Tíminn - 09.07.1978, Blaðsíða 8

Tíminn - 09.07.1978, Blaðsíða 8
8 Sunnudagur 9. júli 1978 Konungsheimsóknin 1907 (ArnarbæliI ölfusi) Ctg. 0. Johnson & Kaaber Reykjavlk. Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið í gamla daga I ritverkinu ,,Saga íslendinga" 9. bindi, bls 40—41, kemst höf. Magnús Jónsson dr. theol. svo að orði: ,,Svo sögðu rosknir menn í byrjun þessarar aldar, þeir er verið höfðu ungir eða á bezta skeiði 1874, að þáhefði farið um landið eins og sterkviðri andans, nokkurs konar vakning og vorhugur. — Hefur þar hjálpast að hvort tveggja, að tilefnið var merkilegt, þúsund ára minning fyrstu islands byggðar, og hitt, að menn sáu loks i< ()11 u h heimsóknin 1908™ Móttakan i Reykjavik •» 1 mm Konungsheimssóknin i Reykjavik 1907 (Otg. Gunhild Thorsteinsson & Co Reykjavik) roða fyrir nýjum degi frelsis og framfara". Kristján konungur ní- undi kom meðfríðu föru- neyti og flutti fslending- um stjórnarskrána. Þjóð- hátíðardaginn 2. ágúst voru þrjár guðsþjónustur í Dómkirkjunni í Reykja- vík, og síðdegis þjóð- hátíðarhald i Oskjuhlið í Reykjavík í stormi og moldroki. Dagana 5.-7. ágúst var svo þjóðhátíð haldin á Þingvöllum. Var þar eitt aðaltjald, en bæir og sýslur og félög höfðu sín tjöld f yrir sig. Var tal- ið að um 60 tjöld væru á völlunum. Ræðustóll í gjárbarminum. Út um land var þúsund ára hátíðin haldin á ýms- um tímum, víða á hinum forna setningardegi Alþingis, þingmariu- messu 2. júli! Nyrðra voru aðalhátíðahöldin á Oddeyri, en víða var hátíðahald. Hér er mynd af hátíða- haldinu á Þingvöllum, teiknuð 1874 og fyrst birt í „lllustreret Tidende". Lítum síðan á þrjár myndir af konungskom- unni árið 1907. Árið áður gistu íslenzkir al- þingismenn Danmörku, að undirlagi Friðriks kon- ungs áttunda. - Nú kom konungur til íslands með föruneyti sínu, ásamt rikisþingmönnunum dönsku. Er þessu lýst í bókinni ,, íslandsferðin 1907" eftir Svenn Poulsen og Holger Rosenberg. Geir Jónasson þýddi. Voru báðir höfundar kunnir blaðamenn. Svenn var bróðir hinna frægu leikara Adams og Jóhannesar Poulsen. Svenn keypti sér stórbýlið Bræðratungu í Biskups- tungum og kom hingað oftar en í konungsför, seinast 1937. Friðrik kon- ungur áttundi þótti jafn- an vinveittur (slending- um. Víkjum að myndunum. Á korti Gunhild Thor- steinsson Reykjavík er sýnd móttakan í Reykja- vík 1907 ( misritað á kort- ið 1908). Þar gefur að líta veglegan söfnuð, skrýdd- an margvíslegum bún- ingum, sem sannarlega er ómaksvert að athuga og bera saman við tízku vorra tíma. Konungur steig á land í Reykjavík 30. júlí, en konungsf lotinn lét í haf frá Seyðisfirði, eftir för norður um land, 15. ágúst. Var förin gerð bæði til Færeyja og Islands. Á annarri mynd er sýnd konungsheim- sóknin að Arnarbæli í Olfusi. Gefur þar að líta tjaldborg mikla, „þarf- asta þjóninn", kerrur margar og hressan lýð. Útg. kortsins O. Johnson & Kaaber. Loks er skemmtileg útlend mynd af komu konungs og ríkisþingmannanna til Seyðisfjarðar. Konungur stendur í fararbroddi (lengst t.v.) á myndinni. Bak við hann sér í Hannes Hafstein ráðherra, og Jó- hannes bæjarfógeti er við hlið konungs. Fyrir miðri mynd stendur J.C. Christensen forsætisráð- herra Dana, klæddur grá- um frakka og með svart- an hatt á höfði. Ýmsa f leiri má ef laust þekkja á öllum hópmyndunum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.