Tíminn - 27.11.1977, Síða 25
Sunnudagur 27. nóvember 1977
25
Brú til
hins
hor f na
Jón Thorarensen:
Svalheimamenn
Gulitjarnarættin.
Nesjaútgáf an
Reykjavik 1977
Sr. Jón Thorarensen hefur
sérstoðu meðal islenzkra rithöf-
unda. Hann hefur verið drjúgur
að safna og skrásetja þjóösögur
og munnmæli og þjóðhátta-
lýsingar. En auk þess hefur
hann fært þau fræði i skáldsögu-
búning og á þvi sviði er sérstaða
hans.
Svalheimamenn er ættarsaga
um höfðingja á Suðurnesjum.
Þó að nöfn bæja og manna séu
búin til mun þó öll lýsing lands
og staðhátta vera sönn og rétt.
En inn i ættarsöguna eru svo
felldir fjölmargir smáþættir og
skrýtlur um sveitungana. Og
hvort sem það er nú sögur eins
og þærhafa gengið eða að veru-
legu leyti hugarsmið höfundar
— en um það kann maður af
öðru landshorni litt. að dæma —
eru þær aliar innan ramma þess
veruleika sem Islenzkt þjóðlif
var. Og allar mannlegar, sann-
ar.
Sumum mun að visu finnast
að myndin sé fegruð. Þetta sé
rómantisk saga þar sem litið er
rætt um hungur og harðrétti,
hýðingar og kúgun. Vel má vera
að þeir Gulltjarnarmenn eins og
þeim er lýst séu mildari
höfðingjar en algengast var. Þó
er það glöggt af þessum sögum
að þeir sem eitthvað áttu höfðu
sterka aðstöðu til að auka við
það. Og það er réttilega dregið
fram aö úrræðin höfðu eigna-
menn og með árvekni og nýtni
héldu menn við eigum sinum en
annars ekki. Og vist megum við
vara okkur á þeim listfræöing-
um og rithöfundum sem halda
að samtfðarmenn sr. Jóns á
Bægisá og Jónasar Hallgrims-
sonar hafi aldrei séð til sólar og
býsnast yfir rómantiskum
fölsunum i Heiðarbýlissögum
Jóns Trausta.
Sumir telja það vott um léleg-
an bókmenntasmekk blendinga
að hversdagslegar lýsingar frá
alþýðufólki og örlögum venju-
legra manna eru gjarnan vin-
sælli lesning en tizkuskáld-
skapur sumur. Þetta er. þó vott-
ur um það að þjóðin er enn
tengd uppruna sinum og mótuð
af aldalangri menningu. Og
Svalheimamenn eru ávöxtur
þeirra fornu erfða. Þvi eru beir
liklegir til að verða vinsæll
skemmtilestur. En sá skemmti-
lestur skilur ýmislegt eftir.
Þessi bók er t.d. krök af orð-
tökum frá lifsstarfi og reynslu
Suðurnesjamanna frá kyni til
kyns. Þar er talaö um hvern
vanda sem að borðstokk berst,
að slá öllu á flatrek, gera eitt-
hvað þegar fall hæfir færi
o.s.frv. Er það allt ærinn sjóður.
Töluverð þjóðtrú er i þessu
safni. Sagt er frá draumum
mörgum og fyrirburðum og er
viða reimt. Fjölkynngismenn
koma lika við sögu og beitt er
beinum sjónhverfingum. Og þó
að það sé kallað hjátrú er það
allt i samræmi við fyrri tiðar
Séra Jón Thorarensen
trú. Þess er að gæta að frásögn-
in öll er lögð i munn gamalli
vinnukonu. Höfundur sér allt
með hennar augum, segir með
hennar orðum. Þvi er þetta allt
munnmælasögur. Og i þeim á
forneskjan vissulega heima.
Segja má að það sé I rauninni
ekki sagnfræðilega rétt að tala
um hreppsnefnd, oddvita og
sóknarnefnd á þeim tima sem
sagan gerist. Hreppsnefndir
urðu ekki til fyrr en 1875. Hér
eru þvi notuö embættisheiti sem
samtiminn þekkir og skilur um
það sem er eldra en þau. Kalla
má að það séu stílbrögð til að
nálgast lesandann yfir það alda-
haf sem á milli er. Samt finnst
mér það óþarfi.
Nú er reynt að taka saman
lesbækur fyrir unglinga i skól-
um svo að þeir tileinki sér svip-
mót liðinna tima og skilji lifs-
baráttu þjóðar sinnar á liðnum
öldum. Sr. Jón Thorarensen
hefur með ritum sinum lagt ær-
inn feng i hendur þeirra manna
sem vilja og eiga að glæða skiln-
ing unglinga á liðnum tfma.
Svalheimamenn er slikur
fengur.
H.KR.
bókmennfir
Skáldið o
margt tekizt vel og giftusamlega.
Hvernig er þér nú I hug, þegar þú
litur um öxl þér, rösklega sjötug-
ur, og horfir yfir farinn veg?
— Ég hef kynnzt mörgu ágætu
fólki. Ég kvæntist góðri konu,
sem hefur veitt mér ómetanlegan
stuðning I lifsbaráttunni. Við eig-
um fjórar dætur, sem allar eru
upp komnar og hafa allar reynzt
okkur foreldrum sinum með
miklum ágætum. Þetta er mikil
hamingja.
— Og sem skáld og rithöfundur
mátt þú líka vera ánægður, bæði
með þann árangur, sem þú hefur
náð, og viðtökurnar, sem verk þin
hafa hiotið.
— Já, það er liklega rétt. En eru
skáld annars nokkurn tima reglu-
lega hamingjusöm? Það er ég
ekkert viss um. Jú, annars: Þau
eru hamingjusöm, þegar þau
finna, að þeim hefur tekizt vel.
— VS.
NYTT FRfi MRX
Þessi úípa er
nýkomin i verziunina
Tegund: Útpa með tvöföldu fóðrí.
Efni: Terylene, nylonfóður og einnig
laust loðfóður.
Stærðir: 38 ti/ 48.
Litir: Drappjitað, brúnt, grænt, svart
og b/átt.
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU
Laugavegi 66
Simi 2-59-80
Reykjavik
Þeir eru komnir
nýju kaffipakkarnir frá Kaaber!
Hinar viiísælu kaffitegundir frálÓ. Johnson & Kaaber h.f..eru nú
komnar í nýjar, lofttæmdar umbúðir.
Lofttæmdar umbúðir eru frábrugðnar loftþéttum að því leyti, að
lofti er ekki pakkað með. Sökum þess falla umbúðirnar þétt að
kaffinu, og pakkinn verður glerharður. Þar með eykst geýmslu-
þolið og kaffið er eins og nýtt, þegar pakkinn er opnaður.
Ríó, Mokka, Java og Santos.
Ilmandi, úrvals kaffi í nýjum, lofttæmdum umbúðum.
0. JOHNSON & KAABER H.F.