Tíminn - 09.07.1978, Blaðsíða 36
MHj
Sýrð eik er
sígild eign
TRÉSMIDJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 ■ SÍMl: 86822
Sunnudagur9. júlí 1978 145. tölublað — 62. árgangur
Gagnkvæmt
tryggingafélag
Bifreiðainnflutningurinn 1978:
Fj ölskyldubillinn kostar nú
á milli tvær og þrj ár millj ónir
— mikið flutt inn og þeir litlu seljast bezt
Mini selst alltaf vel
ESE — Bifreiðainnflutningur
landsmanna hefur á undanförn-
um árum oft verið mjög mikill og
fjölskrúðugur, og hefur þaö jafn-
an vakið undrun útlendinga, hvað
mikið er til af góðum bílum hér-
lendis. Nú i seinni tið hefur eitt-
hvað dregið úr þessum innflutn-
ingi og eins hefur veriö meira
flutt inn af minni bilum, sem eyða
ekki eins miklu eldsneyti, en það
ræður orðið miklu um val manna
á bilum. Við hringdum á nokkur
bifreiðaumboð af handahófi i
siöustu viku og grennsluöumst
fyrir um innflutning á þessu ári
og eins um það hvaða bilar væru
vinsælastir og hvað þeir kostuðu.
Ingvar Helgason h.f.
Ingvar Helgason flytur inn
Datsun, Subaru, Trabant og
Wartburg. A undanförnum árum
hafa Datsun bilarnir verið sér-
staklega vinsælir sem leigubilar,
en einnig hafa þeir verið mikið
notaðir sem fjölskyldubilar. Þá
hefur f jórhjóladrifsbillinn
Subaru, einnig vakið mikla at-
hygli að undanförnu. Ingvar
Helgason h.f. hefur um langt ára-
bil áttmikil samskipti við Austur-
Þýzkaland og þekktur er inn-
flutningur hans á Trabant, sem er
ódýrasti billinn á markaðinum i
dag. Umboöið hefur nýhafiö inn-
flutning á Wartburg frá A-Þýzka-
landi, en sá bíll er mjög vinsæll
austantjalds og fá færri slika bila
en vilja.
Við höfðum sambandvið Helga
Ingvarsson, hjá Ingvari Helga-
syni hf., og tjaði hann okkur að
búiö væri að flytja yfir sex hundr-
uð bíla inn þaö sem af væri þessu
ári og von væri á stórum sending-
um. Salan á bilunum hefur gengið
mjög vel, en mest seldi billinn
er Datsun 180 B, sem kostar um
3.6 milljónir kr. Einnig selst Dat-
sun 160 J SSS mjög vel. Aörir bil-
ar seljast ágætiega og þá sérstak-
lega Subaru og Wartburg, en
Wartburg þykir mjög ódýr og er
verðið á honum aðeins um tæp 1.6
milljón (minni gerö) og rúm 1.7
millj. kr. (stærri gerö).
Véladeild Sambandsins
Hjá Véladeild Sambandsins
hefur verið lögð aðaláherzia á
sölu Chevrolet bila frá General
Motors i Bandarikjunum, en
einnig hefur Sambandið umboð
fyrir Buick, Pontiac, Oldsmobile,
Opel og Vauxhall.
Bjarni ólafsson, hjá Véladeild
Sambandsins, tjðöi okkur að á
þessu ári hefðu um 350 bilar veriö
fluttir inn og þar af um 30 Olds-
mobile Diesel, sem tvimælalaust
hafa vakið einna mesta athygli af
öllum þeim bilum, sem hingað
hafa verið fluttir inn á siðari ár-
um. Þessir bilar eru taldir hafa
gjörbyltingu i för með sér fyrir
leigubilstjóra, hvað eyðslu og við-
hald snertir enda er þetta fyrsti
átta strokka disel fólksbillinn,
sem framleiddur er, sem þykir
geta sameinaö kosti disel- og
benzinbila. Annars sagði Bjarni,
að mest væri seit af Chevrolet
Malibu sem kostar rúmar 4.8
millj. kr. og Chevrolet Nova, sem
kostar um 4.1 millj. kr.
Oldsmobile Diesel hefur vakið mikla athygli.
Datsun 120
Lada Sporlernú einn mestseldi blll landsins
Mazda 323
Meira um bila i
næsta sunnu-
dagsblaði
1 blaðinu sem út kemur
næsta sunnudag verður sagt
frá innfiutningi og sölu ann-
arra bifreiðainnflytjenda á
tslandi.
Toyota Corolla
Alfa Romeo
Fiat 132, dýrastiFiat blllinn, en selst alltaf mjög vel
Bifreiðar og Landbún-
aðarvélar h.f.
Bifreiðar og Landbúnaöarvélar
h.f. hafa á undanförnum árum
selt mest af Moskwitsch bilum, en
siðan 1974 hefur Lada billinn selst
langmest. Lada er hægt að fá I
fjórum geröum 1200, 1500, 1600 og
svo fjórhjóladrifsjeppann Lada
Sport, sem nú er örugglega einn
alvinsælasti billinn á markaðin-
um. Einnig hefur umboðið selt
mikiö að Volga og svo af rússa-
jeppunum.
GIsli Guðmundsson, hjá Bif-
reiðum og Landbúnaðarvélum
h.f., sagði okkur að búiö væri að
flytja inn um 530 bila og þar af
væri búið aö afgreiða rúmlega
450. Mest hefur verið selt af Lada
Sport, sem kostar aðeins um 2.8
milljónir kr., en afgreiöslufrestur
á þeim er um þrir mánuðir. Af
öörum bilum þá seljast minni
Lada bilarnir alltaf vel, en þá er
eins og áður segir, hægt að fá I
þrem gerðum og er veröiö i kring-
um 2 millj. kr.
Bilaborg h.f.
Bilaborg h.f. hefur umboö fyrir
Mazda bila, en þeir eru fáanlegir
I nokkrum gerðum. Þá sér Bila-
borg h.f. einnig um samsetningu
á Hino vörubilum hér á landi.
Hjá sölustjóra Bilaborgar h.f.,
fengum við þær upplýsingar, að
búið væri aö flytja inn um 500 bila
frá áramótum. Mest hefur verið
selt af Mazda 929, sem kostar um
3.3 millj. kr. eða um 180 bilar og
af Mazda 323,160bilar en verðið á
þeim er um 2.6 millj. kr. Þá selj-
ast aörar gerðir Mazda ágætlega.
P. Stefánsson
P. Stefánsson er einkaumboðs-
aöili fyrir British Leyland á
íslandi. Mest hefur veriö selt á
undanförnum árum af Austin og
Morris bilum, en einnig hafa ver-
Framhald á bls. 30