Fréttablaðið - 21.07.2006, Side 25
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Borð
H
úsgagna
Lagersala 14 - 21 júlí 9-18 virka daga10-16 laugadag Krókhálsi 10simi: 557-9510
Allt að 80% afsláttur
af útlitsgölluðum vörum
Komdu og gerðu góð kaup
Sófar og margt fleira...Rúm Skápar Speglar Púðar Nuddstólar
Esso veitir 20 prósenta afslátt af
Outback- og Fiesta Gusto-gas-
grillum á meðan birgðir endast.
Boðið er upp á fría heimsend-
ingu á höfuðborgarsvæðinu.
Gallerí Húsgögn að Dalvegi
í Kópavogi heldur sérstaka
sófadaga þessa vikuna. Auk þess
veitir verslunin 30 til 60 prósent
afslátt af öllum húsgögnum.
Sala áfengis í júní var tæpum
14 prósentum meiri en í sama
mánuði árið 2005. Aukning í
sölu áfengis í lítrum frá janúar til
júní eru rúm 9 prósent. Tæplega
339 þúsund viðskiptavinir komu
í vínbúðirnar 46 í júnímánuði og
er það 6,9 prósentum fleiri við-
skiptavinir en komu í vínbúðirnar
í sama mánuði í fyrra.
Veiðihornið býður góða tilboðs-
pakka fyrir veiðimanninn. Pakk-
arnir eru á sérstöku tilboðsverði
með vaxtalausum greiðslum.
ALLT HITT
[ MATUR TILBOÐ ]
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn
21. júlí, 202. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 3.58 13.34 23.07
Akureyri 3.18 13.19 23.16
Halla Vilhjálmsdóttir leikkona dansar, syngur og
leikur í söngleiknum Footloose þessa dagana. Halla
hugar vel að matarræðinu til þess að hafa orkuna og
einbeitinguna í góðu lagi.
„Það er ekkert grín að komast í gegnum sýningu eins og
Footloose eða Hafið bláa þar sem ég stoppa ekki í tæpa þrjá
tíma. Ég bara hreinlega verð að borða hollan mat án þess að
vera eitthvað öfgasinnuð í þeim málum,“ segir Halla, en
hún notar nær eingöngu lífrænt ræktaðar matvörur og
segir hún Yggdrasil vera uppáhalds matvörubúðina sína.
„Það getur verið yfirþyrmandi að ætla sér að skipta
algjörlega yfir í lífrænt ræktaðan mat. Besta leiðin er að
byrja smátt, prófa sig áfram og byrgja sig upp í rólegheit-
um. Á síðustu níu mánuðum hefur úrvalið og verðið á líf-
rænt ræktuðum vörum breyst mikið til hins betra. Svo
þegar ég er uppiskroppa með hugmyndir þá fer ég bara í
Yggdrasil og skoða mig um, fæ aðstoð hjá starfsfólkinu og
prófa eitthvað nýtt,“ segir Halla, en maturinn sem hún grill-
aði í góða veðrinu er lífrænt ræktaður, hollur og næringar-
ríkur.
„Já, þetta er sannkallað heilsufæði eða skvísufóður eins
og ég kalla það stundum. Þetta er næringarríkur matur og
ég fæ fullt af orku úr honum. Bragðið kemur fyrst og fremst
úr pestóinu og saltleginum sem ég læt grænmetið liggja í.
Úr hörfræjaolíunni sem ég set inn í lárperuna fæ ég líka
ómega-3 og -6 fitusýrur sem eru góðar fyrir heilann og liða-
mótin, sem sagt nauðsynlegar fyrir mig þar sem ég þarf að
halda góðri einbeitingu á sýningum og er næstum því liða-
mótalaus,“ segir Halla hlæjandi að lokum. Uppskriftina að
rétti Höllu er að finna á bls. 2.
erlabjorg@frettabladid.is
Lífrænt ræktað
skvísufóður
FYRSTU ÍSLENSKU KARTÖFLUR
SUMARSINS KOMU Í VERSLAN-
IR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
FYRIR NOKKRUM DÖGUM.
Kartöflubændur í Þykkvabæ eru
byrjaðir að kíkja undir kartöflu-
grösin og taka nú upp smáslatta á
hverjum degi. Tegundin er prem-
ier og uppskeran fer í verslanir á
höfuðborgarsvæðinu í gegnum
heildverslunina Bananar. Færri fá
en vilja og hafa kartöflurnar verið
fljótar að seljast upp í búðunum
og viðskiptavinir hafa þurft að
hafa hraðar hendur til að ná sér
í þetta nýmeti. Takmarkað magn
er um að ræða fyrstu dagana en
strax í næstu viku má búast við
að auðveldara verði fyrir almenn-
ing að fá sér kartöflur í pottinn.
„Magnið eykst dag frá degi enda
hefur sólskinið síðustu daga haft
góð áhrif á vöxtinn,“ segir Gunn-
laugur Karlsson, framkvæmda-
stjóri Sölufélags garðyrkjumanna.
Fyrstu kartöflurnar sem tekn-
ar eru upp eru alltaf viðkvæmar,
hýðið er þunnt og þær eru fljótar
að þorna upp. Því þola þær enga
geymslu en bragðast þess betur
þegar þær eru nýkomnar upp úr
moldinni.
Sumarlegt bragð
Birkir Ármannsson kartöflubóndi
í Þykkvabæ reið á vaðið í vikunni
og tók upp eitt og hálft tonn af
kartöflum fyrsta daginn.
SÖGUKONA SEM
BAKAR BRAUÐ
Guðrún Ásmundsdóttir leik-
kona svalar fróðleiksþyrstum
ferðalöngum og seður hungur
þeirra með nýbökuðu brauði
MATUR 3
ER A4 TÝPA
Tryggvi Guðmundsson knatt-
spyrnumaður gerir yfirleitt
góð kaup
TILBOÐ 6
Halla Vilhjálmsdóttir, leikkona, naut veðurblíðunnar og borðaði hollan mat í garðinum sínum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON