Fréttablaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 2
2 1. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR �������������� ������������ � ����� ���� ������ ������������ ����������� �� �������������� ���������������� ������� �������������� DANMÖRK Danska lögreglan hefur handtekið feðgin sem grunuð eru um að hafa myrt móður dótturinn- ar og eiginkonu föðurins á Norður- Jótlandi aðfaranótt laugardags. Þetta kemur fram á fréttavef danska blaðsins Politiken. Konan, sem var sextug, fannst stungin til bana í einbýlishúsi hjón- anna í Hjedsbækvej í Suldrup snemma á laugardagsmorgun eftir að faðirinn hringdi á sjúkrabíl. Faðirinn hefur verið úrskurð- aður í þriggja daga gæsluvarð- hald, en dóttirin, sem er 37 ára, hefur verið úrskurðuð í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Þau neita bæði sök, en að sögn lögreglu ber sögum þeirra ekki saman um hvað gerðist á heimil- inu. - smk Hrottalegt morð á Jótlandi: Feðgin grunuð LÖGREGLUMÁL Ásgeir Davíðsson, eigandi nektardansstaðarins Gold- finger, var handtekinn í fyrrinótt ásamt fjórum mönnum eftir að þeir höfðu farið inn á nektardans- staðinn Bóhem við Grensásveg og haldið starfsfólki þar nauðugu. Ásgeir á húsnæðið þar sem Bóhem er til húsa en hafði ekki gert boð á undan sér þegar hann birtist ásamt mönnunum fjórum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík fóru mennirnir inn á staðinn um fjögur að nóttu til og höfðu í hótunum við starfsfólk, á meðan þeir reyndu að skipta um skrár á hurðum í hús- inu. Staðarhaldari hafði samband við lögreglu sem síðan greip til aðgerða vegna komu mannanna á staðinn. Bjarnþór Aðalsteinsson, varð- stjóri í rannsóknardeild lögregl- unnar í Reykjavík, segir málið vera enn í rannsókn en mennirnir fimm voru yfirheyrðir í gær. „Við erum að rannsaka þetta mál en það liggur fyrir að fimm menn ruddust inn á Bóhem og ætluðu sér að skipta um læsingar á hurð- um á staðnum, án þess að bera fyrir sig heimild til þess. Það fund- ust engin vopn á mönnunum. En það má kalla þetta frelsissvipt- ingu þar sem starfsfólki var hald- ið nauðugu á staðnum.“ Sérsveit lögreglunnar var köll- uð til aðstoðar þegar brugðist var við en lögreglan hafði mikinn við- búnað á staðnum vegna málsins. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Reykjavík fannst lítil- ræði af fíkniefnum á einum mann- anna sem handteknir voru. Bjarnþór segir þetta ekki vera fyrsta málið sem kemur upp í tengslum við deilur á milli for- svarsmanna nektardansstaðanna. „Það hafa komið inn á borð til okkar ágreiningsmál sem tengjast deilum á milli þessara tveggja nektardansstaða. Þau hafa verið minni háttar hingað til.“ Mönnunum var sleppt úr haldi lögreglu um þrjú leytið í gær. Við yfirheyrslu hjá lögreglu gerðu mennirnir fimm lítið úr málinu. „Ásgeir á húsnæðið þar sem starf- semi Bóhem er til húsa, og sam- kvæmt því sem fram kemur í yfir- heyrslunum fer hann með kunningjum sínum til þess að bjóða þeim upp á drykk. Hann á þar að hafa ákveðið að skipta um lása á hurðum þar sem leiga fyrir húsnæðið hafði ekki verið greidd. Þetta er svona í meginatriðum það sem kom fram í yfirheyrslunum,“ sagði Bjarnþór. magnush@frettabladid.is Héldu starfsfólki nauðugu á Bóhem Ásgeir Davíðsson, eigandi nektardansstaðarins Goldfinger, og fjórir aðrir menn voru handteknir af lögreglu á skemmtistaðnum Bóhem í fyrrinótt. Þeir héldu starfsfólki nauðugu. Lögreglan yfirheyrði mennina fimm vegna málsins í gær. GOLDFINGER Forsvarsmenn nektardans- staðanna Goldfinger og Bóhem hafa átt í deilum að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA BÓHEM Fimm menn ruddust inn á Bóhem í fyrrinótt og héldu starfsfólki þar nauðugu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA LÖGREGLUMÁL Ásgeir Davíðsson, eigandi Goldfinger og húsnæðis- ins þar sem Bóhem er með starf- semi, segist harma það að hafa ollið vandræðum, en segir menn- ina sem voru með honum ekki hafa verið með neitt ofbeldi. Spurður um aðdraganda málsins segir hann: „Ég gerði mis- tök en þeir sem ég bauð í glas voru ekki með neitt ofbeldi á staðnum. Ég gekk líklega of langt þegar ég skipti um lás á hurðum en við héld- um fólki ekki nauðugu inni.“ Ásgeir segir dyravörðinn á staðnum, sem er fyrrverandi starfsmaður á Goldfinger, hafa hlaupið í burtu þegar hann hafi frétt af því að hann væri á leiðinni á staðinn. „Dyravörðurinn hljóp í burtu áður en við komum. En við vorum beðnir um að yfirgefa stað- inn.“ Ásgeir og félagar hans sátu að drykkju þangað til rekstraraðili Bóhems kallaði lögreglu til. „Ég get nú viðurkennt það að hugsan- lega gekk ég aðeins of langt með því eiga við skrárnar þarna innan- húss. Ég upplifi þetta þannig að starfsfólkið hafi viljað drekka áfengi með okkur á staðnum og það var allt í lagi okkar vegna. Ég fór niður á Langabar fyrr um kvöldið og sat þar og drakk áfengi. Ég bauð svo fjórum mönnum að koma með mér upp á Bóhem og ætlaði að halda áfram að drekka þar. En mér þykir leitt að kvöldið hafi endað með þessum hætti. Það var ekki ætlunin að vera með nein leiðindi og ég harma að kvöldið hafi endað svona. En hins vegar er það svo að sá sem rekur Bóhem skuldar mér vegna leigu á hús- næðinu sem ég á.“ - mh Eigandi Goldfinger segist hafa gert mistök undir áhrifum áfengis: Segist hafa gengið of langt ÁSGEIR DAVÍÐSSON Segist hafa gengið of langt í ölæði. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL LÍBANON, AP Vopnahlé er ekki í sjónmáli í átökum Ísraelshers við meðlimi Hizbollah-samtakanna í Suður-Líbanon, kom fram í máli Ehud Olmerts, forsætisráðherra Ísraels í gær. Á sunnudag, eftir að alþjóða- samfélagið ásakaði Ísraela harð- lega fyrir árás á bæinn Kana, sem varð á fjórða tug líbanskra barna og fjölda kvenna að bana, lofaði Ísrael að halda 48 tíma vopnahlé svo hægt væri að gefa saklausum borgurum færi á að flýja Suður- Líbanon. En 24 tímum síðar skutu liðsmenn Hizbollah á ísraelskan skriðdreka og þá svöruðu Ísraelar í sömu mynt. Sagði Olmert ekki vera hægt að leyfa Hizbollah- mönnum að efla lið sitt og því ætlar Ísraelsher að halda áfram loft-, sjó- og landárásum á Suður- Líbanon. Talsmaður ísraelska hersins baðst afsökunar í gær á árás á her- menn líbanska hersins og sagði Ísraelsher hafa talið hátt settan yfirmann Hizbollah vera þar á ferð. Sameinuðu þjóðirnar ákváðu í gær að framlengja veru friðar- gæsluliða sinna í Líbanon um einn mánuð, svo hægt væri að draga þá til baka, ef alþjóðlegt herlið verð- ur sent til friðargæslu í Líbanon. Átökin hafa staðið í þrjár vikur nú. Á þeim tíma hafa minnst 519 Líbanar farist, langflestir óbreytt- ir borgarar, og 51 Ísraeli, þar af átján óbreyttir borgarar. - smk Átökin í Líbanon halda áfram þrátt fyrir boðað tveggja daga vopnahlé: Ísraelar halda áfram árásum FÖGGUM BJARGAÐ Líbani reynir að bjarga því sem hægt er úr rústum heimilis síns í Beirút í gær.FRÉTTABLAÐIÐ/AP BJÖRGUN Um tvö leytið í gær barst Neyðarlínunni hjálparbeiðni frá vélarvana bátnum Króki sem staddur var um eina sjómílu norð- ur af Rifi á Snæfellsnesi. Björgunarbáturinn Björg frá Rifi var kallaður til og var hann mættur á staðinn skömmu síðar. Björg dró bátinn, sem er línu- og handfærabátur til lands. Feðgar voru á Króki, maður á áttræðisaldri og ríflega fertugur sonur hans. Páll Stefánsson, skipstjóri á Björgu, sagði að gott hefði verið í sjóinn og að feðgarnir hefðu verið ágætlega haldnir þegar þeim var bjargað, enda einungis verið þar í á annan tug mínútna. - sh Vélarvana bátur norður af Rifi: Björg til bjargar vélarvana Króki UTANRÍKISMÁL Samninganefndir Íslands og Bandaríkjanna um varn- arsamstarf ríkjanna hittast á fundi í Washington í Bandaríkjunum á fimmtudag og föstudag. Albert Jónsson, sendiherra í Washington, fer fyrir íslensku við- ræðunefndinni sem skipuð er full- trúum forsætis-, utanríkis-, fjár-, og dómsmálaráðuneyta. Síðasti fundur samninganefnd- anna fór fram í Reykjavík þann 8. júlí og að honum loknum lýsti Geir H. Haarde forsætisráðherra sig ánægðan með gang viðræðnanna. Geir fer með forræði viðræðnanna við Bandaríkjamenn af Íslands hálfu. - bþs Varnarviðræður í Washington: Varnarmálin rædd í vikulok ALBERT JÓNSSON Sendiherra í Washington. SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Íranar fá fram til 31. ágúst til að hætta auðg- un úrans í heimalandi sínu. Þetta var ákveðið á fundi öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna í gær. Fylgi þeir skip- ununum ekki eftir, geta þeir átt von á að verða beittir efnahags- legum og stjórn- málalegum þvingunum. Sendiherra Írans gagnvart Sameinuðu þjóðunum, Javad Zarif, sagði ekki koma til greina að landið hætti auðgun úrans með þessum hætti. Íranar segja kjarnorkuáætlun þeirra eingöngu ætlaða til frið- samlegrar notkunar, en nokkur valdamestu ríki heims, með Bandaríkin í fararbroddi, telja að þeir ætli sér að framleiða kjarn- orkuvopn. - smk Öryggisráð um kjarnaáætlun: Íranar fá 31 dag til að hætta JAVAD ZARIF SLÖKKVILIÐ Kæliefnið freon lak úr kælikerfi færeysks togara sem lá við Vogabakka í Reykjavíkurhöfn og út í togarann sjálfan um klukk- an eitt í gær. Slökkviliðsmenn fengu tilkynn- ingu um atvikið klukkan hálf fjög- ur og var þá sendur dælubíll á vettvang til að loftræsta togar- ann. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var aldrei neinn í hættu. Þeir segja freon að mestu hættulaust og gufi upp í andrúms- loftið nema það sé í miklu magni í lokuðu rými. Þarna var um lítið magn að ræða sem var fjarlægt. - sh Freonleki í færeyskum togara: Enginn í hættu út af freonleka SPURNING DAGSINS Jón, er hægt að fá að glugga í heimilisbókhaldið þitt? Jájá, það er alveg sjálfsagt mál að fá að glugga í það líka. Jón G. Hauksson er ritstjóri Frjálsrar verslunar sem birtir árlega tekjur valinna einstaklinga upp úr álagningarskrám ríkisskattstjóra, þar á meðal sínar eigin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.