Fréttablaðið - 25.05.2006, Page 86

Fréttablaðið - 25.05.2006, Page 86
FRÉTTIR AF FÓLKI Fljótt skipast veður í lofti í lífi stjarn-anna í Hollywood en fjörkálfurinn Nicole Richie hefur nú slitið sambandi sínu við plötusnúðinn Adam Goldstein. Í fréttatilkynningu um helgina frá föður hennar, söngvar- anum Lionel Richie sagði að kærustuparið væri á leið upp að altarinu og að sjálfur hjartaknús- arinn myndi syngja í brúðkaupinu. Í gær kom svo tilkynning frá parinu þess efnis að parið væri nú skilið að skiptum. Richie er frægust fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Simple life ásamt fyrrum vinkonu sinni Paris Hilton en tökur á síðustu þáttaröð reyndust erfiðar enda neituðu dívurnar að hittast á tökustað. Leikarinn Brad Pitt missti af frumsýningu nýjustu myndar sinnar, Babel, í Cannes. Ástæðan er sú að kærasta leikarans, Angelina Jolie, ber barn þeirra undir belti og á von á sér innan skamms. Pitt dó þó ekki ráðalaus heldur sendi gestum frum- sýningarinnar tölvupóst þar sem hann bað að heilsa og sagðist mjög ánægður með myndina í heild sinni. Myndin verður frumsýnd hér á landi seinna á þessu ári og eru meðleikarar Brad Pitt í myndinni Cate Blanchett og Gael Garcia Bernal. Leikkonan Jennifer Aniston missti næstum því af hlutverki í nýjustu mynd sinni The Break-up vegna þess að fram- leiðendur myndarinnar töldu of stutt síðan hún skildi við hjartaknús- arann Brad Pitt. Þegar þeir loksins spurðu hana var hún ekki lengi að játa og fannst það vera góð leið til að jafna sig á sambandslitunum. Jennifer er nú í tygjum við samleikara sinn í myndinni, Vince Vaughn, en kvikmyndin verður frumsýnd á næstunni. Hollywoodstjarnan Tom Cruise hefur neitað sögusögnum þess efnis að unnusta hans, Katie Holmes, þjáist af fæðingarþunglyndi. Nokkur slúður- blöð hafa sagt Katie vera sífellt grátandi frá því að hún eignaðist barnið. „Þessar fréttir eru ekki sannar og ungfrú Holmes líður dásamlega,“ sagði talsmaður Cruise en leikarinn gagnrýndi Brooke Shields fyrir það í fyrra að notast við þunglyndislyf til þess að sigrast á sínu fæðingarþunglyndi. Cruise er handviss um að þunglyndi af slíku tagi sé hægt að lækna með vítamínum. „Ég giska á að Tom hafi aldrei þjáðst af fæðingarþunglyndi. Hann ætti að halda sér við að bjarga heiminum frá geimverum og láta konur um að ákveða hvaða meðferð gagnist best,“ sagði Brooke Shields þá til baka.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.