Fréttablaðið - 22.06.2006, Síða 12
12 22. júní 2006 FIMMTUDAGUR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
33
18
8
0
6/
20
06
www.lyfja.is
„Ég geri meira fyrir mig og mína á sumrin“
Normaderm tilboðspakkning
Frábær lína fyrir óhreina húð. Hreinsigel og
andlitsvatn fylgja með sem kaupauki.
Bólubaninn stoppar fituframleiðslu, sýnilegur
munur strax og bólan/þrotinn hverfur eftir 24 klst.
Veet Spa - silkimjúk háreyðing…
sem endist lengur.
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað
Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki
Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
Örugglega brún
Alþjóðasamtök húðlækna mæla með
Hawaiian Tropic sólvörninni
með stuðli 15 og yfir.
kaupauki
nýtt í Lyfju
LATIBÆR Vegna fréttar Ríkissjón-
varpsins í fyrradag um Latabæ
vilja forráðamenn fyrirtækisins
koma því á framfæri að þrátt fyrir
meiðsli Magnúsar Scheving muni
framleiðsla þáttanna halda áfram
af fullum krafti. Þetta kemur fram
í yfirlýsingu frá fyrirtækinu í
gær.
Magnús Scheving leikur aðal-
hlutverk í sjónvarpsþáttunum um
Latabæ, en hann er einn af vinsæl-
ustu barnaþáttunum í Bandaríkj-
unum í dag. - sþs
Yfirlýsing frá Latabæ:
Tökur halda
áfram á fullu
MENNING Listasafn Reykjanesbæj-
ar hefur gert samning við Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar um styrk til
menningarstarfsemi.
Leifsstöð mun þar að auki veita
listasafninu aðstöðu í flugstöðinni
þar sem íslenskir listamenn og list
þeirra verður kynnt.
Þeir Höskuldur Ásgeirsson, for-
stjóri flugstöðvarinnar, og Árni
Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanes-
bæ, undirrituðu samkomulagið við
opnun listasýningar í Listasafni
Reykjanesbæjar, Duushúsum. - æþe
Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Eflir listir og
menningu
EFNAHAGSMÁL „Hún er bjartsýn að
því leyti að þeir telja að hagkerfið
muni ná talsvert mjúkri lendingu á
næsta ári,“ segir Björn Rúnar Guð-
mundsson, sérfræðingur hjá grein-
ingardeild Landsbankans, um end-
urskoðaða þjóðhagsspá
fjármálaráðuneytisins. Var spáin
birt í fyrradag og nær yfir árin
2005 og 2008.
„Það er sérstakt að þeir spá lít-
illi einkaneyslu á næsta ári miðað
við hvað þeir telja að kaupmáttur
ráðstöfunartekna muni aukast
mikið,“ segir Björn. Hann telur
einnig fasteignamarkaðinn mikinn
óvissuþátt á næstu árum og að
krónan gæti fallið ef efnahags-
stjórnin er ekki nægilega aðhalds-
söm. „Það gæti kallað á meiri verð-
bólgu og erfiðleika við að ná
lendingu.“
Þóra Helgadóttir, sérfræðingur
hjá greiningardeild KB banka, telur
spána einkennast af þó nokkurri
bjartsýni. „Stóriðjuframkvæmdir
geta breytt myndinni gjörsamlega,
tímasetning og umfang opinberra
framkvæmda hefur mikil áhrif á
þróunina,“ segir hún. „Ef farið
verður út í frekari stórframkvæmd-
ir munum við sjá meira ójafnvægi í
hagkerfinu. Að fresta framkvæmd-
um núna myndi slá á væntingar.“
Ingólfur Bender, forstöðumaður
Greiningar hjá Glitni, segir hins
vegar spá ráðuneytisins í samræmi
við þeirra spá, nema þeir séu tals-
vert bjartsýnni á að viðskiptahall-
inn verði minni.
Þorsteinn Þorgeirsson, skrif-
stofustjóri efnahagsskrifstofu fjár-
málaráðuneytisins, segir vegið að
starfsheiðri sérfræðinga ráðuneyt-
isins með því að kalla spána byggða
á óskhyggju. „Ef greiningaraðilar
vilja fetta fingur út í okkar niður-
stöðu þurfa þeir að gagnrýna for-
sendur sem við leggjum til við
útreikningana,“ segir Þorsteinn.
Ráðuneytið fái einungis ákveðna
niðurstöðu úr þjóðhagslíkaninu og
hagræði henni ekki. Fleira spili inn
í
hvað ákvarðar einkaneyslu en
kaupmáttaraukning, gengisþróun,
stýrivextir og atvinnustig.
„Fjármálaráðuneytið vinnur á
grundvelli viðamikils þjóðhagslík-
ans sem tryggir gott innra sam-
ræmi í spágerðinni.“ Þorsteinn
segir þó að óvissuþættir séu í
spánni og það sé tekið fram.
Seðlabankinn gefur út eigin
þjóðhagsspá 6. júlí og fékkst eng-
inn þaðan til að tjá sig um málið.
steindor@frettabladid.is
Finnst vegið að
heiðri starfsfólks
Sérfræðingar greiningardeilda tveggja banka telja endurskoðaða þjóðhagsspá fjár-
málaráðuneytisins einkennast af bjartsýni. Ráðuneytið telur vegið að starfsheiðri
starfsmanna þess með aðdróttunum þess efnis að óskhyggja ráði för hjá þeim.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Þjóðhagsspá ráðuneytisins hefur fengið gagnrýni greiningardeilda
bankanna, sem enginn fótur er fyrir, að mati ráðuneytisins. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
INGÓLFUR BENDER ÞORSTEINN ÞOR-
GEIRSSON
HELSTU ATRIÐI ÞJÓÐHAGSSPÁR
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTISINS
Hagvöxtur árið 2006 verði 4,7 prósent, tæpt
1prósent árið 2007 og 2,3 prósent 2008.
Viðskiptahallinn verði 15,9 prósent í ár, en
minnki hratt og verði 7,8 prósent 2007 og
3,7 prósent 2008.
Atvinnuleysi verði 1,5 prósent í ár, 2,3 pró-
sent næsta ár og 3 prósent eftir tvö ár.
Verðbólga verði 7,8 prósent í ár, minnki í 4,6
prósent á næsta ári og í 2,6 prósent 2008.
Kaupmáttur ráðstöfunartekna verði 3,5 pró-
sent í ár á mann, 3,3 prósent árið 2007, en
1,9 prósent 2008.
Óvissuþættir verði komandi kjarasamningar,
stóriðjuframkvæmdir, gengi krónunnar og
ástand alþjóðlegra efnahagsmála.
SRI LANKA, AP Sendiherra Noregs á
Sri Lanka, Hans Brasttkar, skýrði
frá því í gær að Finnar, Svíar og
Danir þyftu á næstunni að kalla
heim liðsmenn sína í norrænu frið-
argæslusveitinni SLMM.
Þetta er krafa tamíltígranna, en
hún kemur í kjölfar þess að Evr-
ópusambandið skilgreindi hreyf-
ingu þeirra sem hryðjuverkasam-
tök. Tamíltígrarnir kæra sig því
ekki lengur um að ríkisborgarar
landa Evrópusambandsins gegni
friðargæsluhlutverki á eyjunni.
Íslendingar og Norðmenn taka
þátt í starfi norrænu friðargæslu-
sveitarinnar og þeir njóta áfram
trausts stríðandi fylkinga á Sri
Lanka. - kóþ
Friðargæsla á Sri Lanka:
Liðsmenn ESB-
þjóða víkja
ÚR ÆFINGABÚÐUM TAMÍLTÍGRA
Tígrarnir vilja ekki Svía, Finna og Dani.
NORDICPHOTOS/AFP
Týndur í einstefnu Tveir enskir
fótboltaáhangendur týndu bílaleigubíl
sínum í Köln eftir að þeir lögðu
honum í götu sem þeir töldu heita
Einbahnstrasse eða Einstefnugata á
íslensku. Þeir skrifuðu niður götunafnið
til minnis en þegar þeir sneru til baka
komust þeir að því að önnur hver gata í
miðbæ Kölnar er merkt „Einstefnugata“.
ÞÝSKALAND
LANDKYNNING Íslenski hringvegur-
inn var til umfjöllunar á forsíðu
ferðaútgáfu The New York Times
síðastliðinn sunnudag. Greininni
fylgja myndir úr ferð blaðamanns-
ins Mark Sundeen og félaga hans
um hringveginn en um þetta er
fjallað á heimasíðu Ferðamála-
stofu.
Einar Gústavsson, forstöðu-
maður Skrifstofu ferðamála í New
York, segir gríðarlega verðmætt
að fá svo áberandi umfjöllun í jafn
virtu og útbreiddu blaði og The
New York Times. Einar segir aug-
lýsingaverðmæti greinarinnar í
The New York Times líklega 10-12
milljónir og er þá vefútgáfa blaðs-
ins ekki talin með. -hs
Ísland í New York Times:
Á við milljóna
auglýsingar
BLÁA KAMELJÓNIÐ Breskur leikari, í gervi
bláa kamelljónsins Dave, hefur verið
sendur út af örkinni af Verkamannaflokkn-
um til þess að fylgja David Cameron,
leiðtoga Íhaldsflokksins, eftir. Þarna sést
kamelljónið fylgjast Cameron halda ræðu á
fjölskylduráðstefnu í London í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP Biskupakirkjan í
Bandaríkjunum hefur hafnað
beiðni frá anglíkanska kirkjusam-
bandinu um að láta framvegis eiga
sig að velja samkynhneigt fólk til
biskupsstarfa. Enska móðurkirkj-
an og aðrar kirkjudeildir sam-
bandsins eru lítt hrifnar af þessu
framtaki bandarísku deildarinnar.
Fyrir þremur árum kaus eitt af
biskupsdæmum bandarísku bisk-
upakirkjunnar sér samkynhneigð-
an biskup, V. Gene Robinson. Kosn-
ingin vakti hörð viðbrögð frá ensku
biskupakirkjunni, sem er þjóð-
kirkja Bretlands, og fleiri kirkju-
deildum anglíkanska kirkjusam-
bandsins víða um heim.
Einnig hefur biskupakirkjan í
Bandaríkjunum leyft sér að kjósa
sér konur til þess að gegna bisk-
upsembættum, en flestar aðrar
deildir anglíkanska kirkjusam-
bandsins hafa ekki viljað heimila
það.
Núna um síðustu helgi dró svo
til tíðinda þegar bandaríska kirkj-
an valdi sér nýjan leiðtoga úr
röðum biskupa sinna, og fyrir val-
inu varð í fyrsta sinn kona, Kather-
ine Jefferts Schori. Verulegur
þrýstingur hefur verið á leiðtoga
bresku kirkjunnar, Rowan Willi-
ams erkibiskup, um að grípa til
aðgerða gegn bandarísku deild-
inni. - gb
NÝJA LEIÐTOGANUM FAGNAÐ Um síðustu helgi kaus biskupakirkjan í Bandaríkjunum sér
konu fyrir leiðtoga, og í gær ákvað kirkjuþingið að verða ekki við beiðni um að velja ekki
aftur homma til biskupsstarfa. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Biskupakirkjan í Bandaríkjunum hræðist hvorki konur né samkynhneigða:
Gengur fram af trúbræðrum sínum