Fréttablaðið - 22.06.2006, Page 84
Með hníf og gaffli
> Þráinn Bertelsson
Fá veitingahús á Íslandi geta státað af fegurri staðsetningu og
magnaðra útsýni en Hafið bláa, sem stendur á Óseyri þar sem
Ölfusá fellur í sjó fram á milli Þorlákshafnar og Eyrarbakka.
Þangað er rúmlega hálftíma akstur frá Reykjavík.
Í kynningarpésa fyrir Hafið bláa stendur: „Við leggjum
áherslu á afurðir lands og sjávar með sérstakri áherslu á sjávar-
rétti. Metnaður okkar er að framreiða fyrsta flokks rétti úr
úrvals hráefni.“
Það er gott að fá að vita hvar áherslurnar liggja. Hafið bláa
leggur sem sagt áherslu á sjávarrétti.
En matargestur lítur í kringum sig eftir fleiri vísbendingum
um hvers konar stað hann sé kominn á og hvers hann megi
vænta.
Eru hvítir taudúkar á borðum? Eru þjónarnir fagmenn?
Og síðasta vísbending: Verðið á matseðlinum.
Það er ekki auðvelt að sjá út hvernig staður Hafið bláa vill
vera.
Dúkar á borðum? Nei.
Þjónarnir fagfólk? Hugsanlega yfirþjónninn.
Verðið? Í hágæðaklassa. Til dæmis sambærilegt við Salt við
Pósthússtræti sem er mjög góður veitingastaður með áherslu á
frábæra eldamennsku, og vinsamlega en ófaglærða þjónustu.
Gott og vel. Humar í forrétt handa dömunni (1.950 kr.), graf-
lax handa mér (1.150). Sjávarréttaþrenna í aðalrétt (2.800). Ís
(650) og ísterta (1.050) í eftirrétt. Glas af hvítvíni hússins (650),
portúgölsku Dao, það á vel við hérna í Ölfusinu, því að Dao-vínið
heitir eftir einni af þverám Mondego-árinnar.
Það var klókt hjá dömunni að panta humar í forrétt, því að
hann er óaðfinnanlegur, einfaldlega eins og humar gerist bestur.
Graflaxinn minn og graflax-sósan er hins vegar af þeim gæða-
staðli sem ég get sjálfur sótt mér í kalda borðið í hvaða stór-
markaði sem vera skal.
Sjávarþrennan er samsett úr skötuselskinnum, steiktum
steinbít og þremur humarhölum. Skötuselskinnar eru nýnæmi,
kjötið er gróft en hefur verið saltað full hressilega til að maður
geti áttað sig á bragðinu. Steinbíturinn er þurr og ofsteiktur.
Humarinn gæti ekki verið betri.
Með þessu eru langsoðnar kartöflur, grænmetissalat með
mangóbitum og fremur bragðdauf sósa, þykkt með einhverju
mjöli. Þetta þætti gott í mötuneyti, en á dýrum veitingastað fer
ekki hjá því að manni þyki þetta fremur þunnar trakteringar.
Piparmyntuísterta og nokkrar ískúlur með kaffinu smellpassa
við meðalmennskuna sem ríkir í eldhúsinu.
HAFIÐ BLÁA, VIÐ ÓSA ÖLFUSÁR, 815 ÞORLÁKSHÖFN
Máltíð fyrir tvö kostar 11.700 kr. Plúsarnir eru fyrsta flokks humarhalar, fallegur
staður, einstakt útsýni og lipurt þjónustufólk – sem þó spurði fulloft hvernig
manni smakkaðist maturinn. Mínusarnir eru þeir að metnaðurinn sem maður
hafði vonast eftir í eldhúsinu kemur aðeins fram í verðlagningunni.
Hafið bláa, hafið...
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Leikkonan Cameron Diaz
gladdi ferðamenn í Karíba-
hafinu á dögunum þegar
hún spókaði sig þar um
berbrjósta. Cameron var
róleg og afslöppuð og
kippti sér ekki mikið upp
við augnagotur karl-
manna á svæðinu þegar
hún var í sólbaði með
vinkonum sínum.
Ein þeirra var mót-
leikkona hennar úr
Charlie‘s Angels,
Drew Barrymore.
„Cameron leit
einstaklega vel út
og skemmti sér
vel með vinkon-
um sínum. Svo fór
hún úr bikiníinu
sínu en var með
stráhatt yfir
höfðinu til að
skýla sér,“ sagði
einn gestanna á
ströndinni. „Við
karlmennirnir
ætluðum ekki að trúa því
hvað við vorum heppnir,“
sagði hann.
Cameron Diaz er enn
á föstu með söngvaran-
um Justin Timberlake
og hann virðist líka
njóta kynþokka henn-
ar. Þannig mun
næsta plata
hans verða
„afar sexý“,
eins og hann
lýsir því
sjálfur.
Berbrjósta í sólinni
Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar
hefur sent frá sér lagið Farinn
sem er tekið af væntanlegri sóló-
plötu sem kemur út í haust.
Í fyrra sló Friðrik í gegn á plöt-
unni Ég skemmti mér, en þar söng
hann eldri lög í félagi við Guðrúnu
Gunnarsdóttur. Seldist platan í sjö
þúsund eintökum og varð ein sú
söluhæsta hér á landi. Friðrik
Ómar er liðtækur laga- og texta-
höfundur og semur vænan skerf
af nýju plötunni sjálfur.
Nýtt lag frá
Friðriki
CAMERON
DIAZ Gladdi
karlmenn á sól-
arströnd þegar
hún spókaði sig
um berbrjósta.
FRIÐRIK ÓMAR Tónlistarmaðurinn knái
hefur sent frá sér lagið Farinn.
MYND/DANÍEL RÚNARSSON
Keflvíska rokksveitin Koja hefur
gefið út sína fyrstu þröngskífu.
Hefur hún að geyma fimm lög og
kemur út á vegum Geimsteins.
Sveitin hefur verið starfandi í
sex mánuði og spilar ómstrítt
stærðfræðirokk að sögn þeirra
félaga. Koja mun spila á Kára-
hnjúkum 9. júlí, sem hlýtur að telj-
ast heldur óvenjulegt. „Okkur datt í
hug að þetta myndi vekja athygli
og að þetta gæti orðið gaman líka,“
segir Björgvin Ívar Baldursson,
meðlimur Koju. „Við erum samt
engir umhverfisverndarsinnar
heldur miklu frekar tónlistarvernd-
arsinnar,“ segir hann í léttum dúr.
Koja stefnir á að gefa út stóra
plötu á næstunni og hefur þegar
samið þó nokkur lög til viðbótar
við þau sem eru á þröngskífunni
nýju. Útgáfutónleikar Koju eru
síðan fyrirhugaðir í Keflavík á
næstunni. -fb
Koja spilar á Kárahnjúkum
KOJA Hljómsveitin Koja er að gefa út sína fyrstu þröngskífu.
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Garðsláttuvélar
Þýskar
gæðasláttuvélar
fyrir þá sem
gera kröfur
um gæði
ENGINN TRÚÐI Á ÞAU,
EN HANN HJÁLPAÐI ÞEIM
AÐ FINNA TAKTINN
JUST MY LUCK kl. 5.40, 8 og 10.20
R.V. kl. 3.40, 5.50, og 8
THE OMEN kl. 10.10 B.I. 16 ÁRA
X-MEN 3 kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
DA VINCI CODE kl. 5 og 8 B.I. 14 ÁRA
DA VINCI SÝND Í LÚXUS kl. 5 og 8 B.I. 14 ÁRA
RAUÐHETTA M / ÍSL. TALI kl. 3.40
ÍSÖLD M / ÍSL. TALI kl. 3.40
JUST MY LUCK kl. 5.40, 8 og 10.20
R.V. kl. 5.50
TAKE THE LEAD kl. 8 og 10.30
THE OMEN kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
DA VINCI CODE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA
RAUÐHETTA M/ ÍSL TALI kl. 6
JUST MY LUCK kl. 6, 8, og 10
R.V. kl. 6 og 8
THE OMEN kl. 10 B.I. 16 ÁRA
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
S.V. MBL. D.Ö.J
KVIKMYNDIR.COM
V.J.V TOPP5.IS
S.V. MBL.B.J. BLAÐIÐ V.J.V TOPP5.IS
51.000
MANNS
UPPLIFÐU VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI!
LEITIÐ SANNLEIKANS
HVERJU TRÚIR ÞÚ?
LOKAUPPGJÖRIÐ!
MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ?
S.V. MBL.
Heims
frumsýning
Mögnuð endurgerð
af hinni klassísku
The Omen!
Á 6 degi
6. mánaðar árið 2006
mun dagur hans koma,
Þorir þú í bíó
47.000
MANNS
Komdu í fyndnasta
ferðalag sumarsins.
1 FJÖLSKYLDA.
8 HJÓL.
ENGAR BREMSUR
Fór beint á
toppinn
í USA
Hún var heppnasta stelpan
í bænum þangað til drauma-
prinsinn eyðilagði allt!
Frábær unglinga gamanmynd
með Lindsey Lohan í
fantaformi!