Tíminn - 27.11.1977, Page 17
Sunnudagur 27. nóvember 1977
hvaB þetta varöar, og við opnun
hinnar nýju krabbameinsdeild-
ar i Herlev tókum viö upp nýja
siði og sögöum öllum sjúkling-
um sjúkdómsgreiningu, ef farið
var fram á það.
— 1 fyrstu vorum við á báðum
áttum, — hræddumst að fólk
þyldi ekki réttar upplýsingar.
En reynslan varð þveröfug, þar
eð sjúklingurinn vissi í lang-
flestum tilfellum, hvernig kom-
ið var. Auk þess gaf rétt vit-
neskja honum möguleika á að
ræða opinskátt við lækni sinn
um hin ýmsu vandamál, sem
hann stóð frammi fyrir varð-
andi sjúkdóminn og meðferð
hans. Fjölskylda viðkomandi
var og strax upplýst og var
þannig komið i veg fyrir að
sjúklingurinn einangraðist frá
umhverfi sinu.
— En ertu sammála þessari
siðfræði, þegar sjúkdómurinn er
kominn á þaff hátt stig, að hann
leiði til dauða?
— Já, mér finnst forkastan-
legt að ljúga að fólki varðandi
eigið llf. Sumir spyrja ekki og
gefa um leið til kynna, að þeir
líf
vilja ekkert vita. Um leið og
sjúklingurinn spyr, er það
vegna innri þarfa. Læknirinn
geturverið honum ómetanlegur
milliliður og aðstoðað hann við
lausn ýmissa vandamála. Það
er einnig mjög mikilvægt fyrir
sjúklinginn að gott samband sé
við ættingja, og það eru jú þeir,
sem geta gefiö góð ráð varðandi
börn, eignir og svo frv.
Þegar læknir segir sjúklingi
sinum ósatt, er það af góðum
hug gert, og vister starf læknis-
ins að halda mönnum í voninni
um bata, en hann getur lika
verið miðlari, komið á sam-
bandi á milli maka og ættingja
og rofið þá einangrun, sem sjúk-
lingurinn er i.
Krabbameins-
sjúklingar lifa
— En ég minni á, að marga
krabbameinssjúkdóma má
lækna i 70%-100% tilfellum,
einkum ef sjúkdómurinn er á
byrjunarstigi. Kvitturinn um
það, að fyrir krabbameins-
sjúklingum liggi ekki annað en
að deyja er þjóðsaga og loka
verður gáttum, sem halda þvi
fram.
Ég er sannfærður um, aö
virkara traust á milli sjúklings
og læknis i framtiðinni mun
gera lýðum ljóst, að krabba-
meinssjúklingar lifa. Hve oft
höfum við ekki heyrt? „Þetta
var ekki krabbamein. Ég
læknaðist.” Fullyrðing sem
þessi mun, ef vel verður á mál-
um haldið, heyrast æ sjaldnar
og þá loks getur almenningur
litið á krabbamein sem hvern -
annan sjúkdóm, sagði Þórarinn
Sveinsson aö lokum.
— F.I.
17
Seyðfirzkir hernámsþættir
T—.4- Bókaútgáfan Örn og Örlygur lýsir eftir
AA v endurminningum fólks frá stríðsárunum
Bókaútgáfan öm og örlygur
hefur gefið út fyrstu bókina i nýj-
um bókaf ldíki sem ber samheitið
Hernámsárin. Þessi bók er skrif-
uð af Hjálmari Vilhjálmssyni,
fyrrverandi ráðuneytisstjóra og
bæjarfógeta á Seyðisfirði, og
nefnist hún Seyðfirskir hernáms-
þættir.
I bókinni segir Hjálmar frá her-
námsárunum á Seyðisfirði og
þeim miklu umsvifum sem þar
áttu sér stað, samskiptum Seyð-
firðinga við hernámsliðið og þeim
áhrifum sem hinar breyttu að-
stæður höfðu á daglegt lif manna
austur þar.
Á bókarkápu segir m.a.:
Með útgáfu þessarar bókar
hefst nýr bókafiokkur sem ætlaö
er það hlutverk að safna saman
endurminningum fólks frá her-
námsárunum. Tilgangurinn er sá
að draga fram i dagsljósið hin
daglegu og mannlegu samskipti
millum íslendinga og þeirra
manna útlendra sem gistu þetta
land misjafnlega langan tima og
ætlað var það hlutverk að veita
þvi hervernd á ófriðartimum.
Þórunn
Elfa
leitar á
fornar
slóðir
SJ-Reykjavík. Frá Skólavörðu-
stigað Skógum I öxarfirði nefnist
nýjasta bók Þórunnar Elfu, sem
komin er út hjá Ægisútgáfunni.
Bókin er ævisögulegs eðlis, en á
kápu ségir að i henni leiti Þórunn
Elfa til upphafs sins og ef til vill
sé i bókinni að finna svarið viö
þeirri spurningu hversvegna
skáldið Þórunn Elfa varð til.
Þórunn hefur samið skáldsög-
ur, smásögur, barnasögur ferða-
þætti, minningar og ritgerðir um
margvísleg efni, þá hafa fram-
haldsleikrit verið flutteftir hana I
útvarp. Siðastliðið árkom út eftir
hana ljóðabók. Þórunn vinnur að
heildarsafni ritverka sinna, jafn-
framt nýjum hugmyndum og
minningum.
IBtgEOJ
Auglýsingadeild Tímans
HJ
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiösla
Einnig að varpa ljósi á þær
breyttu aðstæður sem skyndilega
blöstu við íslendingum jafnt á sjó
sem á landi.
Þótt margt hafi verið skrifað
um hernámsárin þá hefur ótrú-
lega litið verið fært í letur um hin
daglegu samskipti, það andrúms-
loft og þær ytri og innri aöstæður
sem fólk stóð allt i einu frammi
fyrir þegar landið hafði verið
hernumið og hér dvöldust svo
margirútlendingarað sumir telja
að þeir hafi jafnvel verið fleiri en
allir Islendingar.
Verðlaun
Bókaútgáfan örn og örlygur
lýsir hér eftir endurminningum
fólks frá striðsárunum og gildir
þá einu hvort þær eru frá þvi sem
skeði á landi uppieða á höfum úti.
Arlega munu endurminningarnar
birtast i einu eða fleiri bindum
þessa bókaflokks og auk venju-
legra ritlauna hyggst bókaútgáf-
an verðlauna beztu frásögnina
sérstaklega. Um þau verðlaun
verður nánar tilkynnt siðar.
Aðstoð við ritun
Astæða er til þess að taka það
fram að ef einhverjir hefðu fram-
bærilegt efni I huga slnum en ættu
erfittmeð að koma þvl á blað ein-
hverra hluta vegna, þá myndi
bókaútgáfan geta veitt aðstoð við
það.
Lýst eftir ljósmyndum
Þá vill bókaútgáfan koma þvi á
framfæri við fólk að hún vill
gjarnan komast yfir*
sem flestar ljósmyndir frá þess-
um árum, þar sem hernaðar-
ástandið kemur glögglega fram.
Að sjálfsögðu myndi greitt fyrir
slikar myndir.
Bókinersett, prentuö ogbundin
i Prentsmiðjunni Eddu hf. Kápu-
gerð annaðist Rósa Ingólfsdóttir
en kápan er byggð á málverki frá
Seyðisfirði sem fannst I yfir-
mannabragga eftir að striði lauk.
00ú 125 p
F 1
Ódýr og rúmgóður
ARGERÐ
1978
'*4s.
Úrvalsbíll sem hentar sérlega vel íslenzkum
aðstæðum, veðri og vegum. jNý sending að koma.
Nokkrum bílum
óráðstafað
FIAT EINKAUMBOÐ A HSLANDI
í
Davíð Sigurðsson h.f.
SÍÐUMÚLA 35 • SÍMI 85-8-55
r
. ALEXANDER KOBLENZ
l^nndcinc Skákþjálfun
orugg?
Svarið fæitkt í SKÁKÞJÁLFUN - bókinni 5 semnotuðerí skákfiæðslu sjónvarpsins \ Timaritið SKÁK