Fréttablaðið - 21.07.2006, Page 26
[ ]
Fáir veitingastaðir njóta eins
mikilla vinsælda og Hliðið
á Álftanesi sem rekið er af
hjónunum Boga Jónssyni og
Narumon Sawngjaithan, en þar
er allt upppantað langt fram í
tímann.
„Þetta var upphaflega hugsað sem
tómstundagaman fyrir eignkonu
mína, sem hefur einstaka unun af
eldamennsku,“ segir Bogi um til-
drögin að veitingarekstri þeirra
Narumon á Álftanesi, en þau ráku
áður Thailand á Laugavegi 11 þar
sem þau elduðu meðal annars ofan
í taílenska prinsessu og fylgdarlið
hennar.
„Við áttum samt aldrei von á því
að þetta yrði svona gríðarlega vin-
sælt. Hér er upppantað öll kvöld
langt fram í tímann,“ segir hann
ennfremur.
Á Hliðinu er boðið upp á taí-
lenska matseld, eins og hún gerist
best. Risarækjusúpa er í forrétt,
kjúklingur í engifer, svínakjöt í
massaman karríi og pathai núðlur
með rækjum eru í aðalrétt og te
eða kaffi og karamelluterta í eftir-
rétt. Áfengi er ekki til sölu, en gest-
um veitingastaðarins er heimilt að
mæta með eigin veigar sem gerir
staðinn nokkuð sérstakan.
Það er ýmislegt fleira sem gerir
Hliðið frábrugðið öðrum veitinga-
stöðum. Til að mynda er maturinn
borinn fram í sólstofunni heima
hjá Boga og Narumon, sem setur
skemmtilega heimilislegan svip á
reksturinn. Staðsetningin á Álfta-
nesi setur Hliðið einnig í sérflokk,
þar sem gestir geta notið kyrrðar-
innar í fallegu umhverfi.
„Núverandi fyrirkomulag hefur
þau áhrif að við getum lagt okkur
enn frekar fram við þjónustuna,
sérstaklega vegna takmörkunar á
gestafjölda,“ útskýrir Bogi, en ein-
ungis er tekið á móti einum sex til
tólf manna hópi á dag og er ráðlegt
að panta með góðum fyrirvara.
Bogi segir að asísk heilsulind
verði opnuð undir sama þaki í
haust. „Boðið verður upp á taí-
lenskt jurtagufubað, jurtanudd,
þar sem nuddað er með sérstökum
púðum, og heitan pott fullan af sjó
og þangi sem mýkir húðina,“
útskýrir hann og bætir við að pott-
urinn, sem er staðsettur á þaki
hússins, hafi þegar verið pruf-
keyrður með góðri útkomu. „Við
viljum kynna fleiri austurlenskar
hefðir fyrir landsmönnum, enda
áhuginn mikill,“ segir hann í lokin.
roald@frettabladid.is
Eldað fyrir aðalsfólk
Heitum potti hefur verið komið fyrir uppi
á þakinu, þar sem gestir geta baðað sig í
sjó og þangi, en taílensk heilsulind verður
opnuð í húsinu í haust.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Matur er borinn fram í sólstofunni heima hjá Boga og Narumon, þar sem gestir hafa útsýni
yfir fallega náttúruna úti á Álftanesi. Nánari upplýsingar á www.1960.is FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Eins ótrúlega og það hljómar var húsið í eyði þegar Bogi og Narumon tóku það fyrst á leigu, þannig að gífurleg uppbygging hefur átt sér
stað frá þeim tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is
-leggur heiminn að vörum þér
Nikaragúa Cortes
NÝTT
KAFFI
Kaffitári er sönn ánægja að kynna fyrir öllum
kaffiunnendum nýtt og spennandi kaffi.
Kaffið er ræktað af Ricardo Rosales og
fjölskyldu hans.
Bragðið er hreint og hunangsmjúkt með
ávæningi af kakó og kryddi.
Fæst í öllum helstu
matvöruverslunum og
á kaffihúsum Kaffitárs
· Kringlunni
· Bankastræti
· Þjóðminjasafni
· Stapabraut 7
· Flugstöð Leifs Eiríkssonar
· Listasafni Íslands
H
2
h
ön
nu
n
HÁTEIGSVEGUR 1
105 REYKJAVÍK
SÍMI: 533-1020
www.aman.is
VÍNGERÐARVERSLUN
HÁGÆÐA
VÍNGERÐAREFNI
NÝ VERSLUN !
MIKIÐ ÚRVAL - TILBOÐ
GLÓÐ inn
Við sundlaug Vesturbæjar í 25 ár
Ekta hamborgari
Ekta steikarbragð
Hamborgara tilboð með öllu
og kók í gleri 666 kr.
Glóandi tilboð í sumar
Spínat Spínat er hollt, ríkt af járni, kalki, A- og C-vítamíni og
er auk þess fitusnautt, Það er hentugt í salatið, eggjakökuna
og ýmsa grænmetisrétti.
uppskrift Höllu }
GRILLAÐUR KJÚKLINGUR MEÐ
GRÆNMETI
400 g kjúklingalundir
1-2 kúrbítar
eggaldin
gul, rauð og appelsínugul paprika
grænt og rautt pestó
ólífuolía
kruigenzout frá Aquarius (salt með
kryddi)
SALAT:
salatblöð
valhnetur
kirsuberjatómatar
lárpera
hörfræjaolía
balsamiksíróp
Kjúklingalundir grillaðar og bæði
rauðu og grænu pestó hrúgað ofan á
þær. Saltkrydd hrært út í ólífuolíu og
kúrbítur, eggaldin og paprika pensluð
með leginum. Grænmetið er síðan
grillað. Lárperan skorin í tvennt og sett
hörfræjaolía í holurnar og borin fram
ásamt fersku salatinu. Gott er að setja
balsamiksíróp á salatið.