opna hana formlega á nýjan leik í dag, uppstigningardag, með pompi og pragt. Verða veitingar í boði fyrir alla milli klukkan 14 og 16 en laugin verður opnuð eldsnemma í fyrramálið fyrir gestum. Verður frítt í laugina í heila viku af þessu tilefni og gestir hvattir til að kynna sér endurbætta laugina. ❚ Verslun og þjónusta Frítt í sund á Seltjarnarnesi Garðaeigendur allir skulu hafa hugfast að úðun garða í því þurra og kalda veðri sem geisað hefur að undanförnu er með öllu gagnslaus samkvæmt ábendingum sérfræðinga Umhverfisstofnunar. Er ítrekað fyrir fólki að aðeins skuli gripið til þess ráðs að úða þegar og ef skaðvaldar hafa klakist úr eggjum sínum og sjást með berum augum. Þess utan skal gæta þess að fá fagmenn til að úða en þeir einir hafa réttindi til þess frá stjórnvöldum. ❚ Verslun og þjónusta Gagnslaus garðaúðun * samkvæmt tölum Hagstofu Íslands 77 ,9 t on n 75 ,9 t on n 2002 2003 78 ,9 t on n 62 ,2 t on n 2004 2005 Útflutningur á íslensku sælgæti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.