Fréttablaðið - 25.05.2006, Blaðsíða 71

Fréttablaðið - 25.05.2006, Blaðsíða 71
Supergrass var stofnuð í Oxford á Englandi árið 1993. Sveitin á rætur sínar að rekja til hljómsveitarinnar The Jenni- fers sem var stofnuð tveimur árum fyrr af söngvaranum Gaz Coombes og trommaranum Danny Goffey. Áhrifavaldar voru sveitir á borð við The Buzzcocks, The Jam, The Kinks og The Who. Eftir útgáfu einnar smáskífu árið 1992 lagði sveitin upp laupana. Í fram- haldinu höfðu þeir Gaz og Goffey samband við bassaleikarann Mick Quinn og saman stofnuðu þeir Supergrass. Fljótlega fór sveitin að vekja athygli og þegar fyrsta platan, I Should Coco, kom út ætlaði allt vitlaust að verða. Hvert lagið á fætur öðru náði vinsældum en þó mest hið gleðiríka Alright sem gerði Supergrass að einni af vin- sælustu hljómsveitum Bretlands og þótt víðar væri leitað. Ný plata í smíðum Síðan þá hefur sveitin gefið út fimm hljóðversplötur, nú síðast Road to Ruen. Þrátt fyrir að vin- sældir Supergrass hafi dvínað nokkuð undanfarin ár er sveitin engu að síður enn með þeim virt- ari í breska tónlistarbransanum fyrir vandaðar og hressilegar lagasmíðar sínar. Hinn þrítugi Gaz Coombes hlakkar mikið til ferðarinnar til Íslands. „Þetta verður frábært. Við höfum aldrei komið þangað áður en margir vinir okkar hafa komið þangað. Strákarnir í Radio- head sögðu mér frá landinu og þeim fannst rosalega gaman þar,“ segir Coombes og virkar nokkuð hress í bragði. Mikið er um að vera hjá Superg- rass þessa dagana því sjötta plata sveitarinnar er í undirbúningi. Verður hún væntanlega tilbúin í byrjun næsta árs. „Við erum að semja og taka upp ný lög, þannig að við spilum ekkert á tónleikum nema við sérstakar aðstæður eins og að fara til Íslands,“ segir hann í léttum dúr. „Okkur gengur mjög vel og erum mjög spenntir fyrir nýju plötunni. Nýju lögin okkar eru kraftmikil rokklög og það er mjög gaman að spila þau.“ Hraði og fjölbreytni Gaz segir að orkan streymi frá Supergrass á hverjum tónleikum og því geti Íslendingar átt von á hörkutónleikum. „Við erum alltaf mjög spenntir og vel stemmdir fyrir hverja tónleika þó svo að það séu liðin tólf til þrettán ár síðan við byrjuðum að koma fram. Að spila á tónleikum er afar fullnægj- andi fyrir okkur. Hraðinn er mikill og fjölbreytnin er alltaf í fyrir- rúmi,“ segir Gaz, sem einnig spil- ar nokkur lög órafmagnað með bassaleikaranum Quinn á hverj- um tónleikum. „Við spilum lög af öllum plöt- unum okkar en síðan ætlum við að reyna að spila eitt glænýtt lag sem við höfum verið að semja á undan- förnum vikum. Við þurfum að klára textann fyrst og svo sjáum við til,“ segir hann. Ánægður með Leaves og Börk Gaz man vel eftir strákunum í Leaves, sem hituðu upp fyrir Supergrass á tónleikaferð sveitar- innar um Bretland á síðasta ári. „Þeir voru mjög traustir og fínir gaurar. Þeir voru með sama hugs- unarhátt og við, enda erum við allir miklir aðdáendur Beach Boys. Þeir voru mjög fínir og við skemmtum okkur vel,“ segir hann. Börkur Sigþórsson leikstýrði jafnframt myndbandi við lagið St. Petersburg af plötunni Road to Ruen. „Hann var alveg frábær. Hann hannaði gott útlit fyrir myndbandið sem var í anda popp- myndbanda frá sjöunda áratugn- um. Myndbandið leit út eins og við hefðum ekki haft mikinn pening í verkið, sem við höfum engu að síður. Ég hafði mjög gaman af þessu myndbandi,“ segir Gaz og ber Íslendingum greinilega vel söguna. Afmælisveisla 4. júní Gaz segist ekki geta dvalið lengi hér á landi því hann ætli að halda upp á afmæli dóttur sinnar hinn 4. júní. „Það er frábært að vera fjöl- skyldumaður en það breytir því samt ekki hvernig ég nálgast tón- listina. Þetta breytir auðvitað lífs- mynstrinu hjá manni; að vera faðir og fara ekki á pöbbinn á hverju kvöldi, en þetta breytir því ekki hvernig ég spila tónlist,“ segir hann á alvarlegan hátt og meinar greinilega hvert orð. Þegar blaðamaður minnist á bartana frægu sem hann hefur skartað síðan Supergrass kom fyrst fram á sjónarsviðið hlær Gaz. „Þeir eru dálítið stuttir núna en ég ætla ekkert að raka þá af. Kannski geri ég það þegar ég verð orðinn of gamall.“ Bætir hann því við að hárið á sér þessa dagana sé stutt í anda stórleikarans Marlon Brando snemma á sjötta áratugn- um. Gaz játar að vera mikill kvik- myndaaðdáandi og á risastórt sjónvarp heima hjá sér. Einnig er hann með hljóðver á heimili sínu og eyðir miklum tíma þar þegar hann er ekki á tónleikaferð með Supergrass. „Ég sem mikið í frí- tíma mínum. Ef ég myndi vinna í búð eða eitthvað svoleiðis myndi ég bara fara heim eftir vinnu og búa til tónlist. Þetta er það sem ég elska að gera og síðan er mjög afslappandi fyrir mig að setjast bara niður og spila á gítarinn. En mér finnst reyndar líka gott að lesa og spila fótbolta í Playstat- ion,“ segir Gaz, sem hefur verið aðdáandi Manchester United síðan hann var fimm ára. The Zutons í uppáhaldi Supergrass var á sínum tíma talin ein af Britpop-hljómsveitunum sem voru hvað vinsælastar um miðjan tíunda áratuginn; sveitir á borð við Blur, Oasis og Pulp. Gaz segir að Britpop-stimpill- inn hafi alltaf verið nokkuð sem fjölmiðlar hafi fundið upp á. „Mér fannst þetta aldrei nógu sterk hreyfing til að hafa titil. Þetta var hvorki pönkhreyfing né nýbylgju- hreyfing heldur var þetta bara samansafn af góðum enskum hljómsveitum, en mér fannst við samt vera bestir af þeim,“ segir hann. „Annars finnst mér tónlistin sem er í gangi núna ansi góð. Það er margt gott að gerast en samt eru líka margar hljómsveitir að gera svipaða tónlist og það er frek- ar pirrandi.“ Nefnir hann The Zutons og The Coral sem þær bresku sveitir sem hann fíli mest um þessar mundir. Í Bandaríkjunum er hann aftur á móti hrifinn af The White Stipes, The Strokes, The Flaming Lips og blúsaranum Son of Dave. Aldrei verið hamingjusamari Lagasmíðar Supergrass voru létt- ar og hamingjuríkar þegar sveitin var að byrja og virtist spilagleðin vera í algjöru fyrirrúmi. Þó svo að tónlist Supergrass hafi breyst nokkuð síðan þá segist Gaz engu að síður ennþá vera jafn- hamingjusamur og í „gamla daga“. „Það var mikil gleði og mikill barnaskapur í gangi þegar maður var sautján ára. Maður vissi ekk- ert allt of mikið þarna og það gaf manni frelsi og maður gat slappað betur af. Þegar maður verður eldri missir maður kannski eitthvað af þessu frelsi og þessum barnaskap en ég held að ég sé samt hamingju- samari en nokkru sinni fyrr, enda ganga hlutirnir mjög vel hjá mér. Ég á fallegt hús, fallega dóttur og er í frábærri hljómsveit sem á ennþá eftir að semja sín bestu lög, þannig að ég get verið hamingju- samur yfir mjög mörgu.“ Supergrass spilar á Reykjavík Trópík laugardagskvöldið 3. júní og að sjálfsögðu munu vinir henn- ar í Leaves spila rétt á undan. Miða- sala á útihátíðina er komin á fulla ferð og fer fram á midi.is og í versl- unum Skífunnar. Einnig er hægt að kaupa miða í BT á Akureyri og Sel- fossi. Tuttugu ára aldurstakmark er inn á alla tónleikana. 25. maí 2006 FIMMTUDAGUR46 Orkan streymir á hverjum tónleikum GAZ COOMBES Söngvari og gítarleikari Supergrass er á leiðinni til Íslands í byrjun næsta mánaðar. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES Breska hljómsveitin Supergrass er aðalnúmerið á tónlistarhátíðinni Reykjavík Trópík sem verður haldin 2. til 4. júní. Freyr Bjarnason sló á þráðinn til Gaz Coombes, söngvara og gítarleikara sveitar- innar, og spurði hann meðal annars út í bartana sem hafa verið einkennismerki hans í gegnum árin. Börkur Sigþórsson tók síðasta sumar upp myndband við fyrsta smáskífulag plötunnar Road to Ruen með Super- grass, sem nefnist St. Petersburg. „Það var bara mjög þægilegt að vinna með þeim. Þetta eru fínir gæjar í samstarfi og eru algjörlega með fæturna á jörðinni,“ segir Börkur. Á þessum tíma var Supergrass-mynd- bandið stærsta verkefni sem hann hafði unnið að. Áður hafði hann m.a. leikstýrt myndböndum fyrir Thirteen Senses, Faultline, Mínus, Maus og Quarashi. Börkur segist vera mikill aðdáandi bresku sveitarinnar. „Ég hef alltaf verið mikill Supergrass-aðdáandi. Þetta er frábært band.“ Eftir að Börkur tók upp Supergrass- myndbandið tók hann upp myndband við smáskífulagið Break the Night with Colour með Richard Ashcroft, fyrrum forsprakka The Verve. Var það verkefni töluvert stærra í sniðum. „Það var mjög fínt að vinna með Ashcroft. Þetta eru allt voða miklir fagmenn. Þetta er lið sem er búið að vera lengi í brans- anum og er ekki með mikið vesen,“ segir Börkur, sem einnig starfar sem ljósmyndari og auglýsingaleikstjóri. Fínir í samstarfi BÖRKUR SIGÞÓRSSON Börkur tók upp myndband við lagið St. Petersburg með Supergrass síðasta sumar. PLÖTUR SUPERGRASS Road to Rouen 2005 Life on Other Planets 2002 Supergrass 1999 In It for the Money 1997 I Should Coco 1995 ROAD TO ROUEN Nýjasta plata Super- grass kom út í fyrra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.