Tíminn - 27.11.1977, Qupperneq 2
2
Sunnudagur 27. nóvember 1977
Hægt væri að endurbyggja hluta
vegakerfisins fyrir um 50-60
milljarða
Heildarkostnaður viö vegagerð lAog B flokkum geti numiö 44 mill-
jöröum króna. Til viðbótar gætu komiö 15 milljaröar til endurbóta
og stórframkvæmda.
áþ — Dýr og viðkvæmur bila-
floti landsmanna þarfnást
miklu meira viöhalds vegna
hins slæma ástands veganna.
Er nú svo komið, að varla mun
hægt að vinna arðvænlegri fjár-
festingu I landinu en þá aö full-
gera hundruð kílómetra af fjöl-
förnustu þjóðvegum, eingöngu
miðað við þann sparnað, er af
myndi leiða i viöhaldi farar-
tækja og vega, auk timasparn-
aöar ferðalanga. betta kemur
fram i grein er Valdimar Krist-
insson ritaði i siöasta hefti Fjár-
málatiöinda.
Valdimar segirm.a.að aöeins
hafi verið endurlagðir með
bundnu slitlagi um 190 km þjóð-
vega, og aö á siöustu árum hafi
mjög litið bætzt við af oliu-
malarbornum þjóðvegum.
Astæðan sé einkum leiöin yfir
Skeiöarársand og brúin yfir
Borgarfjörð.
Heildarlengd aöalvega er um
2300 km (sjá kort), og af þeim
eru 190 km nú fullgeröir. Mis-
muninum segir Valdimar, má
skipta i grófum dráttum i tvo
flokka, sem kalla mætti A og B
flokk (sjá kort). 1 A flokki væri
stefnt aö vegum, sem að gæðum
liktust Suðurlandsvegi i Flóa og
veginum yfir Hellisheiöi. 1 B
flokki værisvo stefntaö vegum,
sem aö gæðum liktust endur-
bætta kaflanum um Mœfells-
dal. Þeir vegir yröu eitthvað
mjórri en vegir i A flokki, þótt
allir væri þeir tvibreiðir.
Aöalreglan yrði sú, sam-
kvæmt þeim hugmyndum sem
Valdimar varpar fram, og ekki
er rúm til aö rekja i smáatriöum
hér, að vegir i Aflokki yrðu
endurbyggðir, en lagfærðir i B
flokki. Vegirnir, sem yrðu lag-
færðir, mundu viða veröa
breikkaðir og réttir af i beygj-
um eftir aöstæöum, en auk þess
yrði viða að styrkja þá með
malarlagi undir oliumölina. Við
það myndu þeir hækka og þar
með batna fyrir vetrarumferð,
auk þess sem „snjómokstur”
yröi auöveldari.
1 A flokki yrðu um 500 km
vega auk þeirra 190 km, sem
þegar hafa veriö fullgeröir. Af
þessúm 500 km hefur verið áætl-
að, að um 150 km séu tilbdnir til
að leggja þá oliumöl. Miðaö við
áætlaö verðlag 1978 er reiknaö
með, að kostnaður viö olfu-
malarslitlag og undirlag undir
ollumölina veröi 12 m.kr. á
hvern km. Þessi kostnaöur yrði
þvi 150 km x 12 m.kr. = 1.800
millj. kr.
Endurbygging vega i A flokki,
miðað við sama verölag er áætl-
að meö oliumöl aö meðaltali 40
millj. kr. á hvern km. Er þá átt
við venjulegan veg, en ein-
stakar stórframkvæmdir ekki
taldar meö. Þessi kostnaöur
yröi um 14.000millj. kr. Samtals
yrði þá kostnaðurinn við A flokk
15.800 millj. kr.
Ef litið er á B flokk.á sama
hátt, þá er hann rúmlega 1.600
kmá lengd. Þar af hefur verið
áætlað, að um 680 km væru til-
búnir að leggja þá oliumöl.
Samtalsyröi kostnaðurinn viö B
flokk tæpar 30 millj. kr. og
heildarkostnaður við A og B
flokk um 44 milljarðar.
Valdimar segir I grein sinni,
að eftir væntanlegar styttingar
á noröurleiö, verði um 400 km
frá Kollafiröi, þar sem oliumöl
endar nú, til Akureyrar. Af
þeim eru nú um 100 km tilbúnir
aö taka við oliumöl. Við vegi i A
flokki búa nú um 3/4 hlutar
bióðarinnar.
Eins og áöur sagði er áætlaður
kostnaöur við vegagerð i A og B
um 44 milljaröar króna. Til við-
bótar segir Valdimar, gætu
æskilegar stórframkvæmdir til
endurbóta á vegkerfinu kostað
samtals allt að 15 milljöröum
króna. Þar af gæti innan við
helmingur kallazt nauðsyn-
legur, en hinn hlutinn æskilegur.
Arið 1962 virtist ógerlegt að
malbika nær 100 km af götum I
Reykjavlk.endaþurftiað skipta
um jarðveg og endurnýja lagnir
i mörgum þeirra. Kostn-
aðaráætlun hljóðaði uppá 680
millj. kr., þegar af stað var
farið.
Ef þessi upphæð er færð til
verðlags i dag miðað við átján-
falda hækkun byggingarvisitölu
fram til 1977, tekiö tillit til þess,
aö Ibúar landsins eru nú þrisvar
sinnum fleiri en Ibúar Reykja-
vikur 1962 og þvi bætt við, að
þjóðarframleiðsla á mann hefur
vaxiö meira en 58% á timabil-
inu, má segja, aö Reykvikingar
hafi á sinum tima tekizt á viö
verkefni, miðaö viö efnahag og
ibúafjölda, sem hafi verið svip-
að og þaö, sem nú blasir við
landsmönnum varðandi endur-
byggingu þjóðvegakerfisins.
Yrði framkvæmdum hins vegar
dreift á 15 ár, yröi verkefnið
þeim mun viðráöanlegra. Fjórir
milljarðar á ári eru þó mikiö fé
eða sem svarar um 4% af nú-
verandi heildarfjárfestingu i
landinu.
PAIMTIÐ STRAX!
Sendum hvert á land sem er
samdægurs
Ferðatæki með kassettu
Mikið úrval af sambyggðum
útvarps-ogsegulbandstækjum
Bæði fyrir rafmagn og rafhlöður
KASUGA KC-4430 B Verð 41.980
KASUGA KC-530 L Verð 36.840
CROWN CRC-535 Verð 38.500 Sértilboð
CROWN CRC-550 Verð 49.980 Sértilboð
CROWN CTR segulb. 325 Verð 16.100
CROWN
CRC-550 Verð
49.980 Sértilboð
CRC-535
Verð 38.500
Sértilboð
CROWIN
CRT-325
Verð 16.100
Sértilboð