Tíminn - 27.11.1977, Page 18
18
liLSMi
l
Sunnudagur 27. nóvember 1977
menn og málefni
Fyrirtækin
séu íslenzk
eign
A nýloknum landsfundi Alþýftu-
bandalagsins var mjög rætt um
hina svonefndu „islenzku at-
vinnustefnu”, sem bandalagiö
hefur reynt aö tileinka sér siöustu
misserin, en kjarni hennar á aö
verasá, aö atvinnufyrirtækin séu
eign landsmanna en ekki er-
lendra auömanna. Akveöiö var á
landsfundinum aö gefa út sér-
stakt rit um hana og er ætlunin,
aö þaö myndi grundvöll kosn-
ingaáróöurs Alþýöubandalagsins
á komandi árum. t ritinu á meöal^
annars aö rekja aödraganda og
upphaf þessarar „islenzku at-
vinnustefnu”, sem á aö hafa
komiö einna fyrst til söug I iön-
aöarráöherratiö Magnúsar
Kjartanssonar á árunum 1971-
1974.
Raunar er hér ekki um neitt
nýja stefnu aö ræöa. Hún er miklu
eldri en Alþýöubandalagiö, þótt
það reyni aö eigna sér hana. Sið-
an Islendingar endurheimtu
sjálfstæði sitt 1918, hefur þaö
veriö meginstefna þeirra, aö at-
vinnufyrirtækin væru eign lands-
manna sjálfra, en ekki iltlend-
inga. Lögin um fiskveiðar i land-
helgi frá 1922 banna öörum en Is-
lendingum aö reka útgerö á Is-
landi. A stjórnarárum Fram-
sóknarfiokksins 1927-1931 var
unnið markvist aö þvi meö stuön-
ing allra flokka, aö gera síldar-
iönaöinn innlendan, en hann var
áöur mest i höndum útlendinga.
Bygging sildarverksmiöja rikis-
ins var stærsta átakiö i þeim efn-
um. A árunum 1934-1938 lögöu
forustumenn Framsóknarflokks-
ins og Alþýöuflokksins grundvöli
aö þvi, aö stóriöja, sem sett yröi
upp i landinu eins og sements ■
verksmiöja og áburöarverk-
smiöja, yröi eign rikisins. Þaö er
fyrst meö byggingu álbræðslunn-
ar i Straumsvik, sem vikiö er af
þessari braut. Þá er útlendingum
i fyrsta sinn leyft aö efna til stór
iöjurekstrar i landinu, og þeim á
ýmsan hátt veitt undanþága frá
islenzkum lögum. Vissulega var
þar fariö inn á meira en varhuga
verða braut, og ber aö varast i
framtíöinni, aö leyföur veröi
frekari atvinnurekstur á þeim
grundvelli.
Bréfaskriftir
Magnúsar
Af hálfu Alþýöubandalagsins er
mjög reynt aö hampa þeirri kenn-
ingu, aö enginn munur sé á samn-
ingunum um álbræösluna og
járnblendiverksmiöjuna á
Grundartanga. Hér er þö megin-
munur. Albræöslan er algerlega
eign útlendinga og aö miklu leyti
óháö Islenzkum lögum. Hins
vegar eiga Islendingar meiri-
hluta i Grundartangaverksmiðj-
unni og hún veröur aö öllu leyti
undir Islenzkum lögum.
Annars veröur aö vænta þess,
aö Grundartangaverksmiöjan fái
ekki óveglegan sess I væntanlegu
riti Alþýöubandalagsins um „is-
lenzka atvinnustefnu”. Grundar-
tangaverksmiöjan er meira verk
iönaöarmálaráöherra Alþýöu-
bandalagsins, Magnúsar Kjart-
anssonar, en nokkurs annars
manns. Til þess að hjálpa þeim
Alþýöubandalagsmönnum viö
umrædda söguritun, þykir rétt aö
rifja hér upp þrjú bréf, sem
Magnús Kjartansson skrifaöi sem
iönaöarmálaráöherra vorið 1974.
Þessi bréf eru þannig vaxin, aö
þau veröa aö birtast i væntanlegu
riti Alþýöubandalagsins um hina
„fslenzku atvinnustefnu”, ef sag-
an á aö segjast þar rétt. Bréf
þessi höföu verið leynileg þangaö
til Gylfi Þ. Gislason birti þau á
siðasta þingi. Hér á eftir verður
stuözt viö þessa frásögu Gylfa Þ.
Glslasonar, en rétt er aö geta
þess, aö bréfunum, sem hann las
upp og fara hér á eftir, hefur ekki
veriö mótmælt.
Aðdragandi bréfanna er sá, aö
Magnús Kjartansson haföi sem
iönaðarmálaráöherra hafið I
samráöi viö Landsvirkjun viö-
ræður viö bandariska fyrirtækiö
Union Carbide um nýtingu um-
framorku frá væntanlegri Sig-
ölduvirkjun. Niðurstaða þeirra
viöræöna varö samningur um aö
Union Carbide reisti I samvinnu
viö Islenzka rikiö járnblendiverk-
smiöju á Grundartanga. Þessir
samningar eöa áætlanir, eins og
Magnús kallar þá I bréfunum,
voru tilbúnir 1 april 1974, þegar
óvissa hófst um framtlö vinstri
stjórnarinnar.
Fyrsta bréfið
Samkvæmt frásögn Gylfa Þ.
Gislasonar, kvaddi Magnús
Kjartansson hann og Gunnar
Thoroddsen á fund sinn 20. april
1974, en þeir voru þá formenn
þingflokka þáv. stjórnarand-
stæðinga. Erindi Magnúsar var
aö fá.samþykki þeirra Gunnars
og Gylfa til þess að mega senda
Union Carbide svohljóðandi bréf:
Mr. J.C.Malone,
Vicepresident,
Union Carbide Corporation,
New York.
Kæri herra Malone,
Rlkisstj. Islands hefur nú um
skeið haft til athugunar uppkast
aö samningum milli rikisstj. Is-
lands og Union Carbide Corpora-
tion um samvinnu um byggingu
og rekstur járnblendiverksmiöju
á Islandi. Tillögur þessar hafa
stjórnarflokkarnir og einnig
stjó rnarandstöðuflokkarnir á
Alþ. rætt itarlega. Forsætisráö-
herra og ég höfum einnig haft þá
ánægju aö hitta fulltrúa yöar, hr.
Pitcher og herra Eide, en þeir
hafa verið I Reykjavik til þess aö
ræöa um framvindu samvinnu
okkar. Þeir hafa látið okkur og
fulltrúum stjórnmálaflokkanna 1
té upplýsingar um skoöun Union
Carbide Corporation á þvl, aö
mikilvægt sé aö hrinda þessum
áformum I framkvæmd sem fyrst
Ég vænti þess aö þeir hafi einnig
myndaö sér sínar eigin skoöanir
um hiö mikla fylgi sem áætlunin
nýtur.
Eins og málum háttar þykir
mér fyrir þvi.aö ég hef komist aö
þeirri niöurstööu aö ekki mundi
vera ráölegt að reyna aö fá staö-
festingarlögin samþykkt á þessu
þingi vegna anna i þinginu og
stjórnmálalegra erfiöleika. Viö
gerum okkur ljóst, aö eins og á
stendur er áriöandi aö þér getiö
lagt raunhægt mat á framtiö
þessarar mikilvægu áætlunar. Ég
vona aö eftirtaldar aths. skýri aö-
stöðuna:
1. Rlkisstjórnin og ég teljum kjör
þau og skilmála, sem samiö
hefur veriö um, aögengilega i
öllum meginatriöum, og vil ég
fullvissa yöur um mikinn og
áframhaldandi áhuga á þvi aö
áætluninni veröi hrundiö i
framkvæmd svo fljótt sem unnt
er.
2. Iönaöarráöuneytiö mun
tryggja aö frv. til staöfestingar
laga veröi lagt fyrir Alþingi i
byrjun næsta reglulega Al-
þingis, væntanlega snemma i
okt. á þessu ári.
3 Til þess aö sem minnstar tafir
veröi á byggingaráformum
vegna þessa dráttar mun rlkis-
stjórnin gera ráöstafanir til
þess að afla þess fjár, sem
nauösynlegt er til aö halda
áfram verkfræðistörfum og
annarri undirbúningsvinnu við
áætlunina I náinni samvinnu
viö yöur.
Ég hef lagt texta þessa bréfs
fyrir rikisstjórnina og þingflokka
Sjálfstæöisflokks og Alþýöu-
flokks. Allir þessir 'aöilar hafa
lýst yfir fylgi við skoöanir þær,
sem þar koma fram, þar meö
Magniis Kjartansson á ráöherra
árum slnum.
taliö skuldbindingu um aö séö
veröi um lagalega hlið málsins
eins fljótt og unnt er, til þess að
áætluninni veröi hrundiö af staö.
Flokkur minn hefur ekki enn tek-
iö afstööu til áætlunarinnar i
meginatriðum, en fellst á aö miö-
aö veröi aö þvi aö staöfestingar-
lögin veröi lögö fyrir Alþingi i
byrjun næsta þings til þess að
endanleg ákvöröun veröi þá tek-
in. Þaö er álit mitt, aö þér getið
reitt yöur á aö hugsanlegar breyt-
ingar i stjórnmálum á Islandi á
þeim tíma! þar til Alþingi tekur
endanlega ákvöröun muni ekki
hafa áhrif á þessi sjónarmið.
Þaö er einlæg von min aö bréf
þetta geri okkur kleift aö halda
samvinnunni áfram og áætlun-
inni, sem aö minu viti er svo
mikilvæg fyrir iðnþróun lands
mlns, veröi lokiö sem fyrst.
Með beztukveöju.
Viröingarfyllst,
Iönaöar ráöherra ”.
Gylfi Þ. Gislason segir, aö Al-
þýöuflokkurinn hafi samþykkt
fyrir sitt leyti, aö þetta bréf væri
sent, en Gunnar Thoroddsen haföi
ýmsa fýrirvara. Vegna afstööu
Sjálfstæöisflokksmanna var þetta
bréf aldrei sent.
Annað bréfið
En Magnús Kjartansson var
samtekki af baki dottinn. Tveim-
ur dögum seinna eöa 22. april er
Alþýöuflokknum og Sjálfstæöis-
flokknum sent vppkast aö nýju
bréfi, sem hljóðaði á þessa leiö:
„Kæri herra Malone.
Rlfcisstjórnlslandshefur núum
skeið haft til athugunar uppkast
aö samningum milli rikisstjórnar
Islands og Union Carbide Cor-
poration um samvinnu um bygg-
ingu og rekstur járnblendiverk-
smiöju á íslandi. Tillögur þessar
hafa stjórnarflokkarnir og einnig
stjónarandstööuflokkarnir á Al-
þingi rætt itarlega. Forsætisráö-
herra og ég höfum einnig haft þá
ánægju aö hitta fulltrúa yðar, hr.
Pitcher og hr. Eide, en þeir hafa
veriö I Reykjavik til þess aö ræöa
um framvindu samvinnu okkar.
Þeir hafa látiö okkur og fulltrúum
stjórnmálaflokkanna i té upplýs-
ingar um skoöanir "Union Carbide
Corporation á þvi að mikilvægt
sé aö hrinda þessum ákvörðunum
iframkvæmd sem fyrst. Ég vænti
þess, aö þeir hafi einnig myndað
sinar eigin skoöanir um hiö mikla
fylgi, sem áætlunin nýtur.
Eins og þessum málum er
háttaö þykir mér fyrir þvi, aö ég
hef komizt aö þeirri niöurstöðu aö
ekki mundi veröa ráölegt aö
reyna aö fá staöfestingarlögin
samþykkt á þessu þingi vegna
anna I þinginu og stjómmála-
legra erfiöleika. Viö gemm okkur
ljóst, aö eins og á stendur er áriö-
andi aö þér getiö lagt raunhæft
mat á framtið þessarar mikil-
vægu áætlunar. Ég vona aö eftir-
taldar aths. skýri stöðuna:
1. Rikisstjórnin og ég teljum kjör
þau og skilmála, sem samiö
hefur veriö um, aögengileg i
öllum meginatriöum, og vil ég
fullvissa yöur um mikinn og
áframhaldandi áhuga á þvi aö
áætluninni veröi hrundiö i
framkvæmdsvo fljóttsem unnt
er.
2. Iönaöarráöuneytiö mun
tryggja aö frv. til staöfesting-
arlaga veröi lagt fyrir Alþingi i
byrjun næsta reglulegs Al-
þingis, væntanlega snemma i
okt. á þessu ári.
3. Til þess aö sem minnstar tafir
verði á byggingaráformum
vegna þessa dráttar mun rikis-
stjórnin gera ráðstafanir til
þess aö afla þess fjár sem
nauösynlegt er til þess aö halda
áfram verkfræðistörfum og
annarri undirbúningsvinnu viö
áætlunina I náinni samvinnu
viö yöur.
Ég hef lagt texta þessa bréfs
fyrir rikisstjórnina og þingflokka
Sjálfstæöisflokks og Alþýöu-
flokks. Ríkisstjórnin og Alþýöu-
flokkurinn hafa lýst yfir fylgi við
þessar skoðanir þær sem þar
koma fram, þar meö taliö skuld-
bindingu um aö séö veröi um
lagalega hliö málsins eins fljótt
og unnt er til þess aö áætluninni
veröi hrundiö aö staö. Flokkur
minn hefur enn ekki takiö afstööu
tiláætlunarinnari meginatriöum.
Þaö sama gildir um Sjálfstæöis-
flokkinni sem þó hefur lýst sig
fúsan til þess aö taka afstööu
þegar áætlanimar hafa verið
lagöar fyrir Alþingi.
Þaö er einlæg von mín að bréf
þetta geri okkur kleift aö halda
samvinnunni áfram og aö áætlun-
inni, sem aö mlnu áliti er svo
mikilvæg fyrir iönþróun lands
mins, veröi lokiö sem fyrst”.
Þetta bréf var heldur ekki sent
og mun enn hafa strandan á þvi,
að Sjálfstæöisflokkurinn vildi
hvorki veita rlkisst jórninni
heimild til að gera þetta eöa'
annaö.
t>riðja bréfið
En Magnús er þrár og hann
gafst ekki upp, enda vildi hann
ekki láta sambandið við Union
Carbide rofna fyrir nokkurn mun.
Hinn 21. mai sendir hann Union
Carbide eftirfarandi bréf:
„Kæri herra Malone.
Rlkisstjórníslandshefur nú um
skeiö haft til athugunar uppkast
aö samningum milli rikisstj. Is-
lands og Union Carbide Corpora-
tion um samvinnu um byggingu
og rekstur járnblendiverksmiöju
á Islandi. Tillögur þessar hafa
stjórnarflokkarnir og einnig
stjórnarandstöðuflokkarnir á Al-
þingi rætt itarlega. Forsætisráö-
herra og ég höfum einnig haft þá
ánægju að hitta fulltrúa yöar, hr.
Pitcher og hr. Eide, en þeir hafa
verið I Reykjavik til aö ræöa um
framvindu samvinnu okkar. Þeir
hafa látiö okkur og fulltrúum
stjórnmálaflokkanna I té upplýs-
ingar um skoöun Union Carbide
Corporation á þvf, aö mikilvægt
sé aö hrinda þessum áformum i
framkvæmd sem fyrst. Ég vænti
þess, að þeir hafi einnig myndaö
sinareiginskoöanirum hiömikla
fylgi sem áætlunin nýtur. Einnig
voru þeir látnir vita um hiö mjög
svo erfiöa ástand á stjómmála-
sviöinu.
Óvissan I stjórnmálum á Al-
þingi og miklar þingannir aðrar
höföu þegar sannfært mig um aö
óráölegt væri aö leggja frv. aö
staðfestingarlögunum fyrir Al-
þingi á þeim tima sem við höföum
upphaflega ákveöiö. Atburöir,
sem gerst hafa slöan hr. Pitcher
fór frá íslandi, hafa staöfest skoö-
un mína i þessu tilliti. Fyrstu
daga mánaöarins (þ.e. maimán-
aöar) varö stjórnmálakreppan
alvarleg og forsætisráöherra
ákvaö aö rjúfa þing og boöa til al-
mennra kosninga, sem haldnar
veröa hinn 30. júni. öll frumvörp
sem ligg ja fyrir Alþingi verður nú
að flytja á ný á næsta þingi. At-
burðarrásin hefur gert óhjá-
kvæmilegt aö fresta hvers kyns
frekari störfum við sameiginleg-
ar framkvæmdir okkar þar til að
kosningum loknum.
Við þessar aöstæöur væri ekki
rétt af mér aö leitast viö aö benda
á hverja afstööu rikisstjórn Is-
lands kann aö taka aö kosningum
loknum. Enginn veit nú hverjar
stjórnmálabreytingar kosning-
arnar leiða af sér eða hve fljótt að
þeim afstöönum ný rlkisstjórn
eöa núv. ríkisstjórn ef hún veröur
endurkjörin, getur haft samband
viö yður á ný. Allt um þaö held ég
aö mér sé mögulegt aö bera fram
nokkrar athugasemdir sem yöur
kunna aö koma aö gagni viö aö
meta stööuna.
Fyrst af öllu get ég staöfest, aö
rikisstjórnin og ég sjálfur erum
þeirrar skoöunar aö skilmálar og
skilyrði, sem um var samið viö
yöur, voru viöunandi I öllum
meginþáttum og viö höfðum og
höfum enn mikinn og áframhald-
andi áhuga á framkvæmd verks-
ins i náinni framtiö. Þingflokkar
Framsfíhnarflokks og Alþýðu-
flokks hafa fallist á þessa skoðun.
Flokkur minn haföi hins vegar
ekki enn tekið afstöðu um tillög-
una, og þóttSjálfstæðisflokkurinn
hafi látiö I ljós vilja til aö greiöa
fyrir samþykkt frumvarpsins ef
þaö yröi lagt fram fyrir þinglok,
geröi hann vissa fyrirvara um af-
stööu sina til ýmissa efnisatriöa.
Mér þykir mjög leitt að tafir
þessar kunna aö koma verkinu
öllu á hættustig, en ég vona aö þér
sjáiö, aö núverandi ástand á ræt-
ur slnar aö rekja til ófyrirsjáan-
legra stjórnmálaöröugleika sem
ekki eru I neinum tengslum viö
ágæti áformsins. Nú getum við
einungis vonað aö hægt veröi aö
taka þetta mál upp fljótlega aö
væntanlegum kosningum af-
stöönum.
Meö bestu kveöjum,
Viröingarfyllst,
Magnús Kjartansson,
iðnaðarráöherra”.
Sagan getur
endurtekið
sig
Af framangreindum bréfaskrif-
um er eftirfarandi augljóst:
1) Magnús Kjartansson hefur
veriö mikill áhugamaöur um aö
samningarnir viö Union Carbide
færu ekki útumþúfur og þvi gerir
hann sérstakt far um að skrifa
fyrrtalin bréf, sem haldi áhuga
þess vakandi, svo að hægt veröi
aö taka upp þráðinn aftur eftir
kosningarnar.
2) I öllum bréfunum tekur
Magnús þaö fram, að hann telur
aö skilmálar og skilyrði, sem hafi
verið samiö um, séu viðunandi i
öllum meginþáttum og hann hafi
mikinn og áframhaldandi áhuga
á framkvæmd verksins I náinni
framtið.
3) I fyrsta bréfinu tekur hann
skýrt fram, að flokkur hans, þ.e.
Alþýðubandalagið, hafi fallizt á,
að samningarnir veröi lagöir
fyrir Alþingi I byrjun næsta þings
eða strax eftir kosningarnar.
4) I öllum bréfunum er tekiö
fram, aö Alþýöubandalagið hafi
ekki tekiö endanlega afstööu. Af
þvi má ráöa, aö nokkur ágrein-
ingur hafi veriö um þaö i flokkn-
um. Þaömá hins vegar telja vist,
að Magnús heföi ekki farið aö
skrifa þessi bréf og sent hiö siö-
asta þeirra, ef hann heföi ekki
álitiö aö hann gæti gert sér rök-
studda von um stuöning flokks
sins eða a.m.k. meirihluta hans.
En þetta var meðan Alþýöu-
bandalagiö var I stjórn. Eftir
kosningarnar lenti þaö i stjórnar-
andstöðu. Þá snerist þaö gegn
málinu og Magnús lika, þrátt
fyrir bréfin þrjú. Þannig fer af-
staða Alþýöubandalagsins eftir
þvi, hvort þaö er i stjórn eöa
stjórnarandstööu. Komist Al-
þýöubandalagiö aftur i stjórn,
getur sagan af bréfaskriftum
Magnúsar Kjartanssonar og
Union Carbide átt eftir að endur-
taka sig, þótt annar maöur veröi
þá iðnaöarmálaráöherra flokks-
ins og annar auðhringur en Union
Oarbide komi þá viö sögu.
Þ.Þ.