Fréttablaðið - 25.05.2006, Blaðsíða 24
25. maí 2006 FIMMTUDAGUR24
Umsjón: nánar á visir.is
Bandaríska líftæknifyrirtækið
Cyntellect verður að öllum líkind-
um fyrst fyrirtækja til að skrá sig
á hinn nýja iSEC markað Kaup-
hallarinnar. Fagfjárfestaútboð fer
fram í félaginu á næstu dögum og
verður það í kjölfarið skráð á
markað.
Cyntellect hefur aðsetur í Kali-
forníu en er að hluta í eigu Íslend-
inga. Stjórnarformaður félagsins
er Íslendingurinn Bernhard Páls-
son.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, telur megin-
ástæðu fyrir skráningu Cyntellect
þá að íslenski markaðurinn hafi
verið mjög öflugur að afla fé fyrir
þau erlendu félög sem hér hafi
verið skráð. Tvo erlend félög er að
finna á aðallista Kauphallarinnar,
Mosaic Fashions og Atlantic Petro-
leum „Það er náttúrulega mjög
dýrt að fara á markað í Bandaríkj-
unum og smærri fyrirtæki hafa
mörg leitað til Evrópu. Á iSEC
markaðnum er boðið upp á góð kjör
og fína umgjörð,“ segir Þórður.
Hampiðjan mun að öllum líkind-
um verða skráð á iSEC markaðinn
á næstunni og býst Þórður við því
að þrjú til fimm félög verði á mark-
aðnum um næstu áramót. - jsk
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.415 -1,59% Fjöldi viðskipta: 268
Velta: 2.734 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 65,30 -1,06% ... Alfesca
3,67 -0,81%... Atorka 5,50 -0,72% ... Bakkavör 47,50 -2,46% ...
Dagsbrún 5,56 -0,89% ... FL Group 18,70 -1,06% ... Flaga 3,98
+0,76% ... Glitnir 16,60 -1,78% ... KB banki 740,00 -1,47% ...
Landsbankinn 20,70 -1,90% ... Marel 70,30 +0,86% ... Mosaic Fas-
hions 16,20 -2,41% ... Straumur-Burðarás 15,70 -1,88% ... Össur
105,00 -0,47%
MESTA HÆKKUN
Marel +0,86%
Flaga +0,76%
MESTA LÆKKUN
Bakkavör -2,46%
Mosaic Fashions -2,41%
Avion -2,00%
Frí sólgleraugu
í þínum styrkleika (gler og umgjörð) ef þú
kaupir gleraugu með styrleika hjá okkur.
Gjáin, Kópavogi • JL-húsið, Hringbraut, Reykjavík • Apótekarinn, Akureyri
Stjórnendur BAA, sem á stærstu
flugvelli Bretlands og alþjóðaflug-
völlinn í Búdapest, ætla að bregð-
ast við óvinveittum yfirtökuá-
formum Ferrovial, spænsku
verktakasamsteypunnar, með því
að greiða út 130 milljarða króna til
hluthafa sinna og vonast til að
halda stuðningi sinna eigenda.
Ferrovial lagði óvænt fram til-
boð í BAA í febrúar fyrir tæpa
1.200 milljarða króna sem stjórn-
endur BAA höfnuðu snarlega þar
sem þeim þótti boðið of lágt.
Hæstráðendur BAA kunna að
vera undir mikilli pressu þar sem
félagið hefur skuldbundið sig að
setja 1.300 milljarða króna í endur-
bætur og stækkun Gatwick, Heat-
hrow og Stanstead á næsta áratug
en bresk flugmálayfirvöld hafa
varað BAA við því að skuldsetja
flugvellina í Lundúnum um of.
Einnig ræddi Goldman Sachs við
stjórnendur BAA um að leggja
fram vinveitt tilboð en þeim hug-
myndum var hafnað.
Fastlega er búist við að Ferrovi-
al leggi fram nýtt og hærra tilboð í
BAA en spænska félagið hefur
greint frá því að hagnaður á fyrsta
ársfjórðungi jókst um 44 prósent
milli ára. - eþa
BARIST UM HEATHROW Stjórnendur BAA
berjast fyrir lífi sínu með því að lofa hlut-
höfum háum arðgreiðslum.
Barist um bresku flugvellina
Glitnir hefur eignast sænska verð-
bréfafyrirtækið Fischer Partners
fyrir 3,7 milljarða króna auk þess
að taka yfir skuldir að upphæð 425
milljónir króna. Fischer er sjötta
stærsta verðbréfafyrirtæki Norð-
urlanda með 4,4 prósenta mark-
aðshlutdeild. Sænski hlutabréfa-
markaðurinn er sterkasta vígi
félagsins en þar er félagið fjórði
stærsti miðlarinn. Seljandi er fjár-
málafyrirtækið Invik, sem er að
stærstum hluta í eigu Stenbeck-
fjölskyldunnar en Tryggingamið-
stöðin er einnig meðal hluthafa
þar.
Bjarni Ármannsson, banka-
stjóri Glitnis, sér mikil tækifæri
með kaupunum til að styrkja stöðu
Glitnis í Noregi og frekari sókn
inn á norrænna verðbréfamarkaði
eins og þann sænska. „Við munum
einnig halda áfram að auka þókn-
unartekjur bankans eins og okkur
hefur tekist með þeim fjárfesting-
um sem við höfum ráðist í á Norð-
urlöndum.“ Stærstu viðskiptavin-
ir Fischers eru meðal annars
stofnanafjárfestar og vogunar-
sjóðir.
Í Dagens Industri kemur fram
að ein ástæða þess að Invik seldi
Fischer var sú að það hefði ekki
skilað Invik nægjanlegum hagn-
aði. Hagnaður Fischers fyrir
skatta nam 126 milljónum króna á
fyrsta árshluta en var 380 milljón-
ir króna eftir skatta allt árið 2005.
Invik stóð frammi fyrir tveimur
valkostum: annað hvort þyrfti það
að leggja meira fjármagn til
Fischers eða selja það. Sérfræð-
ingur sem blaðið ræddi við taldi
Invik gera rétt með sölunni og það
gæti nú einbeitt sér að annarri
kjarnastarfsemi.
Fischer varð fyrir blóðtöku
fyrir hálfum mánuði þegar fram-
kvæmdastjórinn Per Swensson
yfirgaf fyrirtækið. Bjarni segir að
ávallt geti skapast óróleiki innan
fyrirtækja þegar þau séu í sölu-
ferli en Tomas Lande, fyrrum
framkvæmdastjóri Enskilda Sec-
urities, hefur verið ráðinn til
starfa.
Í blaðinu kom einnig fram að
KB banki og Anvanza hefðu verið
orðuð við kaup á Fischer.
eggert@frettabladid.is
GLITNIR KAUPIR FISCHER PARTNERS AF INVIK FYRIR 3,7 MILLJARÐA KRÓNA Staða bankans
styrkist í Noregi og renna frekar stoðum undir vöxt á Norðurlöndum. FRÉTTABLAÐIÐ/BRINK
Glitnir kaupir Fischer Partners
Fischer er sjötta stærsta verðbréfafyrirtæki Norðurlandanna. Fyrirtækið er með
sterka stöðu í Svíþjóð. Glitnir keypti af fjármálafyrirtækinu Invik.
STAÐA FISCHER PARTNERS Á NOR-
RÆNUM HLUTABRÉFAMARKAÐI
Land Markaðshlutdeild Staða
Svíþjóð 5,7% Nr. 4
Noregur 3,8% Nr. 8
Finnland 3,3% Nr. 12
Danmörk 3,2% Nr. 7
FL í FCUK
Vangaveltur eru uppi um hvað stjórnendur FL
Group eru nú að ráðgera en félagið keypti í gær
5,07 prósenta hlut í bresku tískuvörukeðjunni
French Connection. Markaðsvirði hlutarins er um
1,4 milljarðar króna. Eftir kaupin eiga Íslendingar
átján prósent af hlutafé í French Connection en
Baugur átti fyrir þrettán prósent. Ekki þykir ólíklegt
að fleiri Íslendingar leynist í hópi hluthafa.
Bréf í félaginu lækkuðu mikið eftir aðalfund
félagsins þann 10. maí þar sem kom fram að
samdráttur hefði orðið í starfsemi
félagsins á flestum sviðum og
stjórnin sæi fram á verra ár en
áætlanir höfðu sagt til um. Hefur
trú manna á stjórn fyrirtækisins
heldur farið minnkandi og þykir
kunnugum líklegt að annað af
tvennu gerist. Stofnandi fyrirtækis-
ins, sem jafnframt er stjórnarfor-
maður, Stephen Marks, sjái sig
knúinn til að afskrá félagið og kaupa aðra hluthafa
út eða selja fyrirtækið til fjárfesta.
Stund hinn þolinmóðu rennur upp
Mögnuð kauptækifæri hafa myndast í Kauphöll
Íslands ef marka má nýjustu verðmatsgreiningar
bankanna. Þannig metur Glitnir KB banka á 979
þegar gengið er í 740, KB banki metur Actavis á 78
þegar gengið er um 65 og Glitnir mælir sterklega
með kaupum í Össuri sem er 20 prósentum undir
verðmatsgengi. KB banki metur hlutinn í Lands-
bankanum á 29 krónur þegar markaðsgengi er
undir 21. Nú bregður svo við að spekúlant-
ar stökkva ekki upp til handa fóta eins
og gerðist fyrir nokkrum
mánuðum, enda heyra þeir
margir hverjir sögunni til.
Nú er spurning hvort tími
hinna þolinmóðu fjárfesta sé
loksins runninn upp, þeirra sem
tjalda ekki til einnar nætur.
Peningaskápurinn... MARKAÐSPUNKTAR...
Rétt fyrir lokun markaða í gær tilkynnti
Avion að dótturfélag sitt, Excel Airways,
hefði stofnað flugfélag á Írlandi. Um er
að ræða alþjóðlegt leiguflugfélag með
höfuðstöðvum í Dublin og mun það
fljúga undir merkjum Excel Airways.
Hagnaður Haga, sem meðal annars
rekur Bónus og Hagkaup og fleiri versl-
anir, nam 997 milljónum eftir skatta á
síðasta rekstrarári félagsins sem lauk í
mars. Rekstrarárið á undan var hagnað-
urinn 1,3 milljarðar króna.
Seðlabanki Kanada hækkaði stýrivexti
í gær úr 4 prósentum í 4,25 prósent.
Segir bankinn ástæðuna vera sterkan
hagvöxt í Kanada og á alþjóðavettvangi.
Vísbendingar séu jafnframt um vaxandi
sveiflur á hlutabréfa- og gjaldeyrismark-
aði.
Bandarískt félag á iSEC
Líftæknifyrirtækið Cyntellect verður skráð fyrst
félaga á hinn nýja iSEC markað.