Fréttablaðið - 12.08.2006, Page 34

Fréttablaðið - 12.08.2006, Page 34
 12. ágúst 2006 LAUGARDAGUR4 Níu þúsund kílómetrar með þrjátíu kílómetra hámarks- hraða. Vorið 1903 lagði hinn rúmlega þrí- tugi Dr. Horatio Nelson Jackson upp í rúmlega 9.000 kílómetra ferð þvert yfir Bandaríkin. Megin ástæðan var veðmál upp á fimm- tíu bandaríkjadali. Nelson Jackson ætlaði sér að verða fyrstur til að keyra yfir þver Bandaríkin, frá Kyrrahafi til Atlantshafs, á bíl. Sér til halds og trausts hafði hann bílstjóra, Sew- all K. Crocker, og bolabítinn Bud sem notaði bílstjóragleraugu eins og eigandinn til að fá ekki ryk í augun. Bíllinn sem var notaður í þessa tímamótaferð var 20 hestafla Winton-ferðabíll sem náði allt að 30 kílómetra hraða á klukkustund. Í þá daga voru innan við 250 km af vegakerfi landsins með bundnu slit- lagi, allt innan bæja, svo líklega hefur ferðin verið býsna krefjandi fyrir líkama og sál. Þar að auki voru bensínstöðv- ar engar og kort af vegakerfinu þekktust ekki í þeirri mynd sem við þekkjum í dag. Flestir samtímamenn Nelson Jacksons töldu „hestalausu vagn- ana“ ekki eiga framtíð fyrir sér en langferðin hefur væntanlega átt sinn þátt í að almenningur skipti fljótlega um skoðun. Ferðin var hið mesta ævintýri og þeir félagar hittu meðal annars fyrir landnema í vagnlestum, kúreka sem drógu bílinn upp úr sandpyttum með slöngvivöðum sínum, bóndakonur sem buðu heimalagaðan mat í skiptum fyrir stutta ferð í „ofsa- hraðavélinni“ og fólk sem sendi þá viljandi langt af leið, til þess eins að ættingjar þess gætu séð bifreið með eigin augum. Leiðangurinn hófst í San Frans- iskó og þætti líklega enn afrek á nútíma bíl. Wintoninn þurfti að fara yfir ár og læki, festist í vís- undaskít, þræddi járnbrautarbrýr yfir stærstu gil og ár og gerði hestum bilt við á rykugum vegar- slóðum. Eftir því sem leið á ferðina varð Horatio ljóst hversu þjóðin var hugfangin af uppátækinu. Hvar sem hann kom beið hans mannfjöldi sem fagnaði þegar hann þeysti framhjá á 30 km hraða. Dagblöð lýstu heimsókn ferðalanganna á dramatískan hátt; „Bifreiðin gerði íbúum hverft við“ og „Ljóslifandi bifreið!“ Jafnframt því sem áhugi almennings á uppátækinu jókst, vaknaði von hjá bílaframleiðend- um um að verða fyrri til. Bæði Packard og Oldsmobile gerðu út leiðangra sem áttu að komast framúr Nelson Jackson og Crock- er en án þess þó að það tækist. Sextíu og þremur og hálfum degi eftir að ferðin hófst óku þeir félag- ar sigri hrósandi inn í New York, fyrstir manna til að keyra þvert yfir Bandaríkin. Bifreiðin hafði mátt þola ýmis- legt á leiðinni, rétt eins og ferða- langarnir. Hún var þakin drullu, beygluð og brotin, en var engu að síður skreytt með fánum og gestir komu langt að til að berja hana augum. Ferðin sem byrjaði með veð- máli hefur oft verið nefnd fyrsta alvöru bílferðalagið, vísbending um það veigamikla hlutverk sem bifreiðar hafa átt æ síðan í samfé- lagi manna. Fyrstir yfir Bandaríkin Horatio og Crocker í Winton-bifreiðinni. Bud, bolabíturinn sem notaði bílstjóragleraugu. Útliti og notkunarmöguleikum ætlað að höfða til yngri kyn- slóðanna. Airstream-hjólhýsin þykja hafa sett sitt mark á söguna. Eftir að hafa verið nær óbreytt í útliti svo áratugum skiptir hafa tveir hönn- uðir hjá Nissan tekið hjólhýsin upp á sína arma. Niðurstaðan er, og kemur fæstum á óvart, 21. aldar hjólhýsi. Nýja hjólhýsið er kallað Base- Camp og er ekki aðeins frábrugðið hefðbundnu hjólhýsi í útliti. Aft- urendi hússins opnast í heilu lagi og hægt er að hagræða innrétting- unni eftir því hvort nota á hjólhýs- ið undir flutninga eða til dval- ar. BaseCamp er rúmlega 4,8 metrar á lengd og vegur rúm 900 kg. Smá- söluverð í Bandaríkjun- um verður á bilinu 1-1,4 milljónir. -elí Ólíkt gamla hýsinu er hægt að opna þetta að aftan. Þar með eykst notagildið og hægt er að flytja nánast hvað sem er í því. Innrétting hýsisins tekur mið af fjölnota- möguleikanum og má auðveldlega breyta. Hönnun hjól- hýsins byggir á sígildri Airstream- hönnun. Airstream BaseCamp er ekki ýkja stórt, aðeins rúmir 4,8 metrar á lengd, en fortjald eykur notagildi til muna. Sígild hönnun færð inn í 21. öldina Blu Camp Fly 400 Fiat Ducato 18, motor 2,8 LJTD Power 146 hestöfl. Lengd 6,84 m. Abs bremsur, samlæsingar, Loftkæling, rafm í rúðum og speglum, hjónarúm fram í, kojur aftur í fyrir tvo, borðpláss fyrir 6 sem breyta má í rúm fyrir 3. 110 lítra ísskápur með sér frysti. Hjólagrind toppgrind og stigi, Snyrting með sér sturtu. Til afhendingar strax Verð kr. 5.600.000. Blu Camp Fly 50 Fiat Ducato 15, mótor 2,3 L JTD 110 hestöfl, lengd 6,1 Abs bremsur, rafm. rúður og speglar, Loftkæling (air-condition), Samlæsingar, Hjónarúm fram í, kojur aftur í fyrir tvo,borðpláss fyrir 4 sem breyta má í rúm fyrir 2, Sjónvarpskápur með útdraganlegum sleða, Snyrting með sér sturtu, 90 L ísskápur, hjólagrind, toppgrind og stigi. Til afhendingar strax. Verð kr. 4.500.000 Notaður Auto Roller húsbíll. Fyrst skráður apríl 2000. Framleiðsluár 1998. Ekinn aðeins 118.000 km. Fiat Ducato turbo Diesel vél. Svefnpláss fyrir 5 - Þriggja punkta öryggisbelti fyrir fjóra. Verð 2.150.000 kr með vsk. Bílexport á Íslandi ehf. Bóas sími 0049-175-271-1783 Eðvald sími 896-6456 bilexport.dk Þeir sem unna náttúrunni og hafa kynnst frelsinu við að ráða sjálfir næturstað kjósa Blucamp húsbílana Til sölu Nýir bílar ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT n‡ vöru- & fljónustu- skrá á visir.is 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.