Fréttablaðið - 01.08.2006, Page 34
12
... að árið 1899 héldu menn að búið
væri að finna allt upp sem hægt
væri að finna upp?
... að skakki turninn í Pisa hefur
aldrei verið alveg beinn?
.. að dósahnífurinn var fundinn upp
48 árum á eftir niðursuðudósinni?
... að Óskarsverðlaunin voru veitt
tvisvar árið 1930?
... að það eru til yfir tuttugu þúsund
tegundir af bjór?
... að það er minna koffein í
espressóbolla en venjulegum
kaffibolla?
... að Pétur mikli skattlagði þá sem
létu sér vaxa skegg?
... að Móna Lísa er ekki með neinar
augabrúnir því það var í tísku í Flór-
ens að raka þær af?
... að líkami þinn býr til og eyðir
fimmtán milljón rauðum blóðkorn-
um á sekúndu?
... að gler er milljón ár að eyðast í
náttúrunni?
... að næstum helmingur allra dag-
blaða í heimi kemur út í Bandaríkj-
unum og Kanada?
... að flestir varalitir innihalda
fiskroð?
... að meira en 2.500 örvhentir deyja
árlega í Bandaríkjunum úr því að
nota hluti sem hannaðir eru fyrir
rétthenta?
... að broddgeltir fljóta?
... að lengsta skráða flug hænu varði
í 13 sekúndur?
... að kattahland lýsir í ákveðinni
birtu?
... að asnar geta séð alla fjóra fætur
sína í einu?
... að kakkalakki getur lifað hauslaus
í margar vikur uns hann deyr úr
hungri?
...að rokkstjarnan Adam Ant heitir í
alvörunni Stuart Goddard?
...að í Norður Ameríku eru leður-
blökur þau landspendýr sem eru
mestri í útrýmingarhættu?
...að í heiminum eru sex þúsund
tegundir af skriðdýrum, 73 tegundir
af köngulóm og þrjú þúsund teg-
undir af lúsum? Fyrir hverja mann-
eskju eru um tvö hundruð milljón
skordýr.
...að rúmlega sex hundruð milljónir
símalína eru í heiminum í dag en
helmingur mannkynsins hefur aldrei
hringt símtal?
...að einn af hverjum tíu íbúum
jarðar býr á eyju?
...að árið 1870 bjuggu fleiri Írar í
London, höfuðborg Englands, en í
Dublin, höfuðborg Írlands?
...að líkurnar á því að verða fyrir
eldingu eru sex hundruð þúsund á
móti einum?
VISSIR ÞÚ ... 15% afsláttur
af öllum vörum til 5. ágúst
Töskur, ferðatöskur, seðlaveski, leðurjakkar, skart og fleira.
Gríptu tækifærið!
Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2