Fréttablaðið - 21.07.2006, Síða 62
21. júlí 2006 FÖSTUDAGUR46
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 andspænis 6 einnig 8 eignarfor-
nafn 9 efni 11 í röð 12 mest 14
íþrótt 16 nafnorð 17 sunna 18 hrópa
20 í röð 21 glufa.
LÓÐRÉTT
1 keppniseining 3 hljóm 4 þáttaskil
5 utan 7 æringi 10 hár 13 hækkar 15
bor 16 nálægar 19 frá.
LAUSN
opið alla laugardaga 11-14
Á GRILLIÐ! NÝR HUMAR, LÚÐA,
VILLTUR LAX, SKÖTUSELUR og KEILA
Á grillið! Nýr humar, lúða, sólþurrkaður
saltfi skur, skötuselur og keila.
LÁRÉTT: 2 móti, 6 og, 8 mín, 9 tau, 11
mn, 12 allra, 14 glíma, 16 no, 17 sól,
18 æpa, 20 tu, 21 rifa.
LÓÐRÉTT: 1 lota, 3 óm, 4 tímamót, 5
inn, 7 galgopi, 10 ull, 13 rís, 15 alur, 16
nær, 19 af.
Í tilefni af komu rithöfundarins Liz
Tuccillo ætlar Edda útgáfa að halda
heljarinnar konuboð á laugardag-
inn. Boðið verður haldið í Iðusaln-
um á Lækjargötu og hefst klukkan
17.00.
Liz Tuccillo er ein af handrits-
höfundum sjónvarpsþáttanna
Beðmál í borginni eða Sex and the
City sem er mjög vinsæll meðal
kvenþjóðarinnar. Einnig skrifaði
hún bókina „Hann er ekki nógu
skotinn í þér“ sem er eins konar
sjálfshjálparbók fyrir konur og
kom nýlega út í íslenskri þýðingu
Þóru Sigurðardóttur. Liz er vænt-
anleg til landsins í dag og ætlar að
nota tækifærið á laugardaginn og
ræða við nokkrar vel valdar ein-
hleypar konur í rannsóknarskyni
fyrir næstu bók sína sem nefnist
„How to Be Single“. Hún á að koma
út árið 2007 og verður skáldsaga
með sjálfshjálparívafi.
Samkvæmt Rakel Pálsdóttur,
kynningarstjóra Eddu útgáfu, verð-
ur þetta algert skvísuboð og er
Edda búin að senda út boðskort til
margra kvenna sem eru áberandi í
þjóðfélaginu um þessar mundir. Á
boðslistanum er meðal annars að
finna Steinunni Valdísi fyrrverandi
borgarstjóra, Ragnheiði Guðfinnu
sjónvarpskonu, Andreu Róberts
hjá Concert, Kolbrúnu Bergþórs-
dóttur blaðakonu og Katrínu Júlíus-
dóttur alþingiskonu. Þá er einnig
búið að bjóða öllum alþingiskonum,
öllum kvenkyns borgarfulltrúum
og fjölmiðlakonum.
„Liz ætlar að nýta tækifærið og
mun leiða einhvers konar umræður
í boðinu. Hún ætlar að reyna fá sem
besta sýn á hvernig það er að vera
kona á Íslandi á skemmtilegan hátt
í alvöru sumarpartíi.“
Skvísuboð í Iðu
LIZ TUCCILLO Handritshöfundur Sex and
the City-þáttanna er væntanlegur til
landsins í dag og er heiðursgesturinn í
sumarpartíi Eddu útgáfu.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á blaðsíðu 8
1. Sedov.
2. Tæplega 1.800.
3. Heiðdís Lilja Magnúsdóttir.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Margir bíða eflaust spenntir eftir heimildarmyndinni um Ísmann-
inn ógurlega, Sigurð Pétursson, sem
Lýður Árnason og Reynir Traustason
eru með í burðarliðnum. Ísmaðurinn
lifir ansi spennandi lífi sem er sveipað
einhverjum ævintýraljóma en á mannlif.
is er hins vegar greint frá lífsháska sem
Sigurður kom sér í fyrir skömmu. Helj-
armennið hélt til dúntekju og veiða í
eyðibyggðinni Skjöldungen og ætlaði að
hreiðra um sig þar í viku og snúa síðan
aftur til heimabyggðar. Mikið var um
hafís á svæðinu og festist bátur Sigurðar
á ísnum um áttatíu sjómílur frá strönd
Grænlands. Þar þurfti Ísmaðurinn að
hafast við í tæpan mánuð og hafði
ekkert annað að borða en
það sem var veitt í Skjöld-
ungen. Ísmaðurinn er
hins vegar núna
tæpar tuttugu
mílur frá næsta
byggða bóli
og segir á
heima-
síðunni
að hann
vonist til
að rekast á
sel áður en
matarforð-
inn klárist.
Magni Ásgeirsson hefur heldur betur slegið í gegn í sjónvarps-
þættinum RockStar: Supernova þar
sem nokkrir rokkarar keppast um að
verða næsti söngvari ofursveitarinnar
Supernova. Svo vel tókst til hjá Magna
að þeir Tommy Lee, Gilby Clarke og
Jason Newsted báðu hann um að
syngja lagið sitt aftur. Á aðdáendasvæð-
inu er Magni kominn í annað sætið yfir
þá sem líklegastir eru taldir til hreppa
hnossið. Á heimasvæði Magna er hins
vegar ljóst að söngvarinn saknar kon-
unnar sinnar Eyrúnar og hefur samið
til hennar lag sem heitir 7.júlí. „Þetta er
til þess að halda geðheilsunni og eyða
tímanum,” skrifar Magni á heimasíð-
unni sinni. Nokkuð skemmtilegt í ljósi
þess að í þættinum á
miðvikudagskvöldinu
notaði Magni orðið
„bitch” ótt og títt en
það er sem kunnugt
enskt heiti yfir „tík”.
Gárungarnir hafa velt
vöngum yfir því hvort
að með þessari
orðanotkun vilji
söngvarinn
sýna fram á
að hann sé
engu síðri
rokkari en
hinir þátttak-
endurnir.
- fgg
Grímur Atlason, þroskaþjálfi og
tónleikahaldari með meiru, er
nýráðinn bæjarstjóri í Bolungar-
vík. Grímur hefur um árabil verið
búsettur í Vesturbænum í Reykja-
vík ásamt konu sinni Helgu Völu
Helgadóttur, leik- og fjölmiðla-
konu.
„Ég hef aldrei verið feiminn við
breytingar og þetta er mikið tæki-
færi fyrir mig. Fólkið í Bolungar-
vík hefur verið að bíða eftir göng-
um og þess háttar en ég tel að það
séu mjög bjartir og öflugir tímar
fram undan hjá okkur,“ segir
Grímur.
Grímur og Helga Vala eiga fjög-
ur börn, tvö saman og hvort sína
stelpuna úr fyrri sambúð. „Við
förum vestur þessi fjögurra manna
kjarni en stofnum svo til heimilis
fyrir okkur öll sex í Bolungarvík,“
segir Grímur. „Helga Vala verður
svo með annan fótinn í Reykjavík
til að byrja með, þar sem hún er í
lögfræði í HR, en mun síðan stunda
fjarnám eins og kostur gefst.“
Grímur og Helga Vala hafa búið
í Vesturbænum um árabil en
bæjarstjórinn nýráðni segist ekki
vita hvað framtíðin beri í skauti
sér. „101 er ekki nafli alheimsins
og það er ótrúlega margt sem ger-
ist þar fyrir utan. Við eigum yndis-
lega íbúð í Vesturbænum sem við
vorum lengi að finna en það er
algjör óþarfi að rjúka til og selja
hana. Kannski komum við samt
aldrei aftur en það verður bara að
koma í ljós. Við erum allavega ekki
að fara til að vera í tvo mánuði,“
segir Grímur.
Grímur er ekki tengdur Bol-
ungarvík á neinn hátt en á þó ættir
sínar að rekja til Vestfjarða. Afi
Gríms, Grímur Jónsson, byggði
jörðina Súðavík og átti meðal ann-
ars frystihúsið þar í bæ. „Í aðra
ættina er ég Vestfirðingur en í
hina frá Raufarhöfn. Þetta eru tvö
helstu menningarsvæði landsins,“
segir Grímur stoltur, en hann
hefur ekki látið sitt eftir liggja í
menningarmálum landsbyggðar-
innar og hélt meðal annars tón-
leika með Emilíönu Torrini í Bol-
ungarvík fyrir nokkru.
Grímur hefur verið einn ötul-
asti tónleikahaldari landsins
undanfarin ár en býst við að það
dragi nokkuð úr því þar sem hann
er kominn í nýtt starf. „Tónleika-
haldið er ótryggur bransi og ætli
það sé ekki með mig eins og fólkið
fyrir vestan að efnahagsstjórnun
landsins fer ekki vel með okkur
því sveiflurnar eru svo miklar,“
segir bæjarstjórinn í Bolungar-
vík. kristjan@frettabladid.is
GRÍMUR ATLASON: NÝRÁÐINN BÆJARSTJÓRI Á BOLUNGARVÍK
Tónleikahaldari sest
í bæjarstjórastól
BÆJARSTJÓRINN OG FJÖLSKYLDA Grímur Atlason, nýráðinn bæjarstjóri á Bolungarvík, með Helgu Völu konu sinni og börnunum þeirra
fjórum.
HRÓSIÐ FÆR...
Óttar Guðnason sem tekur upp
nýjustu kvikmynd hasarmynda-
leikstjórans Jan De Bont í Berlín.
Arnór G. Bieltvedt myndlistar-
maður hefur búið og unnið í
Bandaríkjunum undanfarna ára-
tugi við vaxandi orðstír og er nú
svo komið að þó nokkrir frægir
einstaklingar eiga verk eftir
hann.
„Ég hef búið í Banda-
ríkjunum í um tuttugu ár,
þar af í Chicago síðastlið-
in fimm þar sem ég starfa
við listkennslu og list-
sköpun,“
segir
Arnór, sem
er fæddur á Akureyri
en ólst upp í Reykjavík „Ég
útskrifaðist á sínum tíma frá
Verzlunarskólanum og hélt
þaðan í nám til Þýskalands og
þar sem ég lærði félags- og mark-
aðsfræði. Það var hins vegar ekki
fyrr en ég flutti til Bandaríkjanna
sem ég sneri blaðinu við og fór í
listnám og hef sinnt þeirri köllun
síðar.“
Sífellt fleiri bera sig eftir verk-
um Arnórs, þar á meðal tíðir gest-
ir á rauða dreglinum þar vestra.
„Varðandi fræga aðila
sem eiga verk eftir
mig, þá hef ég bæði
komist í kynni við
suma þeirra en aðrir hafa
fengið verk eftir mig að
gjöf eða viðkomandi
hefur rekist á verk
eftir mig í gall-
eríi,“ segir Arnór og nefnir að
meðal þeirra sem hafa eignast
verk eftir hann séu leikarinn Tim
Kazurinsky, sem ætti að vera
aðdáendum Lögregluskólans að
góðu kunnur, leikkonan Jessica
Harper, sem komið hefur fram í
myndum á borð við Minority
Report, Bruce Jarchow sem
brugðið hefur fyrir í þáttum á
borð við Desperate Housewives
og Seinfeld og Jimmy Arias, sem
var í fimmta sæti á styrkleikalista
Alþjóða tennissambandsins árið
1984.
Fyrir skemmstu lauk samsýn-
ingu sem Arnór tók þátt í Glencoe
og á dögunum birtist viðtal við
hann í tímaritinu Nordic Reach
undir fyrirsögninni The Heart-
beat of Iceland eða Hjartsláttur
Íslands eins og það myndi útleggj-
ast á íslensku. Umboðsaðili Arn-
órs á Íslandi er Art-Iceland.com á
Skólavörðustíg. - bs
Málar fyrir stjörnurnar
ARNÓR G. BIELVELDT Þó nokkrir frægir
einstaklingar hafa keypt verk eftir hann.
JIMMY ARIAS
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2