Fréttablaðið - 25.05.2006, Blaðsíða 36
25. maí 2006 FIMMTUDAGUR36
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða hringja í
síma 550 5000.
MERKISATBURÐIR
1929 Þingmenn Íhaldsflokksins
og Frjálslynda flokksins
stofna Sjálfstæðisflokkinn.
1935 Babe Ruth slær 714. og
síðasta heimahlaupið sitt
á hafnaboltaleikvangi í
Pennsylvaníu. Þetta var met
sem stóð í 39 ár.
1946 Abdúllah fyrsti lýsir sig
konung Transjórdaníu.
1958 Steinn Steinarr deyr, ein-
ungis 49 ára að aldri.
1977 Fyrsta Stjörnustríðsmyndin
er frumsýnd.
1987 Jarðskjálfti verður suður af
Heklu og er hann sá stærsti
sem mælst hefur á Suður-
landi síðan 1912.
1999 Íslenskur leiðangur fer á
jeppum þvert yfir Græn-
landsjökull en slík ferð var
þá fordæmislaus.
IGOR SIKORSKY (1889-1972)
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Þyrlan er það farartæki
sem kemst næst því að
uppfylla aldagamlan
draum mannkynsins um
fljúgandi hesta og
galdrateppi.“
Fyrirtæki Sikorskys var, og er enn,
leiðandi í þróun og framleiðslu á
þyrlum.
Á þessum degi árið 1935 setti
Bandaríkjamaðurinn Jesse
Owens þrjú heimsmet og jafnaði
eitt á háskólaleikum í Michigan.
Þrjú korter liðu frá því að hann
setti fyrsta metið þangað til það
síðasta var slegið og er afrekið af
mörgum talið eitt það merkasta
í íþróttasögunni. Metin voru sett
í spretthlaupum, grindahlaupi og
langstökki.
Jesse Owens fæddist í sept-
ember árið 1913 og var af fátæku
fólki kominn. Hann hóf að æfa
frjálsar íþróttir á unglingsárum og
stundaði nám við ríkisháskólann
í Ohio þar sem hann hélt æfing-
um áfram.
Á Ólympíuleikunum í
Berlín árið 1936 varð Owens
heimsfrægur og fór heim af
mótinu með fjögur gullverðlaun
í farteskinu. Hann stakk mjög
í stúf vegna þeldökks litarhafs
síns á leikunum, sérstaklega
vegna þess að Hitler, sem þá
var kanslari Þýskalands, lagði
mikla áherslu á yfirburði arískra
keppenda lands síns. Mikla
athygli vakti að Hitler tók ekki í
höndina á Jesse Owens þegar
hann stóð á verðlaunapalli og
þótti mörgum það til merkis um
að Hitler liti niður á Owens.
ÞETTA GERÐIST > 25. MAÍ 1935
Jesse Owens setur heimsmet
JESSE OWENS Á HLAUPABRAUTINNI
„Maður fær alltaf sama fiðringinn, það
fer aldrei af manni,“ segir Kristinn R.
Ólafsson, sem flutt hefur íslenskum
útvarpshlustendum pistla sunnan úr
Evrópu í aldarfjórðung. Í dag heldur
hann einmitt upp á starfsafmælið því
þennan dag fyrir tuttugu og fimm árum
fór fyrsti pistillinn í loftið. „Menn halda
upp á afmælin sín og þurfa ekki að gera
neitt til þess nema tóra. Til að halda upp
á starfsafmæli þarf maður að tóra bæði
í lífi og starfi,“ segir Kristinn gletti-
lega.
Pistlarnir hafa flestallir verið sendir
út í Ríkisútvarpinu og eru nú farnir að
telja hátt í fjögur þúsund stykki. „Ég
býst við því að ég eigi milli 85 og 90 pró-
sent pistlanna. Tölvuvæðingin hefur
farið svolítið illa með mig því tölvur
eiga það til að gleypa gögnin með húð og
hári af einhverjum ókunnum ástæðum
og hefur komið fyrir að eitthvað hefur
þurrkast út hjá mér. Þegar ég tölvu-
væddist fyrst átti ég Amstrad-tölvu sem
nú er orðin forngripur. Þá átti ég alla
pistlana á disklingum sem maður stakk
í tölvuna og kveikti á. Ég var einmitt að
fá tilbaka pistla frá 1989 til 1993 sem
voru geymdir á svona disklingum en þá
sendi ég til Lundúna um daginn þar sem
er einn maður í heiminum sem stundar
að endurheimta svona.“
Eins og gefur að skilja hefur Krist-
inn fjallað um margan manninn í pistl-
um sínum, „frá knattspyrnuhetjum upp
í kóngafólk og allt þar á milli,“ eins og
hann segir sjálfur. Pistlarnir um knatt-
spyrnuna, eða „Spánarsparkið“, eru nú
orðnir ófáir og eiga sér hvað dyggastan
hlustendahóp. „Ég sé hérna í mínum
gulnuðu blöðum að ég hef verið farinn
að tala um þetta strax árið 1981. Fljót-
lega eftir að ég byrjaði, eða árið eftir,
var heimsmeistaramótið í fótbolta hald-
ið hér á Spáni og var ég meðal annars í
beinni í hálfleik byrjunarleiksins frá
Barselónu. Ég get nú líka aðeins grobb-
að mig af því að hafa líklega fundið upp
orðið Börsungur sem síðan hefur festst
í tungunni.“
Aðspurður segist Kristinn minnast
sérstaklega eins pistils sem hann skrif-
aði 7. nóvember 1983. „Pistillinn fór þó
ekki í loftið fyrr en nokkru seinna því
Margrét Indriðadóttir sem þá var frétta-
stjóri, sagði hún mér löngu seinna, tók
langan tíma í að ákveða hvort hann ætti
að fara út því hún velktist í vafa um við-
brögð hlustenda við honum. Pistilinn
skrifaði ég um neyðarbúnað á líkkistur
sem spænskur vísindamaður hannaði
svo að kviksettir gætu látið vita af sér.
Margrét lét loks slag standa, og enginn
fékk slag.“
Kristinn ber í maganum að gefa
úrval pistla sinna út á bók og lýsir eftir
djörfum útgefanda til að taka verkefnið
að sér. „Það væri mjög gaman að fara
yfir þetta allt saman, velja úr og koma
eins og hundrað pistlum út í bók til varð-
veislu. Orðum sem töluð eru í útvarp er
sáð upp í vindinn.“
KRISTINN R. ÓLAFSSON: 25 ÁRA PISTLAAFMÆLI
Frá knattspyrnuhetjum til
kóngafólks og allt þar á milli
FYRSTI PISTILLINN Kristinn varðveitir flesta pistl-
ana sína og lýsir eftir djörfum útgefanda til að
koma úrvali þeirra út á bók.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR EINKASAFNI
KRISTINN R. ÓLAFSSON LES PISTILINN Í 25 ár hefur Kristinn sent pistla frá Spáni og fjallað um allt frá
Spánarsparkinu til neyðarbúnaðar á líkkistur. FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR EINKASAFNI
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi,
Vigfús Guðbrandsson
íþróttakennari, Dimmuhvarfi 7, Kópavogi,
lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi í Fossvogi þriðju-
daginn 16. maí. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 26. maí kl. 13.00.
Jóhanna Eydís Vigfúsdóttir Þorbjörn Bjartmar Björnsson
Ásgerður Fríða Vigfúsdóttir Fjölnir Ernis Sigvaldason
Aðalbjörg Sigurrós Vigfúsdóttir Guðmundur Magnús Elíasson
Jófríður Guðbrandsdóttir
Andri Már Halldórsson
Hulda María Þorbjörnsdóttir
Róbert Högni Þorbjörnsson
Úlfur Benedikt Fjölnisson
Anton Vigfús Guðmundsson
Ísól Hanna Guðmundsdóttir
Jónatan Magnús Guðmundsson
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Þórhallur Jónsson
frá Lóni
verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugardaginn
27. maí kl. 14.00.
Aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Íva Bjarnadóttir
Sóltúni 2, Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 14. maí verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju á morgun, föstudaginn 26. maí,
kl 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélagið.
Björn Halldórsson Kristín Bjarnadóttir
Edda Magndís Halldórsdóttir Kristinn Jóhann Sigurðsson
Viðar Halldórsson Ragna Bogadóttir
Gyða Halldórsdóttir Guðjón Reynir Jóhannesson
Dóra Kristín Halldórsdóttir Kristján Þórðarson
Sigrún Guðnadóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Guðmundur Hjartarson
Sóltúni 43, Selfossi, áður bóndi Grænhóli í
Ölfusi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands föstudaginn
19. maí. Útförin fer fram frá Kotstrandarkirkju
laugardaginn 27. maí kl. 13.00.
Jónína Guðmundsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir Jón Halldór Gunnarsson
Jóhanna Guðmundsdóttir Ölver Bjarnason
Guðbjörg Guðmundsdóttir Sigvaldi Guðmundsson
Steindór Guðmundsson Klara Öfjörð Sigfúsdóttir
og barnabörn.
Útför
Sigrúnar I. Sigurþórsdóttur
frá Eiðum
verður gerð frá Seljakirkju föstudaginn 26. maí kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Minningarsjóð Skógarbæjar í síma 510-2100.
Aðstandendur.