Fréttablaðið - 25.05.2006, Blaðsíða 46
FIMMTUDAGUR 25. maí 2006 9
Tvöfaldur eggjaskeri er hentugt
áhald.
Í Búsáhöldum í Kringlunni
rákumst við á eggjaskera sem hvort
heldur sem er getur skorið eggin í
báta og sneiðar, allt eftir óskum og
þörfum. Hann kostar 1.520 krónur.
Bæði bátar og
sneiðar
Efsta laginu er lyft upp til að sneiða
eggin og næsta lagi ef þau eiga að fara
í báta.
nýtt }
Rykbólan frá Brynju hjálpar til við að
halda heimilinu hreinu.
Verslunin Brynja hóf fyrir nokkru
innflutning á sniðugu fyrirbæri sem
heitir Dust Bubble. Rykbóla þessi er
til þess ætluð að fanga allt ryk þegar
borað er í veggi. Bólan er fest við
vegginn, borað er í gegnum réttan
stað á plastinu og þá losnar maður
við að ryksuga á eftir eða anda að sér
óheilnæmum rykögnum.
Til eru þrjár gerðir af rykgildrum
þessum. Ein fyrir ómálaða fleti, ein
fyrir málaða og ein fyrir flísar. Verðið
fyrir tólf stykki í einum pakka er 250
krónur.
Leggur gildru fyrir
rykið
Tólf stykki af rykbólunni kosta 250 krónur.
Í Nýju Skátabúðinni að Faxa-
feni fæst skemmtileg vara sem
kallast DryZone en varan flýtir
fyrir þurrkun á skóm, vettling-
um og öðru slíku.
DryZone er stórsniðug-
ur búnaður fyrir þá sem
stunda mikla útiveru.
Dryzone samanstendur
af tveimur pokum
sem er fullir af
svokölluðum
hygroscopic-
kristöllum.
Pokarnir eru settir ofan í raka
eða blauta skó, hanska eða annað
sem þarf að þurrka. Kristallarnir
draga í sig vætu og flýta þannig
fyrir þurrkun ásamt því að koma í
veg fyrir ankannalega lykt af úti-
vistarbúnaðinum.
Dryzone búnaðurinn á að
duga í nokkur ár sé hann
meðhöndlaður rétt. Fari
virknin minnkandi má
setja pokana á ofn eða í
örbylgju til að ná henni
upp aftur.
Nánari upplýsingar
um vöruna má fá hjá
Nýju skátabúðinni og
hjá Norðlensku Ölp-
unum á Akureyri.
Dryzone þurrkar
Dryzone búnaðurinn er kjörinn í göngu-
ferðina enda hjálpar hann til við að ná
skóm og öðrum búnaði fljótar þurrum.
Nú er fluguvertíðin að komast
á fullt og þá er ágætt að hafa
nokkur atriði í huga.
Á kvöldin þegar birtan er ögn
minni eiga flugur það til að sækja í
það ljós sem þær
finna. Því er ágæt
regla að slökkva ljós
þegar ekki er verið
að nota þau.
Einnig er vert að
hafa í huga að þegar
stillt er upp sérstök-
um flugnagildrum
skulu þær vera fjarri mönnum.
Margir falla í þá gryfju að hafa
gildrurnar nálægt sér en þær eru
einmitt til þess gerðar að draga
flugur að sér og loka þær svo inni.
Einnig er ágætt að renna augum
yfir garða og þakskegg og leita að
búum áður en haldið er í langt frí.
Býflugna og geitungabú stækka
ótrúlega hratt á stuttum tíma og
best er að láta eyða búum sem
finnast sem allra
fyrst.
Munið líka að skor-
dýraeitrið og flugna-
baninn eru jú vissu-
lega eitruð og geta
farið illa með við-
kvæm húsgögn ef
flugan er veidd á þeim
stað. Klístraðar klessur geta líka
myndast á gluggum og því ágætt
að strjúka strax yfir með klút eftir
að spreyjun er lokið.
Fluguvertíðin
Diskamotta fyrir
hunda
Sumir hundar slefa meira en aðrir.
Þá eru einnig sumir hundar snyrti-
legri en aðrir þegar kemur að því að
drekka úr skál. Stórir hundar með
mikil gin eiga það til að sulla vatni
út um öll gólf. Fyrir utan leiðindin
við að stíga sífellt í bleytu getur
vatn skemmt
bæði parket og
gert bletti á
gólfefni. Gott
ráð er að fá
diskamottu úr
plasti og setja
hana undir vatnsdallinn. Þannig
minnkar töluvert sá skaði sem ann-
ars hlytist af.
húsráð }