Tíminn - 27.11.1977, Blaðsíða 1
Ekki til fyrirmyndar
að brjóta samninga
— segir Ólafur Jóhannesson, viðskipta-
ráðherra, um frestun á tollalækkunum
Ólafur Jóhannesson
F.I. Reykjavik. — Égerandvig-
ur þvi, að island fari fram á
frestun tollalækkana við EFTA,
sagði Ólafur Jóhannesson, við-
skiptaráðherra i samtali við
Timann i vikunni. Sagðist Óiaf-
ur ekki hafa trú á að slfk beiðni
yrði tekin til greina, og taldi
hann ekki nægileg rök fyrir að
bera hana fram.
— Það er ekki til fyrirmynd-
ar, þegar aörar þjóðir brjóta
gerða samninga, sagði Ólafur
ennfremur. Slík tilfelli koma að
sjálfsögðu alltaf upp, að einhver
ákvæði i samningunum hafi
verið brotin, og.er þá oftast um
aö ræða takmarkanirá innflutn-
ingi einstakra vörutegunda eða
einhverjar styrktaraðgerðir,
sem vafasamter að samræmist
ákvæðum EFTA. Þessum brot-
um er og harðlega mótmælt i
skýrslum stofnunarinnar, en
hvort þeir láta þar við sitja, veit
ég ekki.
— Mér þykir ósennilegt, að
islenzk stjórnvöld flytji málið
boðleiðina til yfirstjórnar
EFTA, sagði Ólafur að lokum,
og ég tel nauðsynlegt fyrir ís-
land, eins og aðrar þjóðir, að
standa við skuldbindingar sinar
gagnvart öðrum þjóðum og
bandalögum. Auk þess verðum
við að hafa i huga hugsanlegar
gagnaðgerðir af hálfu EFTA-
landa. Við höfum i gegnum
bandalagið markað i sextán
stórum ri'kjum, sem er nokkurs
virði fyrir útflutningsiðnaðinn,
þvi aö þar ætlum við að hasla
okkur völl. Þróun iðnaöarins er
mjög svo undir þvi komin, að
takast megi að finna markaði á
þessu svæði.
Forkastanlegt
að ljúga að
fólki varðandi
eigið lif
Fl ræðir við Þórarinn
Sveinsson/ sérfræðing i
krabbameinsiækning-
um. Bls. 16-17.
Skáldið frá
Víðikeri
VS tekur Kára
Tryggvason tali og
ræða þeir um skáld-
skap, búskap, ferðalög
o.fI. bls. 20-21.
Annað upp á teningnum hjá Félagi íslenzkra iðnrekenda:
Við viljum einhliða ákvörð-
un íslands um frestun
F.I. Reykjavik. — Við teljum
vel stætt á þvi að ísland taki ein-
hliða ákvörðun um frestun á
tollalækkunum. Slikt brýtur að
sjálfsögöu i bága viö EFTA-
samkomulagið, en við höfum
það okkur til málsbóta, að aðrar
þjriðir EFTA brjóta striðugt
gerða samninga til dæmis með
beinum stuðningsaðgerðum. til
handa eigin iðnaði. Borið saman
við nágrannaþjóðirnar er lilill
sem enginn stuðningur viö iðnað
hér á tsiandi.
A þessa leið fórust Hauki
Björnssyni, framkvæmdastjóra
Félags islenzkra iðnrekenda orð
i samtali við Timann i gær, en
Félag ísl. iðnrekenda hefur
borið ipp þá tillögu á fundi ráð-
gjafanefndar EFTA, að til komi
frestun á tollalækkunum f eitt
ár. Segja iðnrekendur dýrmæta
upphæð geta skapazt meö þessu
móti, sem nota ætti til þess að
standa straum af bráðnauðsyn-
legum iðnþróunaraðgerðum.
Tillaga þessi var samin með
hliðsjón af ferð, sem fulltrúar
Félags islenzkra iðnrekenda
fóru til Danmerkur, Noregs og
Bretlands i þvi skyni að kanna
stuðningsaðgerðir við iðnaðinn i
þessum löndum. Kom i ljós, að
slikar stuðningsaðgerðir eru
geysilega miklar, og sömu sögu
er að segja frá öllum löndum
Efnahagsbandalags Evrópu.
Miklar stuðningsaðgerðir eru
framkvæmdar i þessum lönd-
um,svosem á sviði útflutnings-
eflingar og tækniþróunar að
sögn Hauks, og sérstakar að-
gerðir.sem ganga undir ýmsum
nöfnum, eru stöðugt á dagskrá.
Sé miðað við Noreg nema þess-
ar sérstöku aðgerðir um 4,4
milljörðum fslenzkra króna ár-
lega.
Segja islenzkir iðnrekendur
engan vafa leika á, að þessar
aðgerðir hafi bein áhrif á sam-
keppnisaðstöðu iðngreinanna og
hljóti þvi að brjóta i bága við
friverzlunarsamkonulagið og
EBE.
NORÐURLANDAFOR
UTANRÍKISRAÐHERRA
GV — 1 dag fer Einar Ágústsson
utanrikisráöherra til Danmerkur
i opinbcra heimsókn. t för með
ráðherranum er ráðherrafrúin,
Þórunn Sigurðardóttir, Henrik
Sv. Björnsson og eiginkona hans,
Torfhildur Björnsson. i fyrra-
málið mun ráðherrann hitta
K.B.Andersen utanrikisráðherra
og þiggjá hádegisverðarboö hjá
honum. Siödegis mun ráðherra
hitta Anker Jörgensen forsætis-
ráðherra. Síðan veröur blaða-
mannafundur á Hótei D’Angle-
terre og um kvöldið verður kvöld-
verður i boði dönsku rikisstjórn-
arinnar i Kristjánsborgarhöil.
Þriðjudaginn 29. nóv. fer ráð-
herrann og föruneyti hans i ferða-
lag um nágrenni Kaupmanna-
hafnar, venður þá farið til Frið-
riksborgarhallar i Hilleröd og
e.t.v. fleiri staða. í þeirri för
verða m.a. skoðuð vikingaskip
sem eru nálægt Hróarskeldu. Sið-
degis. mun ráðherra skoða
minnismerki i Lejre um Jörgen
Jörgensen, en hannvar einn af
fremstu hvatamönnum þess, að
handritunum var skilað aftur til
Islands. Ráðherrann mun þá hitta
Sven Jörgensen, son hans. Að
kvöldi þriðjudags bjóða utan-
rikisráðherrahjónin til kvöld-
verðar á Hótel D’Angleterre.
Á roiðvikudagsmorguninn 30.
Einar Ágústsson,
utanrikisráðherra.
nóv. er svo gert ráð fyrir að ráð-
herrannhitti Ingiriði fyrrverandi
drottningu, én hún er rlkisstjóri i
fjarveru Margrétar dóttur
sinnar.
Siðdegis þann dag heldur ráö-
herrann áfram för sinni til
Noregs, og fimmtudaginn, 1. des.
fyrir hádegi mun hann eiga við-
ræður við Knut Frydenlund utan-
rikisráðherra og helztu embættis-
menn utanrikisráðuneytisins og
snæða hádegisverð i boði ráð-
herrans, en þar mun viðræðum
haldið áfram um samskipti land-
anna og- ýms alþjóðamál. Um
kvöldið verður ráðherrann i
kvöldverðarboði rikisstjórnar-
innar.
Fyrir hádegi á föstudaginn 2.
desember fer Einar Ágústsson i
heimsókn til Nordlis forsætisráð-
herra og mun hann siðan væntan-
lega hitta Evensen, hafréttar-
málaráðherra Noregs, að máli.
Um hádegisbil verður móttaka
Ólafs Noregskonungs fyrir gest-
ina. Siðdegis mun Einar Agústs-
son hitta Bolle sjávarútvegsráð-
herra. Að þvi búnu verður blaða-
mannafundur kl. 5 og siðar um
kvöldið verður kvöldverður i
sendiherrabústað tslands.
Eftir að opinberri heimsókn
Einars Agústssonar til Danmerk-
ur og Noregs lýkur mun ráöher-
ann fara laugardaginn 3. desem-
ber i ferðalag til Tromsö i Norður-
Noregi, til þess að kynnast þeim
hluta landsins. Ráðherrann
kemur til baka úr þeirri ferö um
hádegi á sunnudag. Eftir þessa
heimsókn fer Einar til Finnlands i
embættiserindum og þaðan fer
hann á utanrikisráðherrafund i
Briissel, dagaria 8. og 9. desem-
ber.
„Þessum
veiðum
er lokið”
GV- Þaö er alveg staöfest og
hefur verið tilkynnt þýzkum
togurum I áheyrn Land-
helgisgæzlunnar, að þeim
beriað hætta veiöum áður en
28. nóvember er liðinn og i
siðasta lagi á miönættipess
dags verða vestur-þýzkir
togarar hættir veiöum, sagði
Einar Ágústsson i viötali við
Timann i gær.
— Ég fyrir mitt leyti hef
aldrei efazt um það, frá þvi
að samningurinn var gerður,
að við hann yrði staðið. Þjóð-
verjarhafa ekkifarið fram á
neins konar framlengingu á
þessum samningi, og það
hefur verið staðið við hann af
beggja hálfu.
— Þeir hafa ekki náð að
fiska þaö magn, sem þeir
máttu fiska samkvæmt
samningnum, en það breytir
engu um þaö, að þessum
veiðum er lokið^agöi Einar
að bkum.
Samastaður í
tilverunni
Sókn að
Síöan 1952 hafa ís-
iendingar fært fisk-
lokasigri
veiöilögsögu sína út
fjórum sinnum. Fram-
sóknarf lokkurinn hef-
ur ávallt veriö í stjórn
þegar fært var út. Bls.
12-13.
Bókarkafli eftir
AAálfríöi Einarsdótt-
ur bls. 34-35.