Fréttablaðið - 25.05.2006, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 25.05.2006, Blaðsíða 34
 25. maí 2006 FIMMTUDAGUR34 SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okk- ur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tekið á móti efni sem sent er frá Skoð- anasíðunni á visir.is. Þar eru nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Ekki segja þetta, Ragnar Sverris- son. Að ég vilji fiska í gruggugu vatni. Þvert á móti vil ég skýrar línur, sem er mér slík ástríða að verður stundum að veikleika. Ég skal þó viðurkenna að ég er ekki alltaf sá maður sem ég vildi vera. Því miður. Ef þú til dæmis spyrðir eftir áliti mínu á íþróttavellinum þá myndi ég tvístíga. Fyrir nokkrum árum mátti ég ekki heyra á það minnst að hann yrði aflagður. Nú er ég á báðum áttum. Þó vil ég alls ekki að þarna verði settar niður íbúðar- eða verslunarbyggingar en er tilbúinn að skoða hugmynd- ina um fjölskyldugarð. Ég vil líka fá sólarglugga við göngugötuna og þótt mér sé illa við að rífa gömul hús þá hljóta sjónir okkar að bein- ast að Hafnarstræti 98 og 106. En förum varlega og gerum ekkert nema að vel ígrunduðu máli. Hins vegar ef þú vildir ræða við mig um framlengda Dalsbraut þá hef ég traustan stein að standa á. Í stað bílagötu á að koma þar umferð- aræð fyrir þá sem vilja ferðast fyrir eigin líkamsorku, viðra sig og horfa á mannlíf. Ég er líka viss í minni sök hvað varðar síkið. Hugsaðu þér, Ragnar! Að eyða 200 til 400 milljónum (eða millj- örðum ef á að teygja sig upp að Skátagili) í að grafa síki sem í besta falli hefur fagurfræðilegt gildi en alls ekkert hagnýtt er ekki verjanlegt í mínum augum. Síst þegar við höfum annan valkost sem er bæði fagur og hagnýtur í besta lagi (og líka fokdýr). Sem er KEA-strætið. Hugsaðu þetta röklega, Ragn- ar. Á miðbæjarsvæðinu skulu rísa 300 íbúðir, menningarhús, tónlist- arskóli, fjölskyldugarður, jafnvel stórmarkaður, svo að við gleym- um ekki þeim nýju verslunum sem eiga eftir að spretta þarna upp. Um leið á að þrengja Glerárgöt- una á kafla, sem er aðal umferðar- æðin í gegnum bæinn, og grafa síki en þetta tvennt mun óhjá- kvæmilega hafa heftandi áhrif á alla umferð, líka gangandi, taktu eftir því. Ragnar, þú veist það jafnvel og ég að þeir eru ófáir í bænum okkar sem segja bílinn í slíkum tilvistar- vanda að það réttlæti að leggja tengibraut í gegnum íbúðahverfi, fast við barnaskóla, hæfingarstöð, íbúðahverfi aldraðra og yfir íþróttasvæði KA. Slík er neyðin í umferðarmálum okkar Akureyr- inga. Ég sé ekki betur en að þú sért að bjóða heim sömu vandræð- um í miðbænum. KEA-strætið mun leysa þau og þar með styrkja alla uppbyggingu þar. Síkið mun hafa öfug áhrif. Þú segir, Ragnar, að ég vilji hunsa vilja íbúaþingsins sem þú stóðst fyrir forðum (hafir þú stóra þökk fyrir) og ég sótti. Ég skal ekki draga neina dul á að minni mitt hefur aldrei verið gott, þess vegna bið ég þig, Ragnar, að benda mér á hvað í framanskrifuðu stríð- ir gegn vilja íbúaþingsins. Ég veit að við töluðum ekkert um síki eða KEA-stræti, en við ræddum um framlengda Dalsbraut, útivistar- vænan kaupstað, eflingu miðbæj- ar, göngugötuna og ótal fleira. Hvar er ég á skjön við þá umræðu? PS: Að lokum ein samvisku- spurning, Ragnar. Lítur þú þannig á að síkið sé forsenda uppbygging- ar í miðbænum? Höfundur er sagnfræðingur og í 16. sæti Samfylkingarinnar á Akureyri. Ekki segja svona, Ragnar UMRÆÐAN KOSNINGAR JÓN HJALTASON FRAMBJÓÐANDI Leikarinn, Grafarvogsbúinn og Samfylkingarframbjóðandinn Dofri Hermannsson skrifar grein í Fréttablaðið síðastliðinn laugar- dag, sem ber yfirskriftina „Grafar- vogsbúar eiga sig sjálfir“. Grein þessi svo full af hroka, þekkingar- leysi og persónulegu níði að hún er vart svara verð en þar sem ég er sjálfur annar þeirra sem leikar- inn hefur kosið að veitast að kýs ég að leggjast svo lágt að tjá mig eilítið um efni hennar. Samfylkingarframbjóðandan- um ofbýður að undirritaður, sem varaformaður Íbúasamtaka Grafarvogs, skuli leyfa sér að gagnrýna borgaryfirvöld þar sem undirritaður er einnig flokksbund- inn sjálfstæðismaður. Það er helzt á honum að skilja að pólitískar skoðanir mínar geri mig óhæfan til að sitja í stjórn íbúasamtakanna og það sé engan veginn við hæfi að ég gagnrýni borgaryfirvöld. Þá þykir mér Samfylkingin vera farin að líkjast gamalli fyrirmynd sinni í Ráðstjórnarríkjunum ef menn þar á bæ ætla að banna mönnum sem ekki syngja sama sálm og þeir að taka þátt í félagsmálum. Þessi skoðun frambjóðandans er enn frekar ítrekuð þar sem hann leyfir sér einnig að efast um heil- indi sjálfstæðismannsins Guð- laugs Þórs Þórðarsonar sem for- manns Fjölnis vegna pólitískra skoðana hans. Ég ætla mér ekki í þessari grein að eyða tíma og rými í að telja upp hvar borgaryfirvöld hafa helzt brotið á okkur Grafarvogs- búum en á líðandi kjörtímabili hafa yfirvöld svikið loforð sem Rimabúmum voru gefin kortéri fyrir síðustu borgarstjórnarkosn- ingar, þau hafa dregið lappirnar við hreinsun strandlengjunnar, þau hafa þrjóskast við að þróa hugmyndir um Sundabraut sem eru í algerri mótsögn við vilja íbúa, þau hafa skert þjónustu Sorpu við Grafarvog og svo mætti lengi telja. Grafarvogsbúar hafa ekkert sérlega góða reynzlu af stjórn R-listaflokkanna og sem varaformanni Íbúasamtaka Grafarvogs ber mér skylda til þess að gagnrýna borgaryfirvöld og framkomu þeirra við okkur sjái ég ástæðu til. Það er lítilmannlegt af leikaran- um að veitast að mér undirrituðum og félaga mínum Guðlaugi Þór og draga heilindi okkar í efa vegna pól- itískra skoðana okkar. Sjálfur hef ég aldrei dregið í efa að framsókn- armaðurinn Alfreð Þorsteinsson hafi gegnt formannsstarfi sínu hjá Knattspyrnufélaginu Fram af hei- lindum, að framsóknarmaðurinn Anna Kristinsdóttir hafi af heil- indum gætt hagsmuna Foreldra- samtaka fatlaðra, að samfylkingar- maðurinn Stefán Jóhann Stefánsson hafi verið heill í sínu starfi sem for- maður Knattspyrnudeildar ÍR, að samfylkingarmaðurinn Helgi Hjörvar hafi af heilindum unnið fyrir Blindrafélagið og svo mætti lengi telja. Ég get líka fullvissað Dofra Hermannsson um það að sem varaformaður Íbúasamtaka Grafarvogs mun ég áfram, og eftir því sem ég bezt get, gæta hags- muna Grafarvogsbúa og veita borgaryfirvöldum aðhald hverjir svo sem verða við stjórn borgar- innar að loknum kosningum á laugardag. Ég get líka fullyrt að Guðlaugur Þór Þórðarson mun einnig gæta hagsmuna Fjölnis og halda áfram sínu uppbyggingar- starfi þar óháð því hver fer með völd í borginni. Ólíkt því sem hugsanlega gerist hjá Samfylking- unni leyfist okkur sjálfstæðis- mönnum nefnilega að hafa skoð- anir og tjá okkur um þær. Það kemur úr hörðustu átt að Dofri Hermannsson, í þessari óhróðursgrein, saki okkur sjálf- stæðismenn um að fara með óhróð- ur um fólk. Slík ummæli dæma sig sjálf í ljósi þess sem Dofri sjálfur hefur skrifað. Að lokum mætti benda á að í ljósi framkomu borgar- yfirvalda við Grafavogsbúa þá hefði yfirskrift umræddrar grein- ar frekar átt að vera: „Grafar- vogsbúar mega eiga sig“. Hroki og hleypidómar UMRÆÐAN KOSNINGAR EMIL ÖRN KRISTJÁNSSON VARAFORMAÐUR ÍBÚASAMTAKA GRAFARVOGS Hvað er það sem tengir hverfa- samfélög bæja og borga? Er mið- bær hverfi eða nýtur hann sér- stöðu? Allir bæir á Íslandi eiga miðbæ eða kjarna þar sem fólk leitar gjarnan eftir þjónustu, versl- un og afþreyingu. Erlendis má sjá marga slíka kjarna í einni borg. Vegna þessarar sérstöðu lítum við ekki á miðbæinn sem hverfi, jafn- vel þó svo að á Íslandi séu til versl- unar- og þjónustukjarnar í hverf- um á höfuðborgarsvæðinu. Miðbærinn skipar ávallt sér- stakan sess í hugum fólks og við höfum öll hugmyndir um hvernig hann á að vera. Hafnarfjörður er ákaflega fallegur bær með ein- stakt bæjarstæði í hrauninu sem teygir sig til sjávar og myndar þennan fallega opna fjörð sem blasir við miðbænum. Miðbærinn gæti ekki verið staðsettur annars staðar, þar er upphaf atvinnulífs í Hafnarfirði og í kringum það búseta fólksins, höfnin var lífæð- in. Ef ekkert verður að gert verður endir miðbæjarlífs einmitt vegna þess að atvinnulíf fjarar út. Ein grein styður aðra þannig að það þarf að skapa svigrúm fyrir fjöl- breytni og fjölgun íbúa í miðbæn- um, sem kallar á aukna þjónustu. Auk verslunar- og þjónustu- fyrirtækja eru mikil tækifæri í menningarmálum sem og ferða- þjónustu sem hægt er að tengja saman með margvíslegum hætti. Það má gera söfnum bæjarins hærra undir höfði og tengja betur miðbæjarlífinu ásamt Hellisgerði. Það er löngu tímabært að Hellis- gerði verði endurlífgað sem lysti- garður Hafnfirðinga. Það þarf að efla atvinnu- og menningarlíf í miðbænum en sam- hliða því verður að gera ráð fyrir umferð bíla svo fólk komist til að sinna erindum sínum. Vöxtur og viðgangur Hafnar- fjarðarbæjar byggist á atvinnulíf- inu í bænum hvort sem fyrirtækin eru staðsett í miðbænum eða í jaðri bæjarins. Sjálfstæðismenn vilja sterkan miðbæ. Í fremstu röð, XD. Höfundur skipar ellefta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Miðbær Hafnarfjarðar UMRÆÐAN KOSNINGAR HALLDÓRA BJÖRK JÓNSDÓTTIR FRAMBJÓÐANDI N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU- SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT ALLT er n‡ vöru- og fljónustu- skrá á visir.is. ALLT er líka í síma 1850 og í vor ver›ur ALLT bók- inni dreift til landsmanna. ... sem flig vantar í n‡ja húsnæ›i›
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.